Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 66. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 576  —  66. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2002.

Frá 2. minni hluta fjárlaganefndar.



    Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2002 kemur nú til 3. umræðu. Vísað er til nefndarálits 2. minni hluta við 2. umræðu fjáraukalaga. Hér er ítrekað að megnið af þeim fjárútlátum sem fjáraukalagafrumvarpið kveður á um mátti sjá fyrir við gerð fjárlaga fyrir ári og þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs bentu á við fjárlagaumræðuna. Þá eru ákveðnar fjárveitingar í frumvarpinu þess eðlis að þær ættu frekar heima í næstu fjárlögum ef þær eru þá réttlætanlegar á annað borð. Sem dæmi má nefna tillögu um 18 millj. kr. til iðnaðarráðuneytisins vegna innleiðingar nýrra raforkulaga og breytts fyrirkomulags í raforkumálum. Frumvarp um þessar breytingar hefur enn ekki verið flutt á Alþingi, hvað þá samþykkt.
    Nú við 2. umræðu fjáraukalaga kemur fram tillaga um 220 millj. kr. fjárheimild til einkavæðingarverkefna. Er þar tilgreind vinna við sölu Landsbankans og Búnaðarbankans. Bankarnir voru til sölu við afgreiðslu fjárlaga fyrir 2002. Einkavæðingarnefnd hefur ákveðið fjármagn til ráðstöfunar í fjárlögum. Vinna við bankasöluna getur ekki flokkast undir óvænt útgjöld og fjárveiting vegna hennar í fjáraukalögum samrýmist því ekki lögum um fjárreiður ríkisins. 2. minni hluti óskaði eftir því í fjárlaganefnd að fá rökstuðning fyrir þessum 220 millj. kr. og nánari sundurliðun kostnaðar sem hér hafði verið efnt til. Þessum beiðnum hefur enn ekki verið svarað af hálfu forsætisráðuneytisins og er sú framkoma ráðuneytisins harðlega gagnrýnd.

