Krafa um dreifða eignaraðild við sölu á hlut ríkisins í ríkisbönkunum

Fimmtudaginn 03. október 2002, kl. 11:07:23 (39)

2002-10-03 11:07:23# 128. lþ. 3.94 fundur 133#B krafa um dreifða eignaraðild við sölu á hlut ríkisins í ríkisbönkunum# (umræður utan dagskrár), JÁ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 128. lþ.

[11:07]

Jóhann Ársælsson (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Það var gerð athugasemd við ummæli mín í ræðu hér áðan. Ekki var nefnt hvaða ummæli þetta voru. Það var einungis sagt af hæstv. forseta að ég hefði vikið að einhverjum manni í ræðunni. Nú vék ég að tveimur mönnum í ræðunni sem ekki eiga sæti á þingi. Ég kann svona betur við það ef ég á að skammast mín að vita fyrir hvað.