Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 487. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 803  —  487. mál.




Skýrsla



menntamálaráðherra um framkvæmd skólahalds í grunnskólum skólaárin 1998–1999, 1999–2000 og 2000–2001.

(Lögð fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)



Inngangur.


    Í 9. gr. laga nr. 66/1995, um grunnskóla, er kveðið á um að menntamálaráðherra skuli gera Alþingi grein fyrir framkvæmd skólastarfs í grunnskólum á þriggja ára fresti.
    Fyrsta skýrslan um skólahald í grunnskólum var lögð fram á Alþingi vorið 1999 og fjallaði um skólaárin 1995–1996, 1996–1997 og 1997–1998. Sú skýrsla sem hér liggur fyrir tekur til skólaáranna 1998–1999, 1999–2000 og 2000–2001 og er lögð fram samkvæmt fyrrnefndri 9. gr. grunnskólalaga. Í skýrslunni er að finna ýmsar upplýsingar um skólahald, t.d. fjölda skóla, nemenda og kennara, árangur á samræmdum prófum, fjölda kennslustunda í einstökum námsgreinum, fjölda nemenda með annað móðurmál en íslensku og þróunarstörf í grunnskólum. Upplýsingar um niðurstöður samræmdra prófa í 4., 7. og 10. bekk eru fengnar frá Námsmatsstofnun og upplýsingar um skóla, nemendafjölda, kennslutíma og kennara eru að mestu fengnar frá Hagstofu Íslands. Menntamálaráðuneytið vann úr upplýsingunum til birtingar í skýrslunni.
    Ný aðalnámskrá fyrir grunnskóla tók gildi haustið 1999 og varð þá nokkur breyting á vægi námsgreina og nýjar námsgreinar eins og lífsleikni og upplýsinga- og tæknimennt komu til sögunnar. Í aðalnámskránni eru einnig ákvæði um fjölgun vikulegra kennslustunda sem komu að fullu til framkvæmda skólaárið 2001–2002 en í grunnskólalögum frá 1995 er kveðið á um slíka aukningu. Talsverð breyting varð á kennslu erlendra tungumála á grunnskólastigi en með gildistöku nýrrar aðalnámskrár hófst enskukennsla í 5. bekk, eða við tíu ára aldur. Upphafi dönskukennslu var aftur á móti seinkað um eitt ár og hefst dönskukennsla nú í 7. bekk. Engin breyting verður þó á heildarkennslustundafjölda í dönsku í grunnskóla.
    Í samræmi við ákvæði grunnskólalaga hefur af hálfu ráðuneytisins verið lögð aukin áhersla á upplýsingaöflun og eftirlit með skólahaldi á undanförnum árum. Í fyrsta lagi safnar menntamálaráðuneytið og dreifir tölfræðilegum upplýsingum um skólahald, m.a. upplýsingum um niðurstöður samræmdra prófa, fjölda kennara og nemenda og fjölda kennsludaga. Í öðru lagi stendur ráðuneytið fyrir úttektum á sjálfsmatsaðferðum skóla á fimm ára fresti í samræmi við ákvæði grunnskólalaga. Slíkar úttektir hófust haustið 2001. Í þriðja lagi lætur ráðuneytið gera heildarúttektir á skólum eða úttektir á tilteknum þáttum skólastarfs í þeim tilgangi að afla upplýsinga um framkvæmd menntastefnunnar.
    Ríkið ber enn kostnað af og ábyrgð á nokkrum þáttum er lúta að grunnskólum, svo sem samræmdum prófum í 4., 7. og 10. bekk, kennaramenntun og námsgögnum. Einnig leggur ríkið fram fjármagn til rannsókna og í þróunarsjóð grunnskóla og endurmenntunarsjóð grunnskóla. Námsmatsstofnun hefur með samningi við menntamálaráðuneytið verið falin öll framkvæmd samræmdra prófa og einnig hefur stofnunin borið ábyrgð á þátttöku Íslands og framkvæmd umfangsmikilla alþjóðalegra rannsókna í skólakerfinu, t.d. PISA og PIRLS sem nánar verður gerð grein fyrir í skýrslunni. Námsgagnastofnun sér um útgáfu og dreifingu námsgagna til grunnskóla í skyldunámsgreinum, nemendum og foreldrum þeirra að kostnaðarlausu.

I. Skólar.


    Fjöldi grunnskóla í landinu hefur haldist svipaður um langt skeið. Helst ber á breytingum í þá veru að skólum fjölgi í Reykjavík og að mjög fámennir skólar á landsbyggðinni séu sameinaðir eða þeir lagðir niður. Í fjölmennasta skóla landsins, Árbæjarskóla í Reykjavík, var sami nemendafjöldi skólaárin 1998–1999 og 1999–2000, eða 796. Í sama skóla var nemendafjöldi kominn í 825 skólaárið 2000–2001. Fámennasti grunnskólinn á þessu tímabili var Grunnskólinn í Mjóafirði með einn til fjóra nemendur. Á því þriggja ára tímabili sem hér um ræðir hefur fámennum skólum, þar með töldum einkaskólum og sérskólum, fækkað nokkuð og voru þeir 84–90 talsins á því þriggja ára tímabili sem hér um ræðir. Árið 1995 voru þeir hins vegar samtals 97. Einkaskólar voru sex árið 2000: Ísaksskóli, Landakotsskóli, Suðurhlíðaskóli, Tjarnarskóli, Waldorfskólinn í Lækjarbotnum og Waldorfskólinn Sólstafir. Sérskólar voru einnig sex árið 2000: Bröttuhlíðarskóli, Dalbrautarskóli, Einholtsskóli, Safamýrarskóli, Vesturhlíðarskóli og Öskjuhlíðarskóli og er það nokkurn veginn sami fjöldi og verið hefur síðastliðinn áratug. Haustið 1998 voru 79% skóla einsetnir, haustið 2000 hafði einsetnum skólum fjölgað nokkuð og voru þá 89% grunnskóla einsetnir.
    Heimavistarskólum fækkar stöðugt og er það í samræmi við stefnu fræðsluyfirvalda að nemendum skuli ekið í skóla sé þess nokkur kostur, ekki síst yngri nemendum, sbr. lög um grunnskóla frá 1995. Samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélögum hefur enginn heimavistarskóli starfað síðan á skólaárinu 1998–1999 en þá var einn slíkur skóli starfandi.

