[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 128. lþ.
Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég get tekið undir að sveigjanleiki þarf að vera í fjárframlögum til sjúkrahúsa og það er oft erfitt að gera áætlanir, og það er engin tilviljun að oft hefur reynst erfitt í upphafi árs að gera áætlanir á stóru spítölunum, einmitt vegna þess sem hv. þm. nefndi að þar geta komið upp einstaklingstilfelli sem kosta miklar fjárhæðir. Við höfum dæmi um t.d. meðferðir, lyfjameðferðir, sem kosta ótrúlegar fjárhæðir, en þar kemur inn það ákvæði sem er í lögum um réttindi sjúklinga, að sjúklingar eigi að fá þá bestu lækningu sem völ er á. Það er það ákvæði sem heilbrigðisstéttir eiga að starfa eftir. Þetta er metnaðarfullt markmið en sú grein laganna kemur af fullum þunga á þessar stóru stofnanir. Þess vegna er auðvitað nauðsynlegt að sveigjanleiki sé í fjárframlögum til spítalanna, en það verður að byggjast á greiningum. Okkur hv. þm. greinir ekkert á um þetta og við höfum alltaf lagt áherslu á að það verði svo.
Ég tek einnig undir að nauðsynlegt er að styrkja vísitölu sjúkrahússkostnaðar í sessi. Hún er til. Menn hafa mælikvarða á því og það er ljóst að rekstrarvörur til sjúkrahúsa hafa hækkað meira en sem nemur verðhækkunum á almennum markaði. Það er einn af þáttunum í erfiðleikum þessara stofnana.