Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 72. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 72  —  72. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um niðurfellingu á meðlagsskuldum.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hve margir einstaklingar hafa óskað eftir heimild til samninga um niðurfellingu á meðlagsskuldum að hluta eða öllu leyti eða lækkun á mánaðarlegum greiðslum á grundvelli 4. mgr. 5. gr. laga nr. 54/1971, um Innheimtustofnun sveitarfélaga, frá 1. janúar 1998 til 1. október 2002, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margar umsóknir hafa verið samþykktar á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hvaða félagslegir erfiðleikar umsækjenda hafa haft áhrif á samþykkt framangreindra umsókna? Svar óskast sundurliðað eftir samþykktum umsóknum.


Skriflegt svar óskast.




















Prentað upp.