Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 230. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 515  —  230. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur um tilnefningu dómara í alþjóðasakamáladómstólinn.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hefur ríkisstjórnin í hyggju að tilnefna dómara til setu í alþjóðasakamáladómstólnum? Ef ekki, hvaða ástæður liggja að baki þeirri ákvörðun?

    Fyrsta kjör 18 dómara til setu í Alþjóðlega sakamáladómstólnum fer fram á framhaldsfundi aðildarríkjaþings Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn sem haldinn verður í New York dagana 3.–7. febrúar 2003. Hverju aðildarríki Rómarsamþykktarinnar er heimilt að tilnefna einn dómara, en frestur til þess rennur út 30. nóvember 2002. Hinn 27. nóvember 2002 höfðu 39 tilnefningar borist Sameinuðu þjóðunum, þar af 10 frá eftirtöldum ríkjum í svonefndum Vesturhópi: Belgíu, Bretlandi, Finnlandi, Frakklandi, Írlandi, Ítalíu, Kanada, Portúgal, Sviss og Þýskalandi. Fyrir liggur að hörð samkeppni verður um dómarasæti í Vesturhópnum en ekki er fyrir fram ljóst hve mörg sæti koma í hlut hópsins. Norðurlöndin hafa allajafna teflt fram sameiginlegum frambjóðendum til kjörs í alþjóðadómstóla og -nefndir. Er þessi aðferð talin vænlegri til árangurs en sú leið að norrænu ríkin bjóði fram hvert fyrir sig og í samkeppni hvert við annað. Almennt hefur þetta fyrirkomulag gefist vel og var ekki talið rétt að víkja frá því við framboð til kjörs í Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Hafa ber í huga að norrænu ríkin unnu náið saman að gerð Rómarsamþykktarinnar og sjónarmið þeirra í málefnum Alþjóðlega sakamáladómstólsins fara mjög saman. Norðurlöndin náðu í september 2002 samkomulagi um að Erkki Kourula, þjóðréttarfræðingur og sendiherra í finnska utanríkisráðuneytinu, yrði sameiginlegur norrænn frambjóðandi til kjörs í Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Var hann tilnefndur sem slíkur af hálfu Finnlands með orðsendingu til Sameinuðu þjóðanna 1. nóvember 2002.