Tafla 1.1 Fjöldi grunnskóla 1998–2001.



Skólaár
1998–1999 1999–2000 2000–2001
Grunnskólar, alls 196 192 190
– Sérskólar 6 6 6
– Einkaskólar 5 6 6
Fámennir skólar* 90 85 84
Heimavistarskólar 1 0 0
Einsetnir skólar 154 159 164
Undanþága frá 9 mánaða skólatíma 6 9 8
* Skólar með 100 nemendur eða færri, þ.m.t. sérskólar.
Heimildir: Menntamálaráðuneyti og Hagstofa Íslands.


II. Nemendur.


    Heildarfjöldi nemenda í grunnskólum landsins hefur síðastliðinn áratug verið rúmlega 42 þúsund á ári, skólaárið 1999–2000 fór nemendafjöldinn í heild í fyrsta sinn yfir 43 þúsund, sjá töflu 2.1. Í töflu 2.2 má sjá fjölda nemenda í sérskólum, sérdeildum, einkaskólum og fjölda nemenda með annað móðurmál en íslensku. Í töflu 2.3 má sjá fjölda nemenda eftir móðurmáli og hvernig þeir skipast hlutfallslega, annars vegar á höfuðborgarsvæðið og hins vegar utan þess. Miðað er við að forráðamenn nemandans, annar eða báðir, hafi annað tungumál að móðurmáli en íslensku og noti það mál að staðaldri í daglegum samskiptum sínum við nemandann. Ekki er mikill munur á milli höfuðborgarsvæðisins og annarra landshluta hvað varðar ofangreint hlutfall. Í 36. gr. laga um grunnskóla, nr. 66/1995, er kveðið á um rétt nemenda sem hafa annað móðurmál en íslensku til sérstakrar íslenskukennslu. Í reglugerð nr. 391/1996, um íslenskukennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku, er nánar kveðið á um íslenskukennslu fyrir þessa nemendur og einnig er sérstök umfjöllun um íslensku sem annað tungumál í aðalnámskrá grunnskóla frá 1999.

Tafla 2.1 Fjöldi nemenda á grunnskólaaldri eftir árgöngum 1998–2001.



Alls 1. b. 2. b. 3. b. 4. b. 5. b. 6. b. 7. b. 8. b. 9. b. 10. b.
1998–1999 42.421 4.469 4.400 4.652 4.392 4.538 4.083 3.819 3.818 4.049 4.201
1999–2000 43.030 4.534 4.507 4.448 4.681 4.432 4.551 4.129 3.866 3.823 4.059
2000–2001 43.644 4.435 4.583 4.541 4.460 4.754 4.444 4.569 4.158 3.836 3.864
Ofangreind skólaár er hlutfall drengja 51% af nemendum og hlutfall stúlkna 49%.
Heimild: Hagstofa Íslands.

Tafla 2.2 Nemendur í sérskólum, sérdeildum, einkaskólum


og nemendur með annað móðurmál en íslensku* 1998–2001.



Skólaár
1998–1999 1999–2000 2000–2001
Í sérskólum 147 169 189
Í sérdeildum 240 238 120
Í einkaskólum 527 549 565
Með annað móðurmál en íslensku**   920 1.039
*Nemendur sérskóla, sérdeilda, einkaskóla og nýbúar eru innifaldir í heildarnemendatölum í töflu 2.1.
**Upplýsingar eru ekki fyrirliggjandi fyrir skólaárið 1998–1999.
Heimild: Hagstofa Íslands.

Tafla 2.3 Fjöldi nemenda í grunnskólum með


annað móðurmál en íslensku, haustið 2000.



Október 2000 Alls Á höfuðborgarsvæði, % Utan höfuðborgarsvæðis, %
Alls 1.039 53,8 46,2
Enska 157 56,7 43,3
Taílenska 114 46,5 53,5
Pólska 105 32,4 67,6
Filippseysk mál 75 54,7 45,3
Serbókróatíska 59 42,4 57,6
Danska 53 50,9 49,1
Víetnamska 49 95,9 4,1
Norska 45 42,2 57,8
Sænska 43 53,5 46,5
Rússneska 38 65,8 34,2
Spænska 35 51,4 48,6
Albanska 34 64,7 35,3
Þýska 33 54,5 45,5
Franska 21 57,1 42,9
Portúgalska 21 57,1 42,9
Finnska 14 71,4 28,6
Hollenska 14 42,9 57,1
Færeyska 12 100,0 –
Kínverska 11 72,7 27,3
Annað og óskilgreint 1) 106 21,7 78,3
1) Tungumál sem færri en 10 grunnskólanemar eiga að móðurmáli og nemendur með ótilgreint móðurmál.
Skilgreining: Forráðamenn nemandans (annar eða báðir) hafa annað tungumál að móðurmáli en íslensku og nota það mál að staðaldri í daglegum samskiptum sínum við nemandann .
Heimild: Hagstofa Íslands.

