Forseti (Halldór Blöndal):
Tafla með fundatíma fastanefnda verður væntanlega tilbúin á morgun. Það er ósk forseta að fastanefndir komi saman til fundar hið fyrsta til að kjósa sér formann og varaformann og eftir atvikum til að ræða störf nefndanna á þessu þingi.