Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 105. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 273 — 105. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um greiðslur úr ábyrgðasjóði launa.
1. Hve mikið var greitt úr ábyrgðasjóði launa vegna gjaldþrota fyrirtækja á árinu 2001 og fram til 1. október 2002 og í hvaða atvinnugreinum hafa þau helst verið? Hver er útgjaldaáætlun sjóðsins fram til næstu áramóta?
Á árinu 2001 námu heildargreiðslur úr ábyrgðasjóði 354.294.993 kr., að meðtöldu vangoldnu orlofi sem sjóðurinn greiðir án undangengins gjaldþrots, sbr. 11. gr. orlofslaga, nr. 30/1987. Á yfirstandandi ári eru áætlaðar heildargreiðslur sjóðsins um 600 millj. kr. Um skiptingu milli atvinnugreina vísast til töflu 1, varðandi árið 2001, og töflu 2, varðandi yfirstandandi ár.
Tafla 1. Skipting eftir atvinnugreinum 2001.
Tafla 2. Skipting eftir atvinnugreinum 2001.
2. Hve mikið hafa greiðslur úr ábyrgðasjóði launa aukist frá 1. janúar 1998 til 1. október 2002?
Í töflu 3 er að finna yfirlit um heildargreiðslur úr ábyrgðasjóði árin 1998–2001 og fyrstu níu mánuði þessa árs. Árið 1998 námu greiðslur úr sjóðnum rúmlega 137 millj. kr. en áætlaðar greiðslur á þessu ári nema um 600 millj. kr.
Tafla 3. Greiðslur úr ábyrgðasjóði 1998–2002.
3. Hver var árlegur fjöldi fyrirtækja síðustu fimm ár sem urðu gjaldþrota og ávísað var á greiðslum úr ábyrgðasjóði launa, skipt eftir starfsgreinum?
Upplýsingar liggja ekki fyrir um skiptingu fyrirtækja ef tir starfsgreinum á árinu 1998. Að öðru leyti vísast til töflu 4 en tekið skal fram að fjöldi fyrirtækja á þessu ári miðast við fyrstu níu mánuði þess.
Tafla 4. Árlegur fjöldi fyrirtækja miðað við úrskurðardag gjaldþrots frá 1999–2002.
4. Telur ráðherra að um vísvitandi misnotkun á sjóðnum sé að ræða? Ef svo er, í hverju felst hún og hvernig hyggst ráðherra bregðast við?
Erfitt er að svara spurningunni með nokkurri vissu. Starfsmenn sjóðsins yfirfara lýstar kröfur af nákvæmni og einnig er aflað umsagnar skiptastjóra viðkomandi þrotabús um réttmæti krafna, auk þess sem launamenn njóta í flestum tilvikum aðstoðar starfsmanna stéttarfélaga við kröfugerð sína. Fullyrða má að fátítt er að lýst sé vísvitandi röngum kröfum. Jafnframt hafa reglur 2. mgr. 5. gr. laga nr. 53/1993, um hámark krafna, þau áhrif að kröfuhöfum stoðar almennt ekki að gefa upp hærri laun en þeir eiga raunverulega að fá greidd. Almennt má því segja að ekki sé mikið um að kröfuhafar reyni að misnota sjóðinn en rétt er að taka fram að skv. 17. gr. laga nr. 53/1993 varðar slík misnotkun þungum sektum, auk þess að geta varðað við almenn hegningarlög.
Hins vegar má segja að of mikið sé um það að vinnuveitendur reyni of lengi að halda áfram rekstri þótt ekki séu fyrir hendi fjármunir til að standa skil á launum og launatengdum gjöldum. Í mörgum tilvikum er þá einnig um að ræða vanskil á vörslusköttum og er ávallt nokkuð um að slík háttsemi sæti lögreglurannsókn og ákæru, að frumkvæði skattyfirvalda, skiptastjóra þrotabús eða einstakra kröfuhafa.
Í nýju frumvarpi til laga um ábyrgðasjóð launa sem lagt verður fram á yfirstandandi þingi verður reynt að sníða helstu vankanta af gildandi lögum, meðal annars til að hindra misnotkun.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 273 — 105. mál.
Svar

| Atvinnugrein | Kr. | |
| A | Landbúnaður, dýravörur, skógrækt | 238.016 |
| B | Fiskveiðar | 29.979.126 |
| DA | Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður | 17.847.387 |
| DB | Textíl- og fataiðnaður | 15.557.427 |
| DC | Leðuriðnaður | 2.631.624 |
| DD | Trjáiðnaður | 9.707.282 |
| DE | Pappírsiðnaður og útgáfustarfsemi | 18.824.616 |
| DH | Gúmmí- og plastvöruframleiðsla | 16.003.695 |
| DJ | Málmiðnaður | 5.209.432 |
| DK | Vélsmíði og vélaviðgerðir | 33.110.278 |
| DL | Rafmagns- og rafeindaiðnaður | 15.633.273 |
| DM | Framleiðsla samgöngutækja | 7.459.769 |
| DN | Húsgagnaiðnaður og annar ótalinn iðnaður | 4.362.885 |
| F | Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 47.043.705 |
| G | Verslun og ýmis viðgerðaþjónusta | 60.705.910 |
| H | Hótel- og veitingahúsarekstur | 16.412.341 |
| I | Samgöngur og flutningar | 7.896.275 |
| K | Fasteignaviðskipti, leigustarfsemi | 34.595.987 |
| O | Önnur samfélagsþjónusta, félagastarfsemi | 8.550.163 |
| P2 | Ótilgreind starfsemi | 2.525.802 |
| Samtals | 354.294.993 | |
Tafla 2. Skipting eftir atvinnugreinum 2001.