Skóladagar.
    Samkvæmt grunnskólalögum skal lágmarksfjöldi skóladaga nemenda vera 170 á ári. Hagstofa Íslands safnar árlega upplýsingum um skóladaga í grunnskólum (þ.e. kennslu- og prófadagar samtals). Ef í ljós kemur að skóladagar eru færri en 170 gerir ráðuneytið athugasemdir við viðkomandi sveitarstjórn og óskar eftir að úr sé bætt. Eins og sjá má á mynd 2.1 hafa skólar að meðaltali verið með 169–170 skóladaga á tímabilinu 1998–2001. Skólar með undanþágu menntamálaráðuneytis frá 9 mánaða skóla eru ekki taldir með hér. Uppgefnir skóladagar á tímabilinu hafa verið á bilinu 133–175 skóladagar. Skýringar sem fram hafa komið vegna of fárra skóladaga eru af ýmsum toga, t.d. að kennt sé fjóra daga vikunnar í stað fimm, slæmt veður og ófærð, viðgerðir á húsnæði og fleira. Hér eru einnig birtar upplýsingar um skólaárin 1996–1997 og 1997–1998, en sjá má að töluverð fjölgun hefur orðið á uppgefnum skóladögum nemenda, einkum í yngri bekkjunum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Viðmiðunarstundaskrá.

    Kennslustundum hefur fjölgað ár frá ári á tímabilinu, sbr. ákvæði grunnskólalaga þar um. Í töflu 2.4 má sjá heildarkennslustundafjölda á viku í skyldunámi frá 1998–2001 samkvæmt grunnskólalögum og meðaltal kenndra stunda á viku eftir bekkjum fyrir skólaárið 2000– 2001, samkvæmt upplýsingum sem Hagstofa Íslands safnar frá skólunum. Þar kemur m.a. fram að í 5. bekk hafa nemendur fengið að meðaltali 30 stundir á viku en hefðu átt að fá 33 stundir það skólaár. Nemendur í 6. bekk fá hins vegar að meðaltali 34 stundir en hefðu átt að fá 33 stundir samkvæmt aðalnámskrá. Aðrir hafa að meðaltali fengið tilskilinn kennslustundafjölda skólaárið 2000–2001. Ákvæði grunnskólalaga frá 1995 um vikulegan kennslutíma átti að vera komið að fullu til framkvæmda frá og með skólaárinu 2001–2002, þannig að 2002–2003 eiga nemendur í 1.–4. bekk að fá 30 kennslustundir, í 5.–7. bekk 35 kennslustundir og í 8.–10. bekk 37 kennslustundir að lágmarki á viku miðað við 40 mínútna kennslustund.

Tafla 2.4 Lögbundnar vikulegar kennslustundir


og meðaltal kenndra stunda á viku 2000–2001.



1. bekkur 2. bekkur 3. bekkur 4. bekkur 5. bekkur 6. bekkur 7. bekkur 8. bekkur 9. bekkur 10.
bekkur
1998–1999 29 29 29 29 32 32 34 35 35 35
1999–2000 30 30 30 30 32 32 35 35 35 35
2000–2001 30 30 30 30 33 33 35 36 36 36
Kennt á viku 2000–2001 30 30 30 30 30 34 35 36 36 36
Heimildir: Menntamálaráðuneytið og Hagstofa Íslands.

    Í töflu 2.5 má sjá hvernig skólatími grunnskólanemenda hefur skipst u.þ.b. á milli námsgreina við lok 10 ára skólagöngu samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla frá 1999.

Tafla 2.5 Hlutfallsleg skipting skólatíma nemenda eftir námsgreinum


að lokinni 10 ára skólagöngu í grunnskóla.



Íslenska 19%
Stærðfræði      17%
Danska 5%
Enska      6%
Heimilisfræði      4%
Listir      11%
Lífsleikni      2%
Náttúrufræði      9%
Samfélagsfræði og kristin fræði 10%
Skólaíþróttir      10%
Upplýsinga- og tæknimennt 6%


III. Aðalnámskrá.


    Ný aðalnámskrá fyrir grunnskóla kom út árið 1999 og tók gildi 1. júní sama ár. Með henni voru gerðar talsverðar umbætur á skólastarfi. Byrjað var að starfa eftir námskránni skólaárið 1999–2000 en hún kom að fullu til framkvæmda 2002. Námskráin leysti af hólmi aðalnámskrá grunnskóla frá 1989.
    Námskráin skiptist í tólf rit, almennan hluta og ellefu greinahluta. Þeir eru: íslenska, stærðfræði, erlend tungumál, heimilisfræði, íþróttir – líkams- og heilsurækt, kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði, listgreinar, lífsleikni, náttúrufræði, samfélagsgreinar og upplýsinga- og tæknimennt.
    Í námskránni er útfærð í einstökum atriðum ný skólastefna, Enn betri skóli, sem kynnt var 1998. Í henni er tekið mið af þjóðfélagsbreytingum undangenginna og komandi ára og þeim kröfum sem upplýsingasamfélagið gerir. Ný skólastefna hefur að markmiði að gera nemendur að sjálfstæðum og sterkum einstaklingum og leggja traustan grunn að menntun þeirra og færni til að takast á við síbreytilegt og flókið samfélag. Áhersla á tungumál, náttúrufræði og stærðfræði er aukin verulega, komið er til móts við sérþarfir nemenda, boðið er upp á meira nám á skemmri tíma en áður og áhersla er lögð á að upplýsingatækni verði sjálfsagt hjálpartæki í öllum námsgreinum. Skólastefnan á að styrkja og móta heilsteypt starf í einstökum skólum og skólakerfinu í heild.
    Endurskoðun aðalnámskráa grunnskóla og framhaldsskóla hófst haustið 1996 og nokkru síðar var hafist handa við að endurskoða námskrár leikskóla og tónlistarskóla. Ekki hefur áður verið unnið samhliða að námskrárgerð fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla en samræmd endurskoðun stuðlar að eðlilegri samfellu og stígandi í námi.
    Fjölmargir komu að endurskoðun aðalnámskránna. Meira en tvö hundruð kennarar og aðrir sérfræðingar lögðu hönd á plóginn. Þá voru drög námskránna aðgengileg á netinu þar sem áhugasamir gátu kynnt sér efni þeirra, fylgst með framvindu verksins og komið ábendingum á framfæri.
    Námskránum var fylgt vel eftir til að tryggja nauðsynlegar umbætur í skólastarfi, m.a. með nýju námsefni og endurmenntun kennara. Námsgagnastofnun fékk auknar fjárveitingar til að bregðast við þörf fyrir nýtt námsefni og settur var á laggirnar sérstakur sjóður til að styrkja endurmenntun grunnskólakennara og var auglýst eftir umsóknum um styrki úr honum.

