Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 175. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 321 — 175. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ragnarsdóttur um menningarmál á landsbyggðinni.
1. Hefur verið unnin aðgerðaáætlun í samræmi við skýrslu samstarfshóps um menningarmál á landsbyggðinni frá október 2000 og hvaða verkefni sem lögð eru til í skýrslunni eru þegar komin til framkvæmda?
Í skýrslu um menningarmál á landsbyggðinni, sem menntamálaráðherra lagði fram á Alþingi í október 2000 og gerð var í samvinnu menntamálaráðuneytis, Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga, eru gerðar tillögur um stefnumótun, aðstöðu, sjóði og styrki og um fjölgun starfa. Skýrslan var send sveitarstjórnum í landinu og öðrum þeim sem að menningarmálum starfa. Ekki hefur verið unnin sérstök aðgerðaáætlun í kjölfar skýrslunnar enda ætlunin að ríki og sveitarfélög sem bera lögbundna ábyrgð á málaflokknum geri sínar áætlanir og framkvæmi tillögurnar eftir því sem þurfa þykir.
Menntamálaráðuneytið hefur unnið að framkvæmd margra þeirra tillagna sem fram koma í skýrslunni og eiga sérstaklega við um verksvið ráðuneytisins, bæði í samstarfi við sveitarfélög og að eigin frumkvæði. Nauðsynlegt þótti að standa vel að kynningu skýrslunnar og var það gert á ráðstefnu sem samstarfsaðilarnir stóðu að vorið 2001 á Seyðisfirði undir nafninu „Menningarlandið“. Á þeirri ráðstefnu, sem 140 manns sóttu alls staðar að af landinu, var m.a. fjallað um stöðu og framtíðarhorfur í menningarmálum frá sjónarhóli þeirra er bera ábyrgð á og standa að menningarstarfi á landsbyggðinni auk þess sem vinnuhópar tóku tillögur í skýrslunni til nánari umfjöllunar. Voru niðurstöður ráðstefnunnar birtar á heimasíðu ráðuneytisins.
Á þessu ári hefur verið hrundið af stað verkefninu „opin menning“ sem nýtir upplýsingatækni til að veita almenningi aðgang að menningarefni á netinu. Á næsta ári mun þetta verkefni beinast að því að skrá menningarefni á landsbyggðinni á samræmdan hátt þannig að það nýtist við margs konar miðlun. Nýtt bókasafnskerfi sem þjóna mun öllum bókasöfnum í landinu verður tekið í notkun í desember á þessu ári og mun auka mjög aðgengi að öllum bókasafnskosti og margvíslegum gagnasöfnum og stórbæta þannig aðgengi landsbyggðarinnar að þjónustu bókasafna.
Með árangursstjórnunarsamningum hefur þjóðmenningarstofnunum verið gert að efla samstarf við landsbyggðina. Í því sambandi ber að nefna góðan árangur í uppbyggingu á Sarpi, gagnagrunnskerfi Þjóðminjasafnsins. Listahátíð í Reykjavík er einnig í auknum mæli að leita samstarfs við landsbyggðina sem henni er nú heimilt samkvæmt nýlegum reglum um hátíðina.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á menningarstarf ungs fólks, m.a. varð hugmyndin að Íslandsleikhúsi ungs fólks til á ráðstefnunni um „Menningarlandið“ og hefur leikhúsið nú starfað tvö sumur í samstarfi við sveitarfélög víðs vegar um landið og vaxið fiskur um hrygg. Þá hefur menntamálaráðherra nýlega skipað nefnd sem hefur það hlutverk að gera úttekt á stöðu félags- og tómstundamála ungs fólks á Íslandi. Í nokkrum sveitarfélögum hefur verið komið á fót upplýsinga- og menningarhúsum fyrir ungt fólk yfir sextán ára aldri. Sum þeirra eru alfarið rekin af sveitarfélögum en önnur í samstarfi sveitarfélaga, félagasamtaka og einstaklinga. Auk þess var ráðstefna um listir og skapandi starf í skólum haldin 2001 í samvinnu við Bandalag íslenskra listamanna, Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga undir yfirskriftinni „Fjársjóður til framtíðar“.
Í skýrslunni um menningarmál á landsbyggðinni er lögð áhersla á skýra stefnumótun stjórnvalda í menningarmálum. Til að mæta brýnni þörf fyrir stefnumótun í minja- og safnamálum ákvað ráðuneytið árið 2001 að fela Þjóðminjasafni Íslands það verkefni. Niðurstöður verða lagðar fram fyrir árslok. Sama ár skipaði þáverandi menntamálaráðherra hóp til að fara yfir lög um starfslaun listamanna með það í huga hvort ástæða sé til breytinga á þeim. Er tillagna og álits hópsins að vænta innan tíðar.
Endurbygging gamalla húsa hefur fengið aukinn drifkraft á undanförnum árum, vegna aukinna fjárveitinga til Húsafriðunarsjóðs og öflugs stuðnings Alþingis sem hefur ekki síður haft mikið að segja.
Menningarborgarsjóður var stofnaður 2001. Hlutverk sjóðsins er að úthluta styrkjum til nýsköpunarverkefna á sviði lista, menningarverkefna á vegum sveitarfélaga á landsbyggðinni og menningarverkefna fyrir börn og ungt fólk. Í fjárlagafrumvarpi 2003 er lagt til að sjóðurinn fái aukið fé til að geta tekið við verkefnum á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og fylgt eftir tillögum í skýrslu sem samgönguráðuneytið lét gera um það málefni. Í stjórn Menningarborgarsjóðs sitja fulltrúar ríkis, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Um aðstöðu fyrir menningarstarfsemi er vísað til munnlegs svars ráðherra 6. nóvember við fyrirspurn um byggingu menningarhúsa á landsbyggðinni, sem er 92. mál þessa löggjafarþings.