Fjáraukalög að vori og að hausti.
    Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs leggja áherslu á hversu brýnt það er að taka upp betri vinnubrögð við fjárlagagerðina. Bent hefur verið á þær aðstæður að Alþingi hafi samþykkt lög t.d. á vorþingi sem krefjast útgjalda á sama ári og getur því verið nauðsynlegt að bregðast strax við með samþykkt fjáraukalaga. Fjárreiðulögum er illa framfylgt nema til komi sú breytta tilhögun að Alþingi samþykki fjáraukalög í lok vorþings og svo aftur í upphafi haustþings ef nauðsyn krefur. Hér skiptir ekki máli hvort meiri hluti ríkisstjórnarinnar sé nægur til að tryggja ákvarðanir framkvæmdarvaldsins heldur er hitt aðalatriðið að farið sé að lögum og ákvarðanir um aukin útgjöld teknar á þingræðislegan hátt.
    Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2002 var gert ráð fyrir að rekstrartekjur ríkissjóðs á árinu yrðu 257,9 milljarðar kr. en samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs verði 268,2 milljarðar kr. Rekstrartekjur ríkissjóðs hafa því aukist um 10,3 milljarða kr. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2002 var gert ráð fyrir að rekstrargjöld yrðu 239,3 milljarðar kr. en samkvæmt þeim tillögum sem nú liggja fyrir við 3. umræðu fjáraukalaga eru þau áætluð rúmir 251,2 milljarðar kr. Rekstrargjöld ársins hafa því aukist um 11,8 milljarða kr. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2002 var gert ráð fyrir að rekstrarafgangur fjárlaga yrði rúmir 18,5 milljarðar kr. en samkvæmt því sem nú liggur fyrir við 3. umræðu fjáraukalaga er gert ráð fyrir að hann verði 16,9 milljarðar kr.
    Í f járlögum fyrir árið 2002 var gert ráð fyrir sölu eigna upp á rúma 15,5 milljarða kr. en nú við 3. umræðu fjáraukalaga er gert ráð fyrir að tekjur vegna sölu eigna verði 15,2 milljarðar kr. á árinu 2002. Meginhluti þessara meintu tekna er vegna sölu á hlutabréfum í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. Samkvæmt upplýsingum sem gefnar voru í fjárlaganefnd nema sölutekjur eigna á þessu ári um 6 milljörðum kr. Vinstri hreyfingin – grænt framboð telur með mjög villandi og með öllu óviðunandi vinnubrögð af hálfu stjórnarmeirihlutans að tekjur af þessum eignasölum, ef þá af þeim verður, verði færðar til tekna á þessu ári. Einungis hafa verið undirritaðar viljayfirlýsingar um kaup á áðurnefndum hlutabréfum. Ekki liggur fyrir hvenær kaupsamningar verða endanlega frágengnir og undirritaðir. En ljóst er að greiðslur fyrir þá sölu sem nú er fyrirhuguð munu ekki koma inn í ríkissjóð fyrr en á næsta ári ef af sölu verður. Ef sala eigna upp á rúma 15,3 milljarða kr. sem ráð er fyrir gert í endurskoðaðri tekjuáætlun er ekki tekin með er lítið eftir af rekstrarafgangi fjárlaga eða einungis 1,6 milljarðar kr.
    Fjárfesting á vegum ríkissjóðs dróst saman á milli áranna 2001 og 2002. Á árinu 2001 fjárfesti ríkissjóður fyrir rúma 17,3 milljarða kr. en á árinu 2002 er áætlað að ríkissjóður fjárfesti fyrir tæpa 16,9 milljarða kr. Hlutfall fjárfestingar af heildarútgjöldum ríkissjóðs var á árinu 2001 um 7,5% en áætlanir gera ráð fyrir að það verði einungis 6,8% í ár. Í því mikla góðæri sem verið hefur hér á landi miðað við yfirlýsingar forustumanna ríkisstjórnarinnar skýtur það skökku við að fjárfesting á vegum ríkissjóðs hafi dregist saman og má þar nefna fjárfestingar til vega- og flugmála.
    Heildarskuldir ríkissjóðs hafa aukist gríðarlega frá því þessi ríkisstjórn tók við völdum 1995. Á árinu 1995 voru heildarskuldir hins opinbera tæpir 268 milljarðar kr. en voru komnar í rúman 351 milljarð kr. í lok ársins 2001. Tekjuafgangur undanfarinna ára hefur því ekki verið notaður til að greiða niður skuldir heldur hefur hann farið í að greiða rekstrarútgjöld.
    Í tillögum ríkisstjórnar og meiri hluta fjárlaganefndar er lagt til að veitt verði 220 millj. kr. fjárveiting vegna kostnaðar við ráðgjöf, umsjón með sölu og frágangi skjala í tengslum við sölu á hlutabréfum ríkisins í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. Hér er ekki um neina smáupphæð að ræða en fyrir þessa upphæð t.d. má reka Hæstarétt í þrjú ár. Þegar Alþingi er krafið um að samþykkja svo háa upphæð verður það að fá upplýsingar um hvað standi þarna á bak við.
    Vinstri hreyfingin – grænt framboð vill árétta það sem fram kom í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga janúar til september 2001 og á jafnvel við í ár eins og í fyrra. Í þeirri skýrslu var gagnrýnd sú stefna að halda ríkisstofnunum í gíslingu með því að taka ekki á fjárhagsvanda þeirra, láta þær bera árum saman halla frá fyrri árum og halda þeim þannig í spennitreyju án þess þó að skipa þeim að loka eða leggja niður lögboðna þjónustu og verkefni sem þeim er gert að sinna við fullkomlega óviðunandi aðstæður. Þetta á meðal annars við í menntakerfinu þar sem háttalag ríkisstjórnarinnar veldur illbætanlegu tjóni á öllu menntakerfi landsmanna. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Endurskoðun ríkisreiknings 2001 er aftur áréttað um þetta atriði. Þar segir á bls. 155:
    „Eins og kunnugt er hafa fjárheimildir stofnana almennt verið hækkaðar eða lækkaðar eftir því hvort útgjöld árið á undan voru undir eða yfir fjárheimild á því ári. Tilgangur með flutningi fjárheimilda er að auka sveigjanleika stofnana til ráðstöfunar fjármuna. Ríkisendurskoðun hefur talið að setja þyrfti þak á flutning fjárheimilda vegna rekstrar á milli ára. Í skýrslu stofnunarinnar um framkvæmd fjárlaga janúar – september 2001 kom fram það álit að setja þyrfti ákveðnar reglur um hversu stóran hluta fjárheimilda megi flytja milli ára og hversu lengi. Þess væru mörg dæmi að stofnanir búi við skertar fjárveitingar sem nema tugum milljóna króna vegna halla fyrri ára og sem þær hafa velt frá einu ári til þess næsta. Þær ættu enga möguleika á að haga rekstri sínum í samræmi við fjárheimildir ef þær ættu að veita þá þjónustu sem þeim væri ætlað. Hins vegar væru engin áform um hvort og þá hvernig þessar stofnanir skyldu draga saman þjónustu til að rekstur þeirra falli innan fjárheimilda.
    Sjónarmið fjármálaráðuneytis hefur verið að ekki bæri að verðlauna stofnanir fyrir framúrkeyrslu með viðbótarfjárheimildum í lokafjárlögum. Skerðing fjárheimilda vegna hallareksturs veiti auk þess visst aðhald og knýi á um aðgerðir af hálfu stofnunar og ráðuneytis. Áður en orðið er við óskum ráðuneyta um fjárheimildir vegna nýrra verkefna sé bent á nauðsyn þess að taka á þeim fjárhagsvanda sem er til staðar.
    Í reynd má segja að með fyrrnefndri reglugerð um framkvæmd fjárlaga hafi ákveðin mörk verið sett um flutning fjárheimilda vegna halla en þar kemur fram ef útgjöld stefna í að fara fram úr 4% á árinu eigi að grípa til ráðstafana, annaðhvort að draga saman útgjöld það sem eftir er árs eða að tryggja stofnun auknar fjárheimildir. Með gildistöku reglugerðarinnar hefði mátt ætla að vandamál vegna óviðráðanlegs uppsafnaðs halla yrðu að mestu úr sögunni. Það liggur hins vegar fyrir að rekstur margra stofnana fór yfir 4% mörkin á árinu 2001 án þess að fyrir hafi legið að þeim yrðu tryggðar auknar heimildir eða þeim verið gert að draga saman kostnað og hefur ákvæðum reglugerðinnar því ekki verið framfylgt að þessu leyti.“