Helstu nýjungar í nýrri aðalnámskrá grunnskóla.
Aðgengileg og skýr markmið.
    Markmið og viðfangsefni nýrrar aðalnámskrár eru skýrt fram sett. Aðalnámskráin er meginviðmiðun skólastarfs og á að vera aðgengileg öllum sem að skólastarfi koma, bæði skólastjórnendum, kennurum, foreldrum og nemendum. Öllum þarf að vera ljóst að hverju skuli stefnt í grunnskólamenntun íslenskra barna.

Samfellt nám frá leikskóla til háskóla.

    Skólagangan verður samfelld frá fyrstu árum leikskóla til loka framhaldsskóla með nýjum námskrám fyrir þessi skólastig sem unnar hafa verið samhliða. Nám á öllum skólastigum tekur mið af því sem þegar er að baki og því sem fram undan er.

Fyrsta námskrá fyrir 6 ára nemendur.

    Í nýrri námskrá er í fyrsta sinn tekið mið af tíu ára skólagöngu. Þegar farið var að miða skólaskyldu við sex ára aldur lengdist skólaganga grunnskólanema án þess að skipulag náms og námskröfur tækju mið af því. Með nýrri aðalnámskrá er tími nemenda nýttur til fullnustu.

Sveigjanlegt nám.

    Ný aðalnámskrá eykur til muna sveigjanleika náms og valfrelsi nemenda í efstu bekkjum grunnskóla. Þannig gefst þeim færi á að hafa áhrif á nám sitt og laga það að eigin áherslum, áhugasviðum og framtíðaráformum.

Fleiri kennslustundir, betri menntun.
    Grunnskólalög og ný aðalnámskrá hafa í för með sér umtalsverða lengingu á kennslutíma. Árið 2001 var vinnuvika allra nemenda, tíu ára og eldri, orðin 35–37 kennslustundir að lágmarki. Með því hefur heildartími til kennslu í grunnskóla verið aukinn um 15% frá skólaárinu 1994–1995.

Náttúrufræði og stærðfræði skipa hærri sess.

    Kennsla náttúrufræðigreina skipar veglegan sess í nýrri aðalnámskrá. Hún hefst þegar í sex ára bekk og tími til náttúrufræðináms eykst um allt að 60%. Tími til stærðfræðikennslu er aukinn um 12%.

Valfrjáls samræmd próf í 10. bekk.

    Samræmdum prófum í 10. bekk er fjölgað úr fjórum í sex. Auk íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku geta nemendur þreytt samræmd lokapróf í náttúrufræði og samfélagsgreinum. Nemendur ákveða í samráði við foreldra, kennara og námsráðgjafa hversu mörg samræmd próf þeir þreyta og þurfa í því sambandi að taka mið af framtíðaráformum og inntökuskilyrðum framhaldsskólans. Aukið valfrelsi þýðir að nemendur geta lokið námi í grunnskóla með mismunandi áherslum og einnig á skemmri tíma en áður, á níu árum í stað tíu.

Áhersla á íslensku og stærðfræði.

    Íslenska og stærðfræði eru kjarnagreinar grunnskólans enda mikilvægar undirstöður fyrir virka þátttöku í íslensku samfélagi og frekara nám. Saman fá þessar tvær greinar tæp 40% alls kennslutíma í grunnskóla, eða sem nemur ríflega þremur árum af tíu ára skólagöngu. Íslenska sem annað mál fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku er skilgreind í fyrsta skipti í nýrri aðalnámskrá og einnig íslenska fyrir heyrnarlausa og táknmál fyrir heyrnarlausa.

Breytt samfélag – nýjar námsgreinar. Lífsleikni og upplýsinga- og tæknimennt.

    Með nýrri aðalnámskrá koma formlega til skjalanna nýjar námsgreinar sem endurspegla breyttar áherslur í skólastarfi og samfélaginu í heild. Upplýsingatækni og tölvunotkun eða upplýsingamennt er ný grein sem kennd verður frá upphafi skólagöngu. Hefðbundin smíði tekur á sig nýja og umfangsmeiri mynd í greininni tæknimennt og lífsleikni verður að sérstakri námsgrein frá níu ára aldri. Í lífsleikni er hugað sérstaklega að ýmsum þáttum sem ekki hafa áður haft formlegan kennslutíma í grunnskóla en eru nemendum mikilvægir til skilnings og þátttöku í nútímasamfélagi. Þá eru í aðalnámskrá sett fram námsmarkmið í leikrænni tjáningu, dansi, nýsköpun og hagnýtingu þekkingar sem gera skólum betur kleift að bjóða nemendum markvissa kennslu á þessum sviðum.

