Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 346. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 668 — 346. mál.
um félagamerki.
Stjórnvöld, stofnanir, félög eða samtök, sem hafa eftirlit með eða ákveða staðla fyrir vörur eða þjónustu, geta öðlast einkarétt til að nota eða heimila notkun auðkennis fyrir þær vörur eða þjónustu sem eftirlitið eða staðlarnir taka til.
Auðkenni þau sem lög þessi taka til nefnast félagamerki.
Umsókn um skráningu félagamerkis skal skila skriflega til Einkaleyfastofunnar sem annast skráningu félagamerkja. Umsókn skal fylgja tilskilið gjald.
Í umsókn skal tilgreina hvert merkið er, með mynd ef við á, og fyrir hvaða vöru eða þjónustu merkið óskast skráð. Einnig skal greina frá nafni eða heiti umsækjanda. Umsókn skal enn fremur vera í samræmi við reglugerðarákvæði um vörumerki eftir því sem við á. Reglur, sem gilda um notkun merkisins, skulu fylgja umsókn.
Í reglum þeim sem gilda um notkun merkisins skal m.a. koma fram:
a. hverjum sé heimilt að nota merkið og hvaða skilyrði séu fyrir slíkri heimild,
b. hvaða afleiðingar óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér og
c. hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið á óheimilan hátt.
Notkun félagamerkis af hálfu eins eða fleiri aðila, sem hafa heimild til að nota merkið, telst til notkunar í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga um vörumerki.
Úrskurðir áfrýjunarnefndar verða ekki bornir undir annað stjórnvald.
Ef aðilar máls óska að bera ákvörðun Einkaleyfastofunnar eða úrskurð áfrýjunarnefndar undir dómstóla ber þeim að höfða mál innan þriggja mánaða frá þeim degi sem Einkaleyfastofan tók ákvörðun sína eða áfrýjunarnefnd úrskurðaði í málinu.
Gjöld skulu standa straum af kostnaði við rekstur Einkaleyfastofunnar vegna málefna sem tengjast félagamerkjum og við þjónustu sem veitt er, m.a. í tengslum við umsóknir og skráningu félagamerkja, útskriftir úr skrám, afgreiðslur og endurrit.
Sektir samkvæmt lögum þessum má gera jafnt lögaðila sem einstaklingi. Lögaðila má ákvarða sekt án tillits til þess hvort sök verður sönnuð á starfsmann lögaðilans. Hafi starfsmaður lögaðila framið brot á lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim má einnig gera lögaðilanum sekt, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hefur hagnast á brotinu. Lögaðili ber ábyrgð á greiðslu sektar sem starfsmaður hans er dæmdur til að greiða vegna brota á lögum þessum, enda séu brot tengd starfi hjá lögaðilanum.
Með umsóknir sem berast Einkaleyfastofunni fyrir gildistöku laga þessara skal farið eftir eldri lögum.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 668 — 346. mál.
Frumvarp til laga
um félagamerki.
(Eftir 2. umr., 11. des.)
1. gr.
Félög eða samtök geta öðlast einkarétt fyrir félagsmenn sína til að nota í atvinnustarfsemi sameiginlegt auðkenni fyrir vörur eða þjónustu.Stjórnvöld, stofnanir, félög eða samtök, sem hafa eftirlit með eða ákveða staðla fyrir vörur eða þjónustu, geta öðlast einkarétt til að nota eða heimila notkun auðkennis fyrir þær vörur eða þjónustu sem eftirlitið eða staðlarnir taka til.
Auðkenni þau sem lög þessi taka til nefnast félagamerki.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Umsókn um skráningu félagamerkis skal skila skriflega til Einkaleyfastofunnar sem annast skráningu félagamerkja. Umsókn skal fylgja tilskilið gjald.
Í umsókn skal tilgreina hvert merkið er, með mynd ef við á, og fyrir hvaða vöru eða þjónustu merkið óskast skráð. Einnig skal greina frá nafni eða heiti umsækjanda. Umsókn skal enn fremur vera í samræmi við reglugerðarákvæði um vörumerki eftir því sem við á. Reglur, sem gilda um notkun merkisins, skulu fylgja umsókn.
Í reglum þeim sem gilda um notkun merkisins skal m.a. koma fram:
a. hverjum sé heimilt að nota merkið og hvaða skilyrði séu fyrir slíkri heimild,
b. hvaða afleiðingar óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér og
c. hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið á óheimilan hátt.
5. gr.
6. gr.
Ákvæði 25. gr. laga um vörumerki gilda um notkunarskyldu félagamerkis.Notkun félagamerkis af hálfu eins eða fleiri aðila, sem hafa heimild til að nota merkið, telst til notkunar í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga um vörumerki.
7. gr.
Mál vegna brota gegn félagamerki getur aðeins sá höfðað sem er eigandi merkisins. Sá sem brýtur gegn félagamerki og er skaðabótaskyldur samkvæmt lögum um vörumerki skal bæta það tjón sem eigandi merkis, eða sá sem hefur rétt til að nota það, verður fyrir.8. gr.
Úrskurðir áfrýjunarnefndar verða ekki bornir undir annað stjórnvald.
Ef aðilar máls óska að bera ákvörðun Einkaleyfastofunnar eða úrskurð áfrýjunarnefndar undir dómstóla ber þeim að höfða mál innan þriggja mánaða frá þeim degi sem Einkaleyfastofan tók ákvörðun sína eða áfrýjunarnefnd úrskurðaði í málinu.
9. gr.
Gjöld skulu standa straum af kostnaði við rekstur Einkaleyfastofunnar vegna málefna sem tengjast félagamerkjum og við þjónustu sem veitt er, m.a. í tengslum við umsóknir og skráningu félagamerkja, útskriftir úr skrám, afgreiðslur og endurrit.
10. gr.
Sá sem af ásetningi brýtur gegn félagamerkjarétti skal sæta sektum. Eftir atvikum getur refsing verið fangelsi í allt að þrjá mánuði.Sektir samkvæmt lögum þessum má gera jafnt lögaðila sem einstaklingi. Lögaðila má ákvarða sekt án tillits til þess hvort sök verður sönnuð á starfsmann lögaðilans. Hafi starfsmaður lögaðila framið brot á lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim má einnig gera lögaðilanum sekt, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hefur hagnast á brotinu. Lögaðili ber ábyrgð á greiðslu sektar sem starfsmaður hans er dæmdur til að greiða vegna brota á lögum þessum, enda séu brot tengd starfi hjá lögaðilanum.
11. gr.
Með umsóknir sem berast Einkaleyfastofunni fyrir gildistöku laga þessara skal farið eftir eldri lögum.