Forseti (Halldór Blöndal):
Að lokinni atkvæðagreiðslu um tvö fyrstu dagskrármálin fer fram umræða utan dagskrár um samþjöppun veiðiheimilda í sjávarútvegi. Málshefjandi er hv. þm. Svanfríður Jónasdóttir en hæstv. sjútvrh. Árni M. Mathiesen verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.