[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 128. lþ.
Forseti (Halldór Blöndal):
Það er rétt að vekja athygli á því að útbýtt hefur verið í þingsalnum uppprentaðri blaðsíðu úr þskj. 493, þ.e. fjárlögum fyrir árið 2003 eftir 2. umr., bls. 196. Þar hafði slæðst inn sú villa að einn töluliður í yfirliti, sem átti að falla niður eftir atkvæðagreiðslu við 2. umr., stóð enn inni í þingskjalinu. Það hefur nú verið leiðrétt með þessari uppprentun. Það er töluliður 6, sem áður var Sjóminjasafn Íslands, viðgerð á bátnum Friðþjófi, 200 þús. kr. sem prentaðist fyrir misskilning.