Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég tel mig hafa svarað því skýrt í svari mínu við fyrirspurn hv. þm. að ég hyggst ekki beita mér fyrir breytingu á sjúklingagjöldum að svo stöddu. Við höfum reynt að búa svo um hnútana að bráðaþjónusta sé fyrir hendi á Suðurnesjum, og ég endurtek það að ég hef trú á og vona fastlega að þessi deila leysist og að úr þessum vandræðum rakni.