Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 277. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 438 — 277. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Örlygs Hnefils Jónssonar um fjölgun, vistun og flutning opinberra starfa og stofnana.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver var fjölgun starfa á vegum ráðuneytisins árin 1991–2000 og hvernig skiptust störfin milli höfuðborgar og landsbyggðar?
2. Hvaða nýju stofnanir voru vistaðar á vegum ráðuneytisins á landsbyggðinni árin 1991– 2000 og hvar?
3. Hvað hafa fylgt þessum stofnunum mörg ný störf, hvar eru þau vistuð og hvernig skiptast þau milli einstakra kaupstaða og sýslna?
4. Hvaða stofnanir voru fluttar á vegum ráðuneytisins frá höfuðborginni til landsbyggðar árin 1991–2000 og hvert?
5. Hvað hafa fylgt þessum stofnunum mörg störf, hvar eru þau vistuð og hvernig skiptast þau milli einstakra kaupstaða og sýslna?
Skiptingu starfa á milli höfuðborgar og landsbyggðar á tímabilinu 1991–2000 má lesa úr töflunni.
Ekki var um vistun nýrra stofnana að ræða á tímabilinu. Vakin er athygli á því að á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins eru 22 sýslumannsembætti starfrækt utan höfuðborgarsvæðisins, sex héraðsdómstólar og þrjú fangelsi. Þá má einnig nefna að stofnanir kirkjunnar eru um land allt.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 438 — 277. mál.
Svar

Skipting starfa á milli höfuðborgar og landsbyggðar.
| 1991 | 2000 | Breyting | |
| Stöðugildi á höfuðborgarsvæðinu | 1.038,21 | 1.093,21 | 55 |
| Stöðugildi á landsbyggðinni | 682,81 | 685,66 | 2,85 |
| Stöðugildi samtals | 1.721,02 | 1.778,87 | 57,85 |