Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 448. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 643  —  448. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um samræmingu félagsþjónustu, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.

Frá Ástu Möller.



     1.      Telur ráðherra að flytja eigi félagsþjónustu, öldrunarþjónustu og heilsugæslu á eina hendi til sveitarfélaga í ljósi góðs árangurs af samræmingu þessara þjónustuþátta í reynslusveitarfélögunum Akureyri og Höfn í Hornafirði?
     2.      Hvaða breytinga er þörf á samningum milli ríkis og sveitarfélaga og á lögum og reglugerðum til þess að af slíkri samræmingu gæti orðið?


Skriflegt svar óskast.