Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 156. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 156 — 156. mál.
um meðferðardeild við fangelsi fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að hefja þegar í stað undirbúning að uppbyggingu meðferðardeildar við fangelsi fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn í tengslum við starfsemi Heilbrigðisstofnunar Selfoss, fangelsið á Litla-Hrauni og réttargeðdeild að Sogni. Ákvörðun um úrræði fyrir þennan hóp sjúkra afbrotamanna liggi fyrir eigi síðar en 1. maí 2003.
Um langt skeið hefur verið mikið rætt um meðferðarúrræði fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn og hvernig hægt væri að koma þeim til aðstoðar. Hér er um mjög viðkvæman og alvarlegan málaflokk að ræða sem nauðsynlegt er að taka á svo fljótt sem auðið er. Sakhæfir geðsjúkir einstaklingar sem brotið hafa af sér hafa ekki í mörg hús að venda því að engin sérhæfð stofnun er til. Aðstandendur geðsjúkra afbrotamanna, sem og forsvarsmenn Geðhjálpar og Samhjálpar, hafa margoft bent á alvöru þessara mála og þau vandræði sem steðja að þessum hópi.
Jákvæð reynsla er af starfsemi réttargeðdeildarinnar að Sogni sem og fangelsisins að Litla-Hrauni við Eyrarbakka. Hvorug þessara stofnana er þó ætluð til að hýsa sakhæfa geðsjúka afbrotamenn. Því er brýnt að byggja eða kaupa húsnæði í grennd við þessa staði þar sem þeir geta átt athvarf.
Nauðsynlegt er að þessir afbrotamenn fái uppbyggilega meðferð um leið og þeir afplána dóma. Starfsmenn heilbrigðisstofnana á Suðurlandi eru vanir að liðsinna þessum sérhæfðu og viðkvæmu stofnunum og nokkur samvinna er á milli starfsmanna á Sogni og Litla-Hrauni. Sú reynsla mundi nýtast nýrri meðferðarstofnun og því er hyggilegt að byggja upp meðferðarfangelsi á þessum slóðum. Talið er að um sé að ræða um 20 sakhæfa geðsjúka einstaklinga. Verkefnið er brýnt og nauðsynlegt að taka á vandanum sem allra fyrst.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 156 — 156. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um meðferðardeild við fangelsi fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn.
Flm.: Ísólfur Gylfi Pálmason.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að hefja þegar í stað undirbúning að uppbyggingu meðferðardeildar við fangelsi fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn í tengslum við starfsemi Heilbrigðisstofnunar Selfoss, fangelsið á Litla-Hrauni og réttargeðdeild að Sogni. Ákvörðun um úrræði fyrir þennan hóp sjúkra afbrotamanna liggi fyrir eigi síðar en 1. maí 2003.
Greinargerð.