Fjárlögum lokað með bókhaldsbrellum.
    Þetta frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2002 ber fyrst og fremst vitni um óvönduð vinnubrögð við sjálfa fjárlagagerðina fyrir ári og skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart lögum um fjárreiður ríkisins. Í stað þess að taka á raunhæfan hátt á fjárþörf einstakra málaflokka og stofnana í fjárlögum er látið reka á reiðanum stefnulítið og séð til. Stærstu vandamálin eru svo leyst í fjáraukalögum.
    Sama gildir um tekjuhlið frumvarpsins. Nú í árslok eru væntanlegar tekjur af sölu ríkisfyrirtækja látnar stemma af þá útkomu í mismun tekna og gjalda sem ríkisstjórnin vill sjá og geta kynnt. Raunveruleikinn er samt allt annar. Ljóst er að um 9 milljarðar kr. sem færðir eru á tekjur þessa árs og eiga að koma inn fyrir sölu ríkisbankanna munu ekki skila sér fyrr en á næsta ári ef af sölu verður. Það verður því að teljast afar hæpin bókhaldsaðgerð að loka fjárlögum ársins 2002 með þeim hætti sem lagt er til að gert verði með samþykkt þessa frumvarps til fjáraukalaga fyrir árið 2002.

Alþingi, 4. des. 2002.



Jón Bjarnason.