Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 155. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 155 — 155. mál.
um niðurfellingu lendingargjalda fyrir reglubundið millilandaflug á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllum.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að gera áætlun um niðurfellingu lendingargjalda á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli til næstu fimm ára. Lendingargjöldin verði felld niður hjá þeim flugfélögum sem hyggja á reglubundið flug frá þessum flugvöllum til útlanda.
Á Íslandi eru fjórir alþjóðlegir flugvellir. Þeirra langstærstur er Keflavíkurflugvöllur, þá Reykjavíkurflugvöllur síðan Akureyrarflugvöllur og loks Egilsstaðaflugvöllur. Ferðaþjónustuaðilar eru sammála um að mjög mikil hagsbót væri að því fyrir ferðaþjónustuna, sérstaklega á landsbyggðinni, að flugvellirnir á Akureyri og á Egilsstöðum nýttust betur í þágu hennar en nú er. Sama má segja um möguleika eða áform manna um inn- og útflutning frá þessum flugvöllum.
Gerðar hafa verið tilraunir til þess að auka samgöngur við útlönd frá þessum flugvöllum í allnokkur ár. Til dæmis stóð Akureyrarbær ásamt hagsmunaaðilum að samningi við flugfélag sem flaug reglubundið milli Zürich í Sviss og Akureyrar. Sú tilraun stóð í nokkur ár en er nú aflögð. Það flug var styrkt beint af Akureyrarbæ og óbeint af öðrum aðilum í ferðaþjónustu, t.d. með auglýsingum.
Nú um skeið hefur Egilsstaðabær staðið fyrir svipuðum samningi þar sem flogið hefur verið á milli Egilsstaða og Düsseldorf og auk þess eru áform um að fljúga á milli Egilsstaða og München næsta sumar. Í báðum þessum tilvikum hefur verið um sumarflug að ræða.
Nokkrir aðilar hafa átt í viðræðum við erlend flugfélög um að auka þjónustuna við þessa staði. Þar má m.a. nefna Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar sem staðið hefur í viðræðum við flugfélag erlendis um að hefja beint flug til Akureyrar. Það er mat allra þeirra sem að þessu máli koma að einhvers konar stuðningur þurfi að koma til eins og dæmin frá fyrrgreindum stöðum sýna svo að þessi kostur á notkun vallanna sé fýsilegur.
Það er mat flutningsmanna að vænlegt sé að gera tilraun til næstu fimm ára með niðurfellingu lendingargjalda á þessum tveimur flugvöllum þannig að öllum þeim flugfélögum sem hafa áhuga sé með því móti gert fært að lækka kostnað vegna flugsins á jafnréttisgrundvelli.
Að því er best verður séð væri hægt að líta á niðurfellingu lendingargjaldanna sem byggðastyrk og væri hún því í fullu samræmi við þær reglur sem settar eru varðandi byggðastyrki á Evrópska efnahagssvæðinu.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 155 — 155. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um niðurfellingu lendingargjalda fyrir reglubundið millilandaflug á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllum.
Flm.: Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason, Þuríður Backman.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að gera áætlun um niðurfellingu lendingargjalda á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli til næstu fimm ára. Lendingargjöldin verði felld niður hjá þeim flugfélögum sem hyggja á reglubundið flug frá þessum flugvöllum til útlanda.
Greinargerð.