Útsendingar Ríkisútvarpsins

Miðvikudaginn 13. nóvember 2002, kl. 13:48:32 (1341)

2002-11-13 13:48:32# 128. lþ. 29.1 fundur 117. mál: #A útsendingar Ríkisútvarpsins# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., menntmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 128. lþ.

[13:48]

Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég hygg að allir þingmenn séu sammála um að hér hafi hv. fyrirspyrjandi hreyft mjög mikilvægu máli. Það held ég að sé ljóst. Þessi mál hafa iðulega verið rædd í þingsölum og alltaf komið fram að menn telji að ein af frumskyldum Ríkisútvarpsins sé að koma útsendingum sínum til allra landsmanna.

Ég held líka að það sé hárrétt hjá hv. þm. Gísla S. Einarssyni að móttökuskilyrðin hafa batnað, ekki síst nú í seinni tíð. Ég verð að segja að þó að hér hafi verið rætt um tregðu stofnana get ég ekki sagt það af eigin reynslu að Ríkisútvarpið hafi sýnt einhverja tregðu í þessu máli. Þegar ég sneri mér til þess brást það vel við og gerð hefur verið athugun á þessum málum, eins og hér var gerð grein fyrir áðan, og verið er að vinna að úrlausn þeirra.

Ég held hins vegar að það sé æskilegt að Ríkisútvarpið taki ákvörðun um það sjálft hvort það vill endurgreiða eða veita afslátt þar sem skilyrðin eru léleg. Ríkisútvarpið hefur tekið þá ákvörðun að veita afslátt eða endurgreiða í þeim málum sem erfiðust eru. Ég sé ekki ástæðu til þess sem menntmrh. að blanda mér í það hvernig stofnunin hefur farið með það mál.