Enska, fyrsta erlenda tungumálið.

    Þau nýmæli urðu með nýrri aðalnámskrá að enska varð fyrsta erlenda tungumálið sem nemendur læra. Tími til enskukennslu er aukinn og kennsla hefst fyrr, eða við tíu ára aldur í stað tólf áður. Lögð verður sama áhersla á dönsku og áður en kennsla hennar hefst nú í 7. bekk.

Góð vinnubrögð – aukið sjálfstraust.

    Ný aðalnámskrá tryggir aukið valfrelsi nemenda en eykur um leið ábyrgð þeirra á námi sínu. Markmiðið er að byggja með skipulegum hætti upp sjálfstraust og sjálfsábyrgð nemenda með lýðræðislegum vinnubrögðum. Þá er lögð áhersla á að efla með þeim umburðarlyndi, virðingu, heilbrigða dómgreind, náungakærleik og hæfileika til samvinnu. Ný aðalnámskrá gerir líka ráð fyrir fjölbreytilegum aðferðum við kennslu, þar á meðal aukinni verkefnavinnu og sjálfstæðri vinnu nemenda sem ætlað er að rækta með þeim skipulögð og góð vinnubrögð. Auknar kröfur eru um festu í skólastarfi, námsaga og árangur.

    Grunnskóladeild menntamálaráðuneytisins kynnti aðalnámskrá grunnskóla á tímabilinu frá janúar 1999 til áramóta 2000. Haldnir voru u.þ.b. 40 fundir um allt land fyrir kennara og skólastjórnendur, sveitarstjórnarmenn, skólaskrifstofur, skólanefndir, fagfélög og aðra hagsmunaaðila.

Aukið valfrelsi í kjölfar nýrrar aðalnámskrár grunnskóla.
    Menntamálaráðuneytið gaf út árið 2000 bæklinginn Ábyrgð, frelsi, jafnrétti, val sem sendur var öllum grunnskólum landsins til dreifingar meðal nemenda í 9. og 10. bekkjum. Bæklingnum er einkum ætlað að kynna fyrir nemendum aukið valfrelsi þeirra í kjölfar breytinga á námskrá. Einnig fá allir nemendur 10. bekkjar ár hvert bæklinginn Nám að loknum grunnskóla sem menntamálaráðuneytið gefur út og er hann jafnframt aðgengilegur á heimasíðu ráðuneytisins.

IV. Mat og eftirlit.


Samræmd próf.
    Ákvæði 46. gr. grunnskólalaga þess efnis að allir nemendur skuli þreyta samræmd próf í ákveðnum námsgreinum við lok grunnskóla var breytt þegar aðalnámskrá grunnskóla frá 1999 kom til framkvæmda. Nú er nemendum gefinn kostur á að þreyta samræmd próf við lok grunnskóla, þ.e. samræmdu prófin í 10. bekk eru valfrjáls. Samkvæmt reglugerð nr. 414/ 2000, um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í grunnskólum, geta nemendur 10. bekkjar valið um samræmd próf í sex námsgreinum, þ.e. íslensku, stærðfræði, dönsku, ensku, samfélagsfræði og náttúrufræði. Þetta nýja ákvæði laganna kemur að fullu til framkvæmda vorið 2003, sbr. ákvæði til bráðabirgða í fyrrnefndri reglugerð. Vorið 2001 gátu nemendur í 10. bekk í fyrsta sinn valið um hvaða samræmd próf þeir tækju og var um að ræða val milli fjögurra greina, þ.e. íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Að öllu jöfnu hafa um 96% tekið nemenda samræmd próf í 10. bekk. Ekki varð breyting á því eftir greinum vorið 2001 þegar valfrelsi kom til sögunnar, nema í dönsku en þá tóku 92% nemenda samræmt próf í dönsku.
    Samkvæmt framangreindri reglugerð geta þeir nemendur í 9. bekk, sem að mati skólastjóra og umsjónarkennara hafa staðist þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt aðalnámskrá við lok grunnskóla í einstökum námsgreinum, með samþykki forsjáraðila, valið að þreyta samræmd lokapróf í þeim námsgreinum. Nemendum er þó óheimilt að þreyta samræmt lokapróf tvisvar sinnum í sömu námsgrein.
    Í töflum 4.1–4.3 má sjá niðurstöður úr samræmdum prófum í 10. bekk eftir landshlutum og kyni 1999, 2000 og 2001. Þar má m.a. sjá að í Reykjavík og nágrenni eru meðaleinkunnir að öllu jöfnu hærri en landsmeðaltal.

Tafla 4.1 Meðaleinkunnir í samræmdum prófum í 10. bekk í stærðfræði,


íslensku, dönsku og ensku eftir landshlutum og kyni vorið 1999.



Stærðfræði Íslenska Danska Enska
Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur
Reykjavík 5,0 5,6 4,8 5,9 4,8 5,7 5,2 5,5
Nágrenni Reykjavíkur 5,1 5,2 4,8 5,4 4,7 5,3 5,3 5,0
Suðurnes 4,6 4,7 4,0 4,7 4,1 5,1 4,9 5,1
Vesturland 4,9 5,2 4,5 5,3 4,3 5,2 4,6 4,3
Vestfirðir 4,2 4,5 3,9 4,6 4,2 5,1 4,6 4,4
Norðurland vestra 5,0 5,2 4,8 5,2 4,7 5,4 5,0 5,1
Norðurland eystra 4,2 4,7 4,0 5,2 4,1 4,8 4,5 4,6
Austurland 4,4 5,1 4,3 5,5 4,5 5,4 4,8 4,9
Suðurland 4,9 4,9 4,3 5,0 4,4 5,2 4,8 4,9
Landið allt 4,8 5,2 4,6 5,4 4,6 5,4 5,0 5,1
Heimild: Námsmatsstofnun.

