Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 167. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 167  —  167. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um stofnframlög til uppbyggingar fiskeldisfyrirtækja vegna eldis kaldsjávarfiska.

Flm.: Árni Steinar Jóhannsson.



    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að setja fram tillögur um stofnframlög til uppbyggingar fiskeldisfyrirtækja vegna eldis kaldsjávarfiska.

Greinargerð.


    Eins og kunnugt er hefur Fiskeldi Eyjafjarðar hf. á Hjalteyri og Dalvík náð góðum árangri við klak á lúðuseiðum á undanförnum árum. Fyrirtækið er nú í fararbroddi í heiminum á þessu sviði og mun u.þ.b. 80% af klöktum lúðuseiðum koma frá þessari stöð.
    Eins og er getur Fiskeldi Eyjafjarðar hf. klakið út um 400 þús. lúðuseiðum á ári en gert er ráð fyrir að innan tveggja til þriggja ára muni seiðaframleiðslan vera orðin allt að einni milljón seiða.
    Áframeldi lúðuseiðanna fer að mjög litlu leyti fram á Íslandi. Um 50–60 þús. seiði eru í áframeldi í fiskeldisstöð í Þorlákshöfn en talið er að til þess að skila arði í áframeldi þurfi allt að 100 þús. seiða stöð. Víða á landinu eru ákjósanleg skilyrði til þess að setja upp og starfrækja áframeldi á lúðuseiðum. Nú er megnið af lúðuseiðunum flutt út, m.a. til stöðva í Kanada og Wales. Þær hafa báðar notið stofnstyrkja til framleiðslunnar frá viðkomandi yfirvöldum; í Wales frá Evrópusambandinu og í Nova Scotia frá ríkisstjórn Kanada. Hér eru miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi þar sem um er að ræða verðmætt hráefni og gott aðgengi að því og er því fyllsta ástæða til að styðja opinberlega við að áframeldi á lúðuseiðum. Sama á að sjálfsögðu við um áframeldi þorskseiða og annarra tegunda kaldsjávarfiska sem nú er í þróun.