Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 323. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 591  —  323. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 29/1995, um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnheiði Snorradóttur, Maríönnu Jónasdóttur og Jón Guðmundsson frá fjármálaráðuneyti.
    Umsagnir um málið hafa borist frá ríkisskattstjóra, Seðlabanka Íslands og Félagi löggiltra endurskoðenda.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á viðmiðun vaxta við endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru með lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.
    Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Hjálmar Árnason og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.     

Alþingi, 5. des. 2002.



Vilhjálmur Egilsson,


form., frsm.


Einar K. Guðfinnsson.


Árni R. Árnason.



Gunnar Birgisson.


Jóhanna Sigurðardóttir,


með fyrirvara.


Össur Skarphéðinsson,


með fyrirvara.



Ögmundur Jónasson,


með fyrirvara.