Tafla 4.2 Meðaleinkunnir í samræmdum prófum í 10. bekk í stærðfræði,


íslensku, dönsku og ensku eftir landshlutum og kyni vorið 2000.



Stærðfræði Íslenska Danska Enska
Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur
Reykjavík 5,1 5,6 5,0 5,9 4,8 6,0 5,4 5,6
Nágrenni Reykjavíkur 4,9 5,4 4,6 5,5 4,5 5,6 5,1 5,2
Suðurnes 4,3 4,1 4,1 4,6 4,3 4,9 4,7 4,5
Vesturland 4,6 4,7 4,0 4,9 3,9 4,8 4,1 4,2
Vestfirðir 4,5 5,0 4,2 5,0 3,9 5,1 4,4 4,9
Norðurland vestra 4,7 5,0 4,1 5,0 4,2 5,6 4,5 4,6
Norðurland eystra 4,8 4,8 4,6 5,2 4,2 4,9 4,7 4,9
Austurland 4,7 4,9 4,4 5,3 4,9 5,7 4,8 4,7
Suðurland 4,3 5,2 4,2 5,3 3,8 5,2 4,2 4,5
Landið allt 4,8 5,2 4,6 5,5 4,4 5,6 4,9 5,1
Heimild: Námsmatsstofnun.

Tafla 4.3 Meðaleinkunnir í samræmdum prófum í 10. bekk í stærðfræði,


íslensku, dönsku og ensku eftir landshlutum og kyni vorið 2001.



Stærðfræði Íslenska Danska Enska
Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur
Reykjavík 5,2 5,3 4,8 5,6 4,7 5,6 5,4 5,2
Nágrenni Reykjavíkur 5,0 5,3 4,7 5,5 4,6 5,6 5,3 5,2
Suðurnes 4,5 4,8 4,2 4,8 4,7 5,3 4,9 4,6
Vesturland 4,4 4,9 4,0 5,1 3,6 5,1 4,0 4,4
Vestfirðir 4,7 5,2 4,4 5,2 4,2 5,4 4,6 5,0
Norðurland vestra 4,4 4,5 4,5 5,4 4,5 5,3 4,5 4,7
Norðurland eystra 4,7 5,0 4,7 5,4 4,1 5,2 4,7 4,8
Austurland 4,6 4,5 4,3 5,0 4,7 5,5 4,6 4,7
Suðurland 4,6 4,5 4,4 4,9 4,2 5,0 4,8 4,4
Landið allt 4,9 5,1 4,6 5,4 4,5 5,5 5,0 5,0
Heimild: Námsmatsstofnun.

    Á mynd 4.1 má sjá að stúlkur eru að jafnaði með betri útkomu á samræmdum prófum í 10. bekk en piltar. Mestur er munur í íslensku og stærðfræði en minnstur í ensku.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í grunnskólalögum og reglugerð nr. 415/2000 er einnig kveðið á um samræmd próf í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk og hafa þau verið haldin síðan haustið 1996. Öllum nemendum í 4. og 7. bekk er skylt að gangast undir þessi próf njóti þeir ekki undanþágu skv. 48. gr. grunnskólalaga eða hafi annað móðurmál en íslensku.
    Sjá má í töflum 4.4 og 4.5 að árangur stúlkna er að öllu jöfnu betri en drengja í þessum prófum.

Tafla 4.4 Meðaltal einkunna* í samræmdum könnunarprófum í 4. bekk


1998, 1999 og 2000, skipt eftir kyni.



Stærðfræði Íslenska
1998
Drengir 5,0 4,6
Stúlkur 5,0 5,4
1999
Drengir 5,0 4,6
Stúlkur 5,0 5,4
2000
Drengir 5,0 4,8
Stúlkur 4,9 5,2
*Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina.
Heimild: Námsmatsstofnun.

Tafla 4.5 Meðaltal einkunna* í samræmdum könnunarprófum


í 7. bekk 1998, 1999 og 2000, skipt eftir kyni.



Stærðfræði Íslenska
1998
Drengir 4,9 4,7
Stúlkur 5,1 5,3
1999
Drengir 4,9 4,5
Stúlkur 5,1 5,5
2000
Drengir 5,0 4,7
Stúlkur 5 5,3
*Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina.
Heimild: Námsmatsstofnun.

    Í töflum 4.6 og 4.7 er gerður samanburður á meðaleinkunnum í samræmdum prófum í stærðfræði og íslensku í 4. og 7. bekk 1996–2001, en einnig kemur fram hlutfall nemenda á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Tafla 4.6 Meðaleinkunn og hlutfall nemenda á höfuðborgarsvæðinu


og landsbyggðinni í 4. bekk 1996–2001.



Stærðfræði Íslenska
Höfuðborgarsvæði Landsbyggð Höfuðborgarsvæði Landsbyggð
Ár M % M % M % M %
2001 5,00 59,7 5,00 40,3 5,11 59,6 4,84 40,4
2000 5,05 58,4 4,95 41,6 5,10 58,4 4,85 41,6
1999 5,03 58,9 4,98 41,1 5,03 58,9 4,95 41,1
1998 5,13 57,5 4,81 42,5 5,13 57,6 4,82 42,4
1997 5,15 56,9 4,80 43,1 5,13 56,9 4,84 43,1
1996 5,08 55,8 4,81 44,2 5,20 56,1 4,73 43,9
Heimild: Námsmatsstofnun.

