Jóhann Ársælsson (um fundarstjórn):
Hæstv. forseti. Ég bað um orðið í annað sinn í sambandi við umræðuna áðan um störf þingsins og ætlaði að koma þá á framfæri athugasemdum við það að þessi skýrsla yrði rædd hér í dag. Henni var ekki dreift í þinginu fyrr en seinni partinn í fyrradag, eftir því sem ég kemst næst. Ég sá hana hér í hólfi fyrst í gær. Ég veit það að fjölmargir þingmenn hefðu haft áhuga á því að skoða þessa skýrslu áður en hún kæmi til umræðu.
Ég ætla svo sem ekkert að leggja það til úr því sem komið er, en ég vek athygli á þessu og geri ráð fyrir því að umræðan um skýrsluna verði kannski fátæklegri en hún ætti að vera vegna þess að svona er að málum staðið. Mér finnst að svona skýrsla, eins viðamikil og hún er, ætti að liggja hér í nokkra daga áður en hún er tekin til umræðu.