Forseti (Halldór Blöndal):
Áður en gengið er til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um mótvægisaðgerðir vegna stóriðjuframkvæmda á Austurlandi. Málshefjandi er hv. þm. Ögmundur Jónasson en hæstv. forsrh. Davíð Oddsson verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.