Fjárlög 2003

Föstudaginn 04. október 2002, kl. 13:50:15 (148)

2002-10-04 13:50:15# 128. lþ. 4.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2003# frv., ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 128. lþ.

[13:50]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. fyrir þetta svar. Auðvitað erum við sammála um að við getum ekki farið til baka. En umræðan um þennan málaflokk er yfirleitt slík að maður gæti haldið og ímyndað sér að stjórnarandstaðan væri tilbúin að bakka. Það getum við að sjálfsögðu ekki. Þetta er nákvæmlega það sama og þegar við erum að fjalla um lyfjakostnaðinn. Það á sér stað mjög mikil og ör lyfjaþróun í heiminum. Það er talað um að læknavísindin hafi þróast með gríðarlegum hraða á síðustu 15 árum. Þess vegna spyr ég líka: Er heilbrrh. tilbúinn að bakka í lyfjamálunum? Eigum við ekki að nýta okkur þau lyf sem eru á markaðnum, sem boðið er upp á en við vitum að eru gríðarlega dýr? Erum við tilbúin að stöðva þá þróun? Ég spyr þess vegna hæstv. heilbrrh.: Er einhver möguleiki á slíku? (Gripið fram í.)