Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 247. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 251  —  247. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)



1. gr.

    Í stað „1.018 kr.“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: 1.081 kr., og í stað „387.000 kr.“ í sömu málsgrein kemur: 410.000 kr.

2. gr.

    Í stað „1.358 kr.“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 1.441 kr.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Gjöldin eru tvenns konar og eru lögð á eigendur fiskiskipa. Annars vegar er um að ræða gjald sem lagt er á um hver áramót og miðast við stærð skips í brúttótonnum. Hins vegar er um að ræða gjald sem lagt er á við úthlutun aflaheimilda. Fram að framangreindri lagabreytingu hafði fjárhæðum verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til:
     1.      Að gjald á hvert brúttótonn fiskiskips verði hækkað úr 1.018 kr. í 1.081 kr. og að hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn hvers skips hækki úr 387.000 kr. í 410.000 kr. Árið 2002 námu tekjur Þróunarsjóðs af þessu gjaldi um 87 millj. kr. og var það lækkun um 5 millj. kr. frá árinu áður. Lækkunin stafaði af fækkun skipa með veiðileyfi. Verði frumvarp þetta að lögum má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldinu hækki um 5 millj. kr. og verði um 92 millj. kr. árið 2003.
     2.      Að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.358 kr. í 1.441 kr. Árið 2002 má gera ráð fyrir að tekjur Þróunarsjóðs af gjaldi á aflaheimildir verði um 615 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum ásamt því að úthlutun þorskígilda verði söm og á yfirstandandi fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar hækki um 35 millj. kr. frá árinu 2002 og verði um 650 millj. kr. árið 2003.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 92/1994,
um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að gjald sem lagt er á aflaheimildir við úthlutun þeirra og rennur til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins verði hækkað úr 1.358 kr. í 1.441 kr. Áætlað er að slík hækkun leiði til 650 m.kr. innheimtu ríkistekna sem ganga til sjóðsins og er það 35 m.kr. hækkun frá innheimtu ársins 2001, en 131 m.kr. hækkun frá áætlun fjárlaga 2002. Þar var gert ráð fyrir mun minni úthlutun en raun varð á. Einnig hækkar hámarksgjald sem lagt er á brúttótonn skipa úr 1.018 kr. í 1.081 kr. og hámarksgjald á brúttótonn hvers skips úr 387.000 kr. í 410.000 kr. sem hvort tveggja er 6% hækkun. Reiknað er með að þessi breyting skili sjóðnum 92 m.kr. í innheimtu ríkistekna. Það er 5 m.kr. hækkun frá innheimtu ársins 2001 en 10 m.kr. lækkun frá fjárlögum 2002. Skýrist það af því að skipum með veiðileyfi hefur fækkað á þessu ári.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum, fjöldi skipa með veiðileyfi óbreyttur og úthlutun þorskígilda sú sama og á yfirstandandi fiskveiðiári er gert ráð fyrir að ríkistekjur sem renna til Þróunarsjóðsins á árinu 2003 nemi 742 m.kr. sem er 121 m.kr. hækkun frá fjárlögum 2002 en 40 m.kr. hækkun frá innheimtu ársins 2001.