Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 229. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 232  —  229. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um breytta skipan matvælaeftirlits.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.



     1.      Hvað líður undirbúningi þess að sett verði á fót ein stofnun hér á landi sem hafi yfirumsjón með matvælaeftirliti?
     2.      Hvaða breytingar gætu orðið á hlutverki sveitarfélaganna við matvælaeftirlit ef slíkri stofnun verður komið á fót?