Fjárlög 2003

Föstudaginn 04. október 2002, kl. 17:16:55 (219)

2002-10-04 17:16:55# 128. lþ. 4.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2003# frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 128. lþ.

[17:16]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég kannast vel við þá umræðu sem verið hefur um Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og launamál þar. Það er alveg rétt að þar hafa menn lagt á það áherslu að vita hvar þeir standa áður en þeir fara í aðlögunarsamninga. Það er eitt af þeim málum sem hefur verið til meðferðar hjá okkur.