[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 128. lþ.
Þuríður Backman:
Herra forseti. Þessar breytingar ganga út á það að háskólasjúkrahúsunum báðum sé gert jafnhátt undir höfði og þau verði gerð jafngild í stjórnsýslunni, þ.e. að samsvarandi stjórnir verði yfir háskólasjúkrahúsunum, bæði Landspítala og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Eins er lagt til að þau ákvæði sem snúa að skiptingunni, að ríkið sjái um og greiði rekstur af þessum heilbrigðisstofnunum, taki þegar gildi en því verði frestað að það taki gildi sem snýr að stjórnum þessara stofnana sem við höfum fjallað um. Er vísað til þess að búið er skipa nefnd til að fara yfir öll lög um heilbrigðisþjónustu og ég tel að það eigi að gefa henni tíma til að vinna.