Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 71. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 71  —  71. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um starfsemi Ríkisútvarpsins.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



     1.      Hverjar eru helstu væntanlegar breytingar á starfsemi og þjónustu Rásar 2 samfara flutningi starfseminnar til Akureyrar?
     2.      Eru áform um að allir landshlutar njóti á svipaðan hátt þjónustu svæðisútvarps Rásar 2?
     3.      Eru áform um að bæta dreifikerfi Ríkisútvarpsins þannig að allir landsmenn nái útsendingu útvarps og sjónvarps allra landsmanna?