Tafla 4.7 Meðaleinkunn og hlutfall nemenda á höfuðborgarsvæðinu


og landsbyggðinni í 7. bekk 1996–2001.



Stærðfræði Íslenska
Höfuðborgarsvæði Landsbyggð Höfuðborgarsvæði Landsbyggð
Ár M % M % M % M %
2001 5,13 58,8 4,84 41,2 5,16 58,8 4,81 41,2
2000 5,14 58,2 4,79 41,8 5,17 58,1 4,77 41,9
1999 5,14 57,4 4,82 42,6 5,17 57,2 4,76 42,8
1998 5,12 56,6 4,84 43,4 5,16 56,6 4,8 43,4
1997 5,26 54,8 4,69 45,2 5,22 54,8 4,73 45,2
1996 5,14 55,5 4,72 44,5 5,2 55,2 4,71 44,8
Heimild: Námsmatsstofnun .

Undanþágur og frávik frá samræmdum prófum.
    Samkvæmt reglugerðum nr. 414/2000, um samræmd próf í 10. bekk, og nr. 415/2000, um samræmd próf í 4. og 7. bekk, er hægt að veita undanþágu frá próftöku í sérstökum tilvikum. Nemendur með annað móðurmál en íslensku þurfa ekki að taka samræmt próf í íslensku og hafi þeir á prófdegi dvalið skemur en eitt ár á landinu geta þeir fengið undanþágu frá samræmdu prófi í stærðfræði. Einnig er heimilt er að veita nemendum af sérstökum ástæðum undanþágu frá kennslu í tiltekinni námsgrein og eru þeir þá sjálfkrafa undanþegnir samræmdu prófi í viðkomandi námsgrein. Hér er fyrst og fremst um að ræða undanþágu frá dönsku sem veitt er nemendum með annað móðurmál en íslensku og íslenskum nemendum sem hafa dvalið langdvölum erlendis og lært þar annað tungumál, t.d. frönsku eða þýsku. Nemendur með sérstaka námsörðugleika fá í auknum mæli undanþágur frá skyldunámsgreinum, einkum dönsku. Þá er nemendum sem víkja svo frá almennum þroska, sbr. 48. gr. grunnskólalaga, að þeim henta ekki samræmd próf veitt undanþága frá samræmdum prófum. Hér er aðallega um að ræða nemendur með einstaklingsnámskrá og nemendur í sérskólum og sérdeildum. Um 1–2% nemenda í 4. og 7. bekk eru með þessum hætti sjálfkrafa undanþegnir samræmdum prófum. Í 10. bekk voru undanþágur um 2%, en eftir að valfrelsið kom til sögunnar eru í raun ekki veittar undanþágur því að nemendur geta skráð sig úr prófum.
    Nemendum er einnig í sérstökum tilvikum veitt heimild til að taka samræmd próf með fráviki. Námsmatsstofnun veitir heimild til slíkra frávika. Flest frávik eru veitt vegna leshömlunar og er þá nemendum boðið upp á snældu með upplestri á prófunum sem þeir geta stjórnað sjálfir. Í 4. og 7. bekk eru veitt frávik til um 10–14% nemenda í samræmdum prófum. Í 10. bekk er prófað með frávikum í u.þ.b. 13–14% tilvika.

Tafla 4.8 Brottfall í samræmdum prófum í 10. bekk 1999, 2000 og 2001.



1999
%
2000
%
2001
%
Íslenska 5,6 4,2 3,9
Stærðfræði 3,8 4,5 4,4
Enska 3,6 4,0 4,6
Danska 4,6 5,2 8,2
Heimild: Námsmatsstofnun.

Tafla 4.9 Frávik á samræmdum prófum í 10. bekk 1999, 2000 og 2001.



1999
%
2000
%
2001
%
Íslenska 9,8 13,3 14,2
Stærðfræði 9,2 13,7 14,0
Enska 9,8 13,4 13,3
Danska 9,1 12,8 12,0
Heimild: Námsmatsstofnun.

Sjálfsmat.
    Í lögum um grunnskóla nr. 66/1995 eru ákvæði þess efnis að sérhver skóli skuli innleiða aðferðir til að meta skólastarfið, þar á meðal kennslu- og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan skólans. Í lögunum eru einnig ákvæði um að á fimm ára fresti skuli að frumkvæði menntamálaráðuneytisins gerð úttekt á þeim sjálfsmatsaðferðum sem skólar nota.
    Menntamálaráðuneytið gaf vorið 1997 út bæklinginn Sjálfsmat skóla og er þar fjallað um tilgang og markmið sjálfsmats, sett fram viðmið fyrir sjálfsmat skóla, birtur gátlisti og gefið dæmi um ramma fyrir sjálfsmatsskýrslu. Viðmiðin eru einnig birt í Almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla, auk þess sem þau voru kynnt skólum í bréfi sem var sent öllum grunnskólum í júní 2000. Viðmiðin sem sjálfsmatsaðferðir skólanna þurfa að uppfylla eru: formlegt, altækt, áreiðanlegt, samstarfsmiðað, umbótamiðað, árangursmiðað, stofnana- og einstaklingsmiðað, lýsandi, greinandi og opinbert.
    Ákvæði um úttektir á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla komu til framkvæmda haustið 2001. Í undirbúningi að framkvæmd úttektanna voru í tilraunaskyni gerðar úttektir á sjálfsmatsaðferðum tveggja grunnskóla á vorönn 2001. Tilgangurinn með tilraunaúttektunum var fyrst og fremst að prófa matstæki (spurningalista á rafrænu formi) sem ráðuneytið hafði hannað vegna úttekta á sjálfsmatsaðferðum skóla. Við úttektirnar er sjónum einkum beint að stöðu sjálfsmats, sjálfsmatskerfi og framkvæmd sjálfsmats í skólanum.
    Gert er ráð fyrir að vinna við úttektir á sjálfsmatsaðferðum allra grunnskóla taki tvö og hálft ár og ljúki á haustmisseri 2003. Hófst framkvæmdin með því að sjálfsmatsaðferðir 27 skóla voru teknar út haustið 2001. Árið 2002 eru teknir út 80 skólar og á árinu 2003 um 90 skólar.

