Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 101. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 101  —  101. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um starfssvæði og verkefni Suðurlandsskóga.

Frá Kristjáni Pálssyni.


     1.      Hvernig skiptast núverandi verkefni Suðurlandsskóga eftir sýslum?
     2.      Að hvaða verkefnum er unnið hjá Suðurlandsskógum á Suðurnesjum og í Austur-Skaftafellssýslu?
     3.      Hver eru áætluð fjárframlög til Suðurlandsskóga árið 2003 og hve hátt hlutfall rennur til verkefna á Suðurnesjum og í Austur-Skaftafellssýslu?