2. Hvert er framtíðarhlutverk Menningarsjóðs félagsheimila?
Menningarsjóður félagsheimila starfar samkvæmt ákvæðum laga nr. 107/1970, um félagsheimili, með áorðnum breytingum. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að menningarstarfi í félagsheimilum og öðrum þeim stöðum sem henta menningarstarfi. Sjóðurinn skal stuðla að leikstarfsemi, tónleikahaldi, listsýningum, bókmenntakynningum og hvers konar annarri menningarstarfsemi.
Menningarsjóður félagsheimila er mikilvægur fyrir menningarstarf utan höfuðborgarsvæðisins. Úr honum eru veittir ferðastyrkir til einstakra listamanna og hópa, bæði atvinnumanna og áhugamanna. Á síðustu árum hefur umsóknum fjölgað talsvert og kemur þar margt til, aukinn áhugi á listkynningum í skólum, menningar- og listastarf aldraðra, aukin þekking á sjóðnum og meiri áhugi atvinnulistamanna á að fara um landið með list sína.
Nokkuð hefur verið rætt um framtíðarhlutverk sjóðsins. Reglur hans eru gamlar og þeim þarf að breyta í takt við nýja tíma og breyttar áherslur. Rætt hefur verið um að útvíkka starfsemi sjóðsins þannig að hún nái til dæmis einnig til listastarfs í skólum og tengist betur verkefninu „Tónlist fyrir alla“ og fé sem Félag íslenskra tónlistarmanna hefur fengið til tónleikahalds á landsbyggðinni. Þá hefur verið rætt um að skoða starfsemi sjóðsins með tilliti til verksviðs Menningarborgarsjóðs. Hvað sem þessum framtíðaráformum líður er ljóst að standa þarf vörð um meginhlutverk sjóðsins sem er annars vegar að styrkja hópa áhugamanna, kóra og leikfélaga til ferða um landið og hins vegar að styrkja atvinnulistamenn til að fara með list sína um allt land. Ráðuneytið hefur þessi mál til skoðunar.
Félagsheimilin eru ekki í eigu ríkisins en hins vegar hefur þurft að leita eftir formlegri heimild ríkisins þegar þau hafa verið seld, þar sem ríkið lagði fé til byggingar þeirra á sínum tíma.
Menningarsjóður félagsheimila fær 8,7 millj. kr. á fjárlögum 2002.
3. Við hve mörg sveitarfélög hefur ríkið gert menningarsamninga? Verða slíkir samningar gerðir við fleiri sveitarfélög á næstunni? Ef svo er, hver eru þau?
Mikilvægt er að sveitarfélög móti sér menningarstefnu sem hluta af lögbundnum verkefnum, ætli þau sér að leita samninga við ríkið um samvinnu í menningarmálum.
Menningarsamningur við Akureyri, hinn fyrsti sinnar tegundar, tók gildi 1997. Núgildandi samningur fellur úr gildi um næstu áramót en stefnt er að því að endurnýja hann. Því fé sem varið er til samningsins er fyrst og fremst ætlað að standa að hluta undir starfsemi Leikfélags Akureyrar sem eina atvinnuleikhússins utan höfuðborgarsvæðisins, og styrkja Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Listasafn Akureyrar.
Á síðastliðnu ári var undirritaður þriggja ára samningur við öll 16 sveitarfélögin á Austurlandi og tók hann gildi á þessu ári. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf á Austurlandi og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga við slíkt starf í einn farveg. Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Austurlandi er skipt í fjögur samstarfssvæði samkvæmt sérstökum samningi milli sveitarfélaganna og er Menningarráð Austurlands samstarfsvettvangur þeirra. Hlutverk ráðsins er að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Austurlandi og hafa eftirlit með framkvæmd samningsins. Menningarráðið hefur ráðið til sín menningarfulltrúa í fullt starf.
Samningsviðræður við sveitarfélög á Vesturlandi um gerð menningarsamnings eru langt komnar. Í upphafi þeirra óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir því að kannaðar yrðu forsendur þess að Vestfirðingar yrðu einnig aðilar að samningnum. Mat þeirra og Vestlendinga var að hentugra væri að hvor landshluti fyrir sig ynni að undirbúningi menningarsamnings við ráðuneytið og tók ráðuneytið þau sjónarmið til greina. Ísafjörður hefur lýst yfir áhuga á menningarsamningi við ríkið, en formleg ósk þess efnis hefur ekki borist.
Reykjanesbær og Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi hafa óskað eftir menningarsamningi við ríkið sem yrði sambærilegur þeim sem gerðir hafa verið. Menntamálaráðuneytið hefur lýst því yfir að það sé reiðubúið til viðræðna um samstarf, en ráðuneytið hefur jafnframt óskað eftir að upplýsingar um stefnu og markmið í menningarmálum liggi fyrir áður en viðræður hefjast. Ráðuneytið hefur einnig áréttað að vilji þess til samninga byggist á því að um samning við fleiri en eitt sveitarfélag í sama landshluta sé að ræða. Á þeirri forsendu hvatti ráðuneytið til viðræðna milli fulltrúa sveitarfélaga á Suðurlandi og fulltrúa bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum til að kanna kosti þess að ganga sameiginlega til samninga um menningarsamstarf. Ráðuneytið hefur ekki óskað eftir því á þessu stigi að kannaðir verði kostir þess að einn menningarsamningur nái til alls þessa svæðis, þ.e. Suðurlands og Reykjaness.
Nýlega barst ráðuneytinu í hendur ályktun Eyþings um skipun starfshóps til að undirbúa gerð samnings við ráðuneytið um eflingu menningarmála á Norðurlandi.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 321 — 175. mál.
Svar