Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 369. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 415  —  369. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um Jarðasjóð.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hver var efnahagsstaða Jarðasjóðs um síðustu áramót?
     2.      Hvernig aflar sjóðurinn sér tekna og hvernig er fjármunum hans ráðstafað?
     3.      Hversu margar jarðir hefur sjóðurinn keypt á þessu ári?
     4.      Hversu margar jarðir hefur sjóðurinn keypt eða selt sl. fimm ár og hverjar eru þær jarðir?


Skriflegt svar óskast.