Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. greinargóð svör, sérstaklega við 3. og 4. spurningu minni. Ég átti svo sem ekki von á öðru en að ég fengi greinargóð svör. Hæstv. fjmrh. hefur verið og er þekktur að því.
Ég vil þó segja að gagnvart sveitarfélögunum stendur það eftir að útgjöld þeirra munu aukast um 170--180 milljónir, þ.e. 25 stærstu sveitarfélaganna, við þessa breytingu. Ég er því mjög ósammála að þetta sé gert þannig vegna þess að þetta dregur mjög úr starfsemi sveitarfélaganna og víða úti um land er það þannig að þau berjast í bökkum, þetta er nánast á núlli. Ekki er á það bætandi að auka útgjöld sveitarfélaga hvað þetta varðar.
Hitt atriðið sem ég vildi ræða um, ég tek fram að ég fékk ákaflega hreinskilin svör og það er ákaflega gott að eiga viðræður við ráðherra sem svara á jafneindreginn hátt og hæstv. fjmrh. gerði gagnvart skattalegum ávinningi fyrirtækja annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsbyggðinni. Eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra dró hann ekki í efa það sem ég sagði, enda koma þær tölur fram í þinggögnum og það er sannarlega svo að fyrirtækjarekstur mjög víða á landsbyggðinni er með lítinn hagnað, fær mjög lítinn skattalegan ávinning af lækkun tekjuskatts og líka af lækkun eignarskatts. Þetta er hins vegar aðalávinningur fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Og það er hárrétt og um það er ég hjartanlega sammála hæstv. fjmrh. að auðvitað á það að vera keppikefli að fyrirtækjarekstur sé arðbær alls staðar, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu.
Þess vegna segi ég, herra forseti, að ég er algjörlega ósammála þeim aðgerðum sem hér hafa verið gerðar vegna þess að sú breyting sem gerð var íþyngdi mjög fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni og dró úr rekstrarhæfni þeirra gagnvart fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Og það er líka hárrétt að auðvitað eru líka til lítil og meðalstór fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem bera lítinn hagnað og græða ekki mikið á þessu, það eru fyrst og fremst stóru fyrirtækin, herra forseti.