Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 126  —  126. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um daggjöld dvalar- og hjúkrunarheimila.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hver er rekstrarstaða þeirra dvalar- og hjúkrunarheimila sem eru á daggjöldum miðað við fyrstu átta mánuði þessa árs? Ef um hallarekstur er að ræða, verður hann bættur í fjáraukalögum?
     2.      Eru fyrirhugaðar breytingar á greiðslu daggjalda til þessara stofnana? Ef svo er, hverjar eru þær og hvenær má vænta þeirra?