Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 276. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 430  —  276. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Örlygs Hnefils Jónssonar um fjölgun, vistun og flutning opinberra starfa og stofnana.

     1.      Hver var fjölgun starfa á vegum ráðuneytisins árin 1991–2000 og hvernig skiptust störfin milli höfuðborgar og landsbyggðar?

Heildarársverk – aukning eða minnkun milli ára
Stofnun Sveitarfélag 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000
Forsætisráðuneytið Reykjavík 18,62 18,35 17,17 22,73 21,30 21,05 21,49 27,09 35,54 40,11
0,99 -0,27 -1,18 5,56 -1,43 -0,25 0,44 5,6 8,45 4,57
Húsameistari ríkisins Reykjavík 26,03 23,97 21,84 20,57 20,35 19,58 8,67 1,14
-1,43 -2,06 -2,13 -1,27 -0,22 -0,77 -10,91 -7,53 -1,14
Ríkislögmaður Reykjavík 5,1
Umboðsmaður barna Reykjavík 1,99 2,44 2,82 3,1 3,04 3,58
0,45 0,38 0,28 -0,06 0,54
Þjóðmenningarhúsið Reykjavík 0,76 0,69 2,7 7,61
-0,07 2,01 4,91
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum Þingvallahreppur
5,87

5,41

5,93

6,88

6,13

6,57

6,93

7,58

8,27

6,59
-1,52 -0,46 0,52 0,95 -0,75 0,44 0,36 0,65 0,69 -1,68
Þjóðhagsstofnun Reykjavík 21,5 21,5 21,2 21,3 22 21,4 19,2 19,7 20,8 19,2
0 0 -0,3 0,1 0,7 -0,6 -2,2 0,5 1,1 -1,6

    Fjölgun ársverka milli áranna 1993–1994 má rekja til stofnunar norrænu ráðherranefndarinnar. Fjölgunin árin 1997–2000 stafar af ýmsum sérverkefnum á vegum ráðuneytisins vegna ráðstefnunnar Konur og lýðræði, óbyggðanefndar, landafundanefndar, kristnihátíðarnefndar og Upplýsingasamfélagsins. Einnig færðust tveir starfsmenn húsameistara ríkisins undir ráðuneytið.
    Embætti húsameistara ríkisins var lagt formlega niður í árslok 1996.
    Ríkislögmaður heyrði undir fjármálaráðuneytið fram til ársins 2000 en þá var embættið fært til forsætisráðuneytis.
    Embætti umboðsmanns barna var stofnsett í janúar 1995.
    Þjóðmenningarhúsið var stofnsett 1997 en eiginleg starfsemi hófst ekki fyrr en árið 2000 sem skýrir aukningu það ár.
    Tölur vegna Byggðastofnunar sem heyrði undir forsætisráðuneytið mestallan þann tíma sem spurt er um, eða til ársins 2000, er að finna í svari iðnaðarráðherra (þskj. 422, 281. mál þessa löggjafarþings) en stofnunin var flutt til iðnaðarráðuneytis í ársbyrjun 2000.

     2.      Hvaða nýju stofnanir voru vistaðar á vegum ráðuneytisins á landsbyggðinni árin 1991– 2000 og hvar?
     3.      Hvað hafa fylgt þessum stofnunum mörg ný störf, hvar eru þau vistuð og hvernig skiptast þau milli einstakra kaupstaða og sýslna?
    Engar nýjar stofnanir voru vistaðar á vegum ráðuneytisins á landsbyggðinni árin 1991–2000.

     4.      Hvaða stofnanir voru fluttar á vegum ráðuneytisins frá höfuðborginni til landsbyggðar árin 1991–2000 og hvert?

     5.      Hvað hafa fylgt þessum stofnunum mörg störf, hvar eru þau vistuð og hvernig skiptast þau milli einstakra kaupstaða og sýslna?
    Engar stofnanir á vegum ráðuneytisins voru fluttar í heild sinni til landsbyggðar árin 1991–2000. Hins vegar var Þróunarsvið Byggðastofnunar lagt niður í Reykjavík og flutt á Sauðárkrók 1. júlí 1998. Við stofnun Þróunarsviðs Byggðastofnunar á Sauðárkróki fylgdu 6–7 stöðugildi.