Ferill 739. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1454  —  739. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


1. gr.

    Í stað fjárhæðarinnar „10,50“ í 14. gr. laganna kemur: 8,60.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr. laganna:
     a.      Í stað fjárhæðarinnar „28,60“ í 2. málsl. kemur: 30,50.
     b.      Í stað fjárhæðarinnar „30,43“ í 2. málsl. kemur: 32,33.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2004.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarpið er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um olíugjald. Gert er ráð fyrir að tekjur til vegagerðar lækki að óbreyttu um 300 - 400 millj. kr. við upptöku olíugjalds í stað núgildandi þungaskattskerfis, þó svo að heildartekjur ríkissjóðs haldist því sem næst óbreyttar vegna aukinna tekna af virðisaukaskatti. Til að koma í veg fyrir skerðingu tekna til vegagerðar er í þessu frumvarpi lögð til hækkun á sérstöku vörugjaldi af bensíni, sem er eyrnamerktur tekjustofn til þess málaflokks, en móti komi samsvarandi lækkun á almenna bensíngjaldinu, en tekjur af því renna beint í ríkissjóð.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 29/1993,
um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

    Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um olíugjald og kílómetragjald. Samkvæmt því frumvarpi breytist samsetning tekna ríkissjóðs þannig að tekjustofnar Vegagerðarinnar gætu lækkað um 300–400 m.kr. Til að vega það upp er í þessu frumvarpi lagt til að sérstakt bensíngjald sem rennur til vegamála hækki um 1,90 kr. og að almennt vörugjald sem rennur í ríkissjóð lækki um sömu fjárhæð. Útgjöld ríkissjóðs verða óbreytt eftir sem áður verði frumvarpið lögfest.