Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 369. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 696 — 369. mál.
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Gísla S. Einarssonar um Jarðasjóð.
1. Hver var efnahagsstaða Jarðasjóðs um síðustu áramót?
Efnahagsstaða Jarðasjóðs um síðustu áramót, 31. desember 2001, var neikvæð um 155.506.000 kr.
2. Hvernig aflar sjóðurinn sér tekna og hvernig er fjármunum hans ráðstafað?
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 34/1999, um Jarðasjóð, eru tekjur sjóðsins þessar:
a. andvirði seldra ríkisjarða.
b. afgjöld ríkisjarða sem eru á forræði landbúnaðarráðuneytisins.
c. framlög á fjárlögum ár hvert sem nauðsynlegt er talið til þess að sjóðurinn geti gegnt hlutverki sínu.
Einnig hefur Jarðasjóður haft óverulegar vaxtatekjur af langtímakröfum. Fjármunum Jarðasjóðs og einnig Jarðeigna ríkisins sem hafa sameiginleg fjárframlög í fjárlögum ár hvert án frekari sundurliðunar er að hluta til varið til að greiða rekstrarkostnað jarðadeildar landbúnaðarráðuneytisins. Einnig er fjármunum Jarðasjóðs varið til kaupa á jörðum í samræmi við hlutverk sjóðsins samkvæmt lögum nr. 34/1992 þegar sjóðurinn hefur nægilega fjármuni til slíkra jarðakaupa. Efnahagsstaða sjóðsins hefur hins vegar verið mjög neikvæð um nokkurra ára skeið. Sú stefna var því mörkuð fyrir nokkrum árum að takmarka jarðakaup sjóðsins eins og unnt er þar til þessi halli hefur verið jafnaður og efnahagsstaða sjóðsins er aftur orðin jákvæð. Á síðustu árum hefur fjármunum sjóðsins umfram rekstrarkostnað eingöngu verið varið til að greiða niður áðurnefndan halla.
3. Hversu margar jarðir hefur sjóðurinn keypt á þessu ári?
Jarðasjóður hefur enga jörð keypt á árinu 2002.
4. Hversu margar jarðir hefur sjóðurinn keypt eða selt sl. fimm ár og hverjar eru þær jarðir?
Jarðasjóður hefur sl. fimm ár keypt sex jarðir og hluta úr einni jörð. Þær eru:
1. Ásar, Saurbæjarhreppi, Dalasýslu 1999.
2. Gilsfjarðarmúli, Reykhólahreppi, Austur-Barðastrandarsýslu 1999.
3. Hlíðarberg, Hornafirði, Austur-Skaftafellssýslu 1998.
4. Straumur, Norður-Héraði, Norður-Múlasýslu 1998.
5. Sunnuhlíð, Vopnafjarðarhreppi, Norður-Múlasýslu 1998.
6. Þrándarstaðir, Austur-Héraði, Suður-Múlasýslu 1999.
7. Hluti af jörðinni Fornhaga, Skriðuhreppi, Eyjafjarðarsýslu 1998.
Með seldum jörðum Jarðasjóðs sl. fimm ár er eingöngu átt við jarðir sem við sölu hafa verið skráðar eign Jarðasjóðs ríkisins. Landbúnaðarráðuneytið hefur á framangreindu tímabili selt mun fleiri jarðir sem hafa verið skráðar eign Jarðeigna ríkisins, Ríkisfjárhirslu, Fjársýslu ríkisins o.s.frv. og eru þær ekki með í upptalningunni hér að framan.
Jarðasjóður hefur sl. fimm ár selt átta jarðir. Þær eru:
1. Eyjar, Breiðdalshreppi, Suður-Múlasýslu 2001.
2. Melgraseyri, Hólmavíkurhreppi, Strandasýslu 2001.
3. Hóll, Tjörneshreppi, Suður-Þingeyjarsýslu 1998.
4. Hæringsstaðir, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsýslu 2002.
5. Sandfell, Hofshreppi, Skagafjarðarsýslu 1998.
6. Svínhóll, Dalabyggð, Dalasýslu 1998.
7. Vestra-Stokkseyrarsel, Árborg, Árnessýslu 2002.
8. Ysti-Hvammur, Aðaldælahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu 1998.
Á árinu 2002 keypti landbúnaðarráðuneytið að höfðu samráði við menntamálaráðuneytið jörðina Víðimýri í Skagafirði. Var það gert á grundvelli sérstakrar heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2001. Ástæða kaupanna var sú að þjóðminjavörður hafði á árinu 1997 gert tillögu um að Víðimýrarkirkja yrði skráð á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Jörðin var því keypt til þess að unnt væri að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að kirkjan yrði talin tæk á heimsminjaskrána. Í því tilviki var því ekki um að ræða kaup Jarðasjóðs samkvæmt lögum nr. 34/1992.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 696 — 369. mál.
Svar