Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 57. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 57  —  57. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um ferðasjóð íþróttafélaga.

Flm.: Hjálmar Árnason, Ísólfur Gylfi Pálmason.



    Alþingi ályktar að veita árlega af fjárlögum fé í ferðasjóð íþróttafélaga til að standa straum af kostnaði við keppnisferðir þeirra á viðurkennd mót. Úthlutun fari eftir reglum sem menntamálaráðherra setur.

Greinargerð.


    Þingsályktunartillaga þessi var lögð fram á 126. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er nú lögð fram óbreytt.
    Með tillögunni er gert ráð fyrir að árlega verði veitt af fjárlögum upphæð í sérstakan ferðasjóð íþróttafélaga. Gert er ráð fyrir að íþróttafélög geti sótt um ferðastyrki í sjóðinn til að mæta kostnaði við að senda keppnislið á milli byggðarlaga til þátttöku í íþróttamótum. Drjúgur þáttur í rekstri einstakra íþróttadeilda er fjármögnun keppnisferða á viðurkennd mót, svo sem Íslandsmót og bikarkeppni. Félögin standa misvel að vígi hvað þennan kostnaðarlið varðar. Sem dæmi um félög sem tekið hafa þátt í slíkum mótum má nefna keppnislið frá Ísafirði í úrvalsdeild körfuknattleiks, knattspyrnu- og handknattleikslið frá Vestmannaeyjum, blaklið af Austurlandi og knattspyrnu-, körfuknattleiks- og handknattleikslið frá Sauðárkróki og Akureyri. Í einstökum flokkum getur verið um að ræða fjölda ferða utan af landi til höfuðborgarsvæðisins þar sem flest keppnislið í viðkomandi flokkum eru. Félög á suðvesturhorninu þurfa reyndar einnig að leggja í kostnað vegna keppnisferða út á land en í sumum tilvikum getur verið um eina ferð á keppnistímabili að ræða fyrir höfuðborgarlið á móti tíu ferðum sama keppnisflokks af landsbyggðinni. Þetta leiðir til þess að einstök íþróttafélög eru að kikna undan kostnaði og kemur það niður á öllu íþróttastarfi.
    Íþróttaástundun er hverju byggðarlagi afskaplega mikilvæg. Um er að ræða eina mestu forvörn fyrir ungt fólk. Að auki eiga keppnislið einstakra sveitarfélaga drjúgan þátt í að efla samkennd og samstöðu íbúa sveitarfélaganna. Íþróttamannvirkjum hefur fjölgað ört á þéttbýlisstöðum á landinu og möguleikar til íþróttaiðkunar eru víða afskaplega góðir. Það eykur mjög áhuga iðkenda ef þeir eiga kost á því að taka þátt í t.d. Íslandsmóti viðkomandi íþróttagreinar. Augljóslega leggst ferðakostnaðurinn þyngra á sum íþróttafélög en önnur af landfræðilegum ástæðum.
    Ferðasjóði íþróttafélaga er ætlað að jafna þennan aðstöðumun og stuðla þannig að öflugra íþróttastarfi í landinu. Hér er um eðlilega jöfnunaraðgerð að ræða. Menntamálaráðherra er ætlað að setja sérstakar reglur um úthlutun úr sjóðnum. Benda má á að í slíkum reglum mætti gera ráð fyrir fastri upphæð fyrir hvern keppnismann liðs á viðurkenndum mótum, svo sem Íslandsmóti og bikarkeppni á vegum viðkomandi sérsambanda.