Fjáraukalög 2002

Þriðjudaginn 26. nóvember 2002, kl. 13:57:08 (1694)

2002-11-26 13:57:08# 128. lþ. 36.1 fundur 66. mál: #A fjáraukalög 2002# frv., Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 128. lþ.

[13:57]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil minna hv. þingmenn á að samkvæmt þingsköpum er gefið tækifæri til þess að veita andsvar við ræðum hv. þingmanna en ekki er ætlast til þess að þingmenn úr sama þingflokki noti þetta ákvæði þingskapa til að gefa annað í skyn.

Hv. 6. þm. Reykn., hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson, veitir andsvar öðru sinni. Ég vil minna hv. þingmann á að hann kvaddi sér hljóðs til þess að veita andsvar við ræðu hv. þingmanns.