Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 177. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 386 — 177. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ragnarsdóttur um byggðaáætlun fyrir Vestfirði.
1. Mun ráðherra beita sér fyrir því að Byggðastofnun verði heimilað í lögum að veita stofnstyrki til nýsköpunar atvinnulífs og að hluta til áhættufjármagn til nýsköpunar- og þróunarstarfs, sbr. byggðaáætlun fyrir Vestfirði frá mars 2002?
Byggðastofnun er heimilt samkvæmt lögum að veita stofnstyrki til nýsköpunar atvinnulífs. Möguleikar Byggðastofnunar til að veita stofnstyrki takmarkast af tvennu. Í fyrsta lagi þurfa styrkirnir að vera í samræmi við reglur EES-samningsins. Í því felst m.a. að styrkina má einungis veita til stofnunar fyrirtækja á tilteknum svæðum og þá mega þeir ekki nema hærri fjárhæð en tilteknu hlutfalli af heildarfjárfestingunni. Í öðru lagi takmarkast styrkveitingar Byggðastofnunar af árlegum fjárveitingum til hennar. Allt frá árinu 1998 hefur stærstur hluti árlegra framlaga Byggðastofnunar verið veittur til starfsemi atvinnuþróunarfélaga. Þá fékk stofnunin 300 millj. kr. árlega á árunum 1999–2001 til stofnunar eignarhaldsfélaga á landsbyggðinni. Að öðru leyti hefur fjármálaleg umsýsla Byggðastofnunar einkum verið á sviði lánveitinga til fyrirtækja á landsbyggðinni.
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að komið verði á fót þróunarsjóði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafi það hlutverk að styðja við nýsköpun og endurskipulagningu fyrirtækja, sbr. fyrrgreinda áætlun?
Ein mikilvægasta breytingin sem boðuð hefur verið um langt árabil á stuðningsumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja er að finna í þremur væntanlegum stjórnarfrumvörpum um nýskipan opinbers stuðnings við vísindi og nýsköpun. Eitt þeirra er frumvarp til laga um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins sem verður á forræði iðnaðarráðherra. Meðal nýmæla í því frumvarpi er tillaga um að stofnaður verði sérstakur tækniþróunarsjóður. Hlutverk sjóðsins verður að styðja þróunarstarf og nýsköpun í íslensku atvinnulífi á öllu landinu, m.a. með því að:
a. styrkja tækniþróun og tengdar rannsóknir í þágu nýsköpunar atvinnulífsins, m.a. í samstarfi við stofnanir, háskóla og fyrirtæki,
b. styrkja uppbyggingu sprotafyrirtækja og eiga aðild að þeim á frumstigi nýsköpunar,
c. fjármagna átaksverkefni og markáætlanir á einstökum tæknisviðum til að treysta tæknilegar undirstöður atvinnuveganna, einstakar greinar þeirra eða þvert á greinaskiptingu þeirra,
d. styrkja lítil verkefni á vegum einstaklinga og smáfyrirtækja sem eru líkleg til að verða atvinnu- og tekjuskapandi og arðbær þrátt fyrir áhættu í upphafi,
e. kosta greiningu á stöðu nýsköpunar og gerð áætlana til styrktar henni.
Nýsköpun, einkum nýsköpun frumherja og í litlum fyrirtækjum, missir oft marks ef ekki er til staðar fagleg handleiðsla og leiðsögn um stofnun og rekstur fyrirtækja auk upplýsinga um tækninýjungar, innleiðingu þeirra o.fl. Á þessu er tekið í framangreindu frumvarpi með tillögu um stofnun nýsköpunarmiðstöðvar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Hlutverk nýsköpunarmiðstöðvarinnar á m.a. að vera að:
a. eiga frumkvæði að samstarfi þeirra opinberu aðila sem mynda stoðkerfi nýsköpunar fyrir atvinnulífið,
b. móta sértæk stuðningsverkefni sem stuðla að bættum rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja og framgangi nýrra viðskiptahugmynda sem spretta af hugkvæmni einstaklinga eða rannsóknum og þróunarstarfi háskóla, stofnana og fyrirtækja,
c. starfrækja frumkvöðlasetur til að styðja framgang nýrra hugmynda í samræmi við reglur sem iðnaðarráðherra samþykkir,
d. annast miðlun hvers konar hagnýtrar þekkingar um stofnun og rekstur fyrirtækja,
e. vera tengiliður við þá sem stunda grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir er leitt geta til nýsköpunar í atvinnulífinu,
f. miðla þekkingu um innlendar og erlendar tækninýjungar og aðgerðir sem auka framleiðni,
g. beita sér fyrir hagnýtingu vísindalegrar þekkingar,
h. aðstoða við öflun framtaksfjármagns til verkefna sem stuðla að nýsköpun og aukinni verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi.
Að því er stefnt að frumvörpin þrjú um nýskipan opinbers stuðnings við vísindi og nýsköpun verði lögð fram á þessu þingi.
3. Mun ráðherra beita sér fyrir því að gert verði sérstakt svæðisskipulag fyrir Vestfirði í heild, sbr. sömu áætlun?
Vinna við gerð sérstakrar byggðaáætlunar fyrir Eyjafjörð er hafin. Eðlilegt er að bíða með gerð sérstakrar byggðaáætlunar fyrir Vestfirði þar til reynsla hefur fengist af vinnu við gerð byggðaáætlunar fyrir Eyjafjörð.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 386 — 177. mál.
Svar