Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 72. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 271  —  72. mál.



Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um niðurfellingu á meðlagsskuldum.

     1.      Hve margir einstaklingar hafa óskað eftir heimild til samninga um niðurfellingu á meðlagsskuldum að hluta eða öllu leyti eða lækkun á mánaðarlegum greiðslum á grundvelli 4. mgr. 5. gr. laga nr. 54/1971, um Innheimtustofnun sveitarfélaga, frá 1. janúar 1998 til 1. október 2002, sundurliðað eftir árum?
    Á grundvelli 4. mgr. 5. gr. laga nr. 54/1971, um Innheimtustofnun sveitarfélaga, og 12.–13. gr. reglugerðar nr. 491/1996, um innheimtu og skil á meðlögum o.fl. á vegum Innheimtustofnunar sveitarfélaga, getur stjórn Innheimtustofnunar gert tímabundna samninga sem kveða á um greiðslu skuldara á lægri upphæð en til fellur mánaðarlega. Slíka samninga skal endurskoða reglulega og a.m.k. á sex mánaða fresti. Ef um áframhaldandi félagslega og fjárhagslega erfiðleika er að ræða hjá skuldara og stjórnin telur fullljóst að aðstæður skuldara séu þannig að hann geti eigi greitt áfallinn höfuðstól eða hluta hans, auk meðlaga sem falla til mánaðarlega, er stjórninni heimilt að afskrifa höfuðstól meðlagsskuldar að hluta eða öllu leyti. Heimild til niðurfellingar höfuðstóls eða hluta hans er bundin því skilyrði að skuldari hafi í a.m.k. þrjú ár staðið við samning skv. 12. gr. reglugerðarinnar.
    Varðandi árlegan fjölda umsókna um gerð samnings um lægri mánaðarlegar greiðslur og afskriftir vísast til töflu 1. Umsóknir eru af mörgum toga, stundum er beðið um greiðslufrest eða önnur skammtímaúrræði. Rétt er að geta þess að meðlagsgreiðendur eru nú alls 9.673 talsins.

Tafla 1. Málafjöldi á stjórnarfundum Innheimtustofnunar sveitarfélaga 1998–2002.


Ár
Umsóknir um samninga um lægri greiðslu Umsóknir um afskriftir höfuðstóls/vaxta Frestuð
mál*
Heildarfjöldi mála á ári
2002 772 94 191 1.057
2001 993 111 222 1.326
2000 1.266 90 285 1.641
1999 1.218 20 200 1.438
1998 1.116 189 1.305
Samtals 5.365 315 1.087 6.767
* Gerður er fyrirvari um að mál sem er frestað geta verið innifalin í fjölda umsókna næsta árs.

     2.      Hversu margar umsóknir hafa verið samþykktar á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir árum?

    Á grundvelli framangreindra lagaákvæða hefur stjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga frá ársbyrjun 1998 til 1. október 2002 gert samtals 5.170 samninga við skuldara um greiðslu á lægri upphæð en til fellur mánaðarlega. Rétt er að taka fram að í sumum tilvikum getur verið um að ræða fleiri en einn samning við einstaka skuldara. Þá er og rétt að geta þess að inni í framangreindri tölu eru ákvarðanir stjórnar sem teknar eru á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 491/1996, um að ekki skuli innheimt mánaðarlega hærri fjárhæð en sem nemur þremur barnsmeðlögum hjá skuldurum sem búa við sérstaka félagslega erfiðleika.
    Fyrstu skuldarar sem samningar voru gerðir við á grundvelli 12. gr. reglugerðar nr. 491/1996 uppfylltu skilyrði 13. gr. reglugerðarinnar í nóvember 1999. Frá þeim tíma hefur stjórnin samþykkt 307 umsóknir um niðurfellingu höfuðstóls eða hluta hans. Um sundurliðun vísast til töflu 2.

Tafla 2. Afstaða stjórnar Innheimtustofnunar til umsókna
um lækkun eða afskriftir 1998–2002.



Ár

Frestuð mál*
Samþykktar umsóknir um lægri greiðslu Synjað um gerð samnings skv. 11.–12. gr. Samþykkt afskrift höfuðstóls/vaxta Synjað um afskrift
skv. 13. gr.
2002 191 762 10 94
2001 222 962 31 111
2000 285 1.214 52 82 8
1999 200 1.164 54 20
1998 189 1.068 48
Samtals 1.087 5.170 195 307 8
* Gerður er fyrirvari um að mál sem er frestað geta verið innifalin í fjölda umsókna næsta árs.

    Afskriftarhlutföll geta numið 100%, 75%, 50% eða 25% af höfuðstóli skuldar. Þessi mismunandi hlutföll gefa það mikið svigrúm að einungis hefur þurft að hafna átta umsóknum um afskrift. Sá hópur sem er verst settur getur einnig fengið niðurfellingu dráttarvaxta, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 491/1996. Áhrif reglugerðarinnar eru nú að koma í ljós. Umsóknum hefur fækkað og margir hafa fengið úrlausn sinna mála.

     3.      Hvaða félagslegir erfiðleikar umsækjenda hafa haft áhrif á samþykkt framangreindra umsókna? Svar óskast sundurliðað eftir samþykktum umsóknum.

    Samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 54/1971 er stjórn Innheimtustofnunar heimilt að taka tillit til sérstakra félagslegra erfiðleika skuldara, svo sem heilsufarsástæðna, ónógra tekna, skertrar starfsorku, mikillar greiðslubyrði, barnamergðar eða annarra sambærilegra ástæðna við meðferð umsókna skv. 11.–13. gr. reglugerðar nr. 491/1996, samanber einnig 9. gr. reglugerðarinnar. Sem dæmi um ástæður sem haft geta vægi við ákvarðanatöku stjórnar má nefna gjaldþrot skuldara og neyslu áfengis og vímuefna. Vandamálin geta verið af mörgum toga hjá sama aðila og því er ekki unnt að gera sundurliðaða grein fyrir ástæðum fyrir samþykkt umsókna.