| Atvinnugrein | Kr. | |
| A | Landbúnaður, dýravörur, skógrækt | 762.276 |
| B | Fiskveiðar | 4.163.754 |
| C | Námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 8.013 |
| DA | Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður | 18.088.252 |
| DB | Textíl- og fataiðnaður | 19.889.153 |
| DC | Leðuriðnaður | 1.136.745 |
| DD | Trjáiðnaður | 528.052 |
| DE | Pappírsiðnaður og útgáfustarfsemi | 30.166.474 |
| DH | Gúmmí- og plastvöruframleiðsla | 1.758.719 |
| DJ | Málmiðnaður | 35.258.945 |
| DK | Vélsmíði og vélaviðgerðir | 7.084.285 |
| DL | Rafmagns- og rafeindaiðnaður | 4.577.162 |
| DM | Framleiðsla samgöngutækja | 518.475 |
| DN | Húsgagnaiðnaður og annar ótalinn iðnaður | 144.477 |
| F | Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 41.517.828 |
| G | Verslun og ýmis viðgerðaþjónusta | 78.666.084 |
| H | Hótel- og veitingahúsarekstur | 62.314.252 |
| I | Samgöngur og flutningar | 43.705.455 |
| J | Fjármálaþjónusta | 11.311.989 |
| K | Fasteignaviðskipti, leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 97.063.411 |
| M | Fræðslustarfsemi | 186.253 |
| O | Önnur samfélagsþjónusta, félagastarfsemi | 15.429.071 |
| P2 | Ótilgreind starfsemi | 11.029.278 |
| Samtals | 485.308.403 | |
2. Hve mikið hafa greiðslur úr ábyrgðasjóði launa aukist frá 1. janúar 1998 til 1. október 2002?
Í töflu 3 er að finna yfirlit um heildargreiðslur úr ábyrgðasjóði árin 1998–2001 og fyrstu níu mánuði þessa árs. Árið 1998 námu greiðslur úr sjóðnum rúmlega 137 millj. kr. en áætlaðar greiðslur á þessu ári nema um 600 millj. kr.
Tafla 3. Greiðslur úr ábyrgðasjóði 1998–2002.
| Ár | Kr. | |
| 1998 | 137.675.538 | |
| 1999 | 214.562.003 | |
| 2000 | 172.582.809 | |
| 2001 | 354.294.993 | |
| 2002 | (9 mánuðir) | 485.308.403 |
3. Hver var árlegur fjöldi fyrirtækja síðustu fimm ár sem urðu gjaldþrota og ávísað var á greiðslum úr ábyrgðasjóði launa, skipt eftir starfsgreinum?
Upplýsingar liggja ekki fyrir um skiptingu fyrirtækja ef tir starfsgreinum á árinu 1998. Að öðru leyti vísast til töflu 4 en tekið skal fram að fjöldi fyrirtækja á þessu ári miðast við fyrstu níu mánuði þess.
Tafla 4. Árlegur fjöldi fyrirtækja miðað við úrskurðardag gjaldþrots frá 1999–2002.
| Atvinnugrein | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | |
| A | Landbúnaður, dýravörur, skógrækt | 3 | 1 | ||
| B | Fiskveiðar | 2 | 9 | 9 | 2 |
| C | Námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 1 | 1 | ||
| DA | Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður | 14 | 14 | 14 | 7 |
| DB | Textíl- og fataiðnaður | 2 | 2 | 3 | 3 |
| DC | Leðuriðnaður | 1 | |||
| DD | Trjáiðnaður | 1 | 2 | 1 | |
| DE | Pappírsiðnaður og útgáfustarfsemi | 5 | 6 | 6 | 11 |
| DG | Efnaiðnaður | 1 | |||
| DH | Gúmmí- og plastvöruframleiðsla | 2 | 2 | 2 | |
| DI | Gler-, leir- og steinefnaiðnaður | 1 | 1 | ||
| DJ | Málmiðnaður | 4 | 6 | 2 | |
| DK | Vélsmíði og vélaviðgerðir | 2 | 3 | ||
| DL | Rafmagns- og rafeindaiðnaður | 1 | 1 | 2 | |
| DM | Framleiðsla samgöngutækja | 3 | |||
| DN | Húsgagnaiðnaður og annar ótalinn iðnaður | 1 | 3 | 2 | |
| F | Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 12 | 15 | 26 | 28 |
| G | Verslun og ýmis viðgerðaþjónusta | 20 | 29 | 52 | 44 |
| H | Hótel- og veitingahúsarekstur | 17 | 25 | 24 | 22 |
| I | Samgöngur og flutningar | 6 | 9 | 7 | |
| J | Fjármálaþjónusta | 1 | |||
| K | Fasteignaviðskipti, leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 6 |
10 |
26 |
17 |
| M | Fræðslustarfsemi | 1 | 1 | 1 | |
| O | Önnur samfélagsþjónusta, félagastarfsemi | 4 | 6 | 11 | 13 |
| P2 | Ótilgreind starfsemi | 1 | 6 | 4 | 7 |
| Samtals | 86 | 141 | 209 | 174 | |