Ytra mat.
    Í 51. gr. grunnskólalaga er ákvæði þess efnis að menntamálaráðuneytið geti látið fara fram úttektir á skólastarfi. Slíkar úttektir geta ýmist falið í sér heildarmat á starfi einstakra skóla, tekið til ákveðinna þátta í skólastarfi eða verið úttekt á kennslu í ákveðinni námsgrein.
    Megintilgangur ytra mats á skólum er að fá heildarmynd af skólastarfinu eða einstökum þáttum þess eins og það er á hverjum tíma. Sjónum er beint að ýmsum þáttum í innra starfi skólanna, svo sem stjórnun, kennslu, þróunarstarfi, starfsmannastjórnun, samstarfi og samskiptum í skólanum, námsárangri og tengslum skólans við samfélagið.
    Árið 1998 auglýsti menntamálaráðuneytið eftir sveitarfélögum sem hefðu áhuga á því að ráðuneytið léti fara fram heildarúttekt á skólum í sveitarfélaginu. Grunnskóli Mýrdalshrepps og Kópavogsskóli urðu fyrir valinu og er hægt að nálgast úttektarskýrslurnar á heimasíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is, undir Mat og úttektir.

Íþróttakennsla í grunnskólum 1999–2000.
    Vorið 2000 kannaði menntamálaráðuneytið fjölda nemendastunda og fyrirkomulag kennslu í skólaíþróttum skólaárið 1999–2000 að beiðni Íþróttakennarafélags Íslands. 84% skóla svöruðu könnuninni. Niðurstöður voru greindar eftir bekkjum og landshlutum.
    Samkvæmt reglugerð nr. 395/1986 um sundnám grunnskóla á að ætla nemendum sundtíma í stundaskrá skóla, eigi færri en einn á viku. Þýðir það að u.þ.b. 30 kennslustundum á skólaári skuli varið til sundkennslu. Jafnframt er þó kveðið á um að þar sem aðstæður leyfa ekki annað skuli hver nemandi eiga kost á 180 kennslustundum í sundi í 1.–9. bekk. Nemur það 20 kennslustundum í sundi að jafnaði á ári að lágmarki. Niðurstöður könnunar menntamálaráðuneytisins leiddu í ljós að í 28% grunnskóla fengu nemendur færri en 30 sundtíma á skólaárinu, þ.e. færri tíma en sem nemur u.þ.b. einum sundtíma á viku á skólaárinu. Þá kenndu 15% grunnskóla færri en 20 sundtíma á skólaárinu.

Mynd 4.2 Hlutfall grunnskóla sem verja að lágmarki 30 kennslustundum



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


til sundkennslu skólaárið 1999–2000.


    Fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum er almennt þannig að yngstu nemendunum er kennt á tímabundnum námskeiðum en eftir því sem nemendur eldast verða vikulegir sundtímar algengari. Yfirleitt var lítill munur á milli landshluta í þessum efnum. Þó vekur athygli að sundkennsla Austfirðinga virðist eingöngu fara fram á námskeiðum hjá öllum aldurshópum, en á hinn bóginn skera Sunnlendingar sig nokkuð úr varðandi hversu lítið virðist kennt á námskeiðum, jafnvel í yngstu aldurshópunum.

Mynd 4.3 Fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum skólaárið 1999–2000.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    
Um 18% grunnskóla höfðu fleiri en 15 nemendur á hvern sundkennara, en það eru of stórir hópar samkvæmt viðmiði í reglugerð um sundnám grunnskóla. Af þeim grunnskólum sem kenndu sund í of stórum hópum skólaárið 1999–2000 voru 46% á Reykjanesi, 17% á Norðurlandi eystra og 13% á Suðurlandi.

Mynd 4.4 Fjöldi nemenda að jafnaði á hvern sundkennara



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


í grunnskólum 1999–2000.


    Þegar skoðuð er íþróttakennsla (leikfimi) í grunnskólum kemur í ljós að 14% þeirra kenndu færri en 60 kennslustundir skólaárið 1999–2000, þ.e. færri en u.þ.b. tvo tíma vikulega, en í auglýsingu um gildistöku aðalnámskrár grunnskóla, nr. 437/1996, er kveðið á um tvær vikulegar stundir. Af þeim skólum sem vörðu of litlum tíma í íþróttakennslu voru 33% á Suðurlandi, 17% á Norðurlandi eystra, 17% á Vestfjörðum og 13% í Reykjavík.
    Undanþágur frá íþrótta- og/eða sundkennslu eru í miklum meiri hluta tilvika (80%) veittar samkvæmt læknisvottorði. Einnig veita skólastjórar undanþágur.
    Niðurstöður könnunarinnar voru gefnar út í sérriti í júní 2000 og sendar m.a. skólaskrifstofum og skólum til fróðleiks. Skýrslan er birt á heimasíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is. Athugasemdir og fyrirspurnir voru sendar til einstakra sveitarstjórna eftir því sem svör við könnuninni gáfu tilefni til.

Norræn könnun um viðhorf til skóla.
    Fyrsta sameiginlega norræna könnunin um viðhorf til grunn- og framhaldsskóla var gerð í febrúar–maí árið 2000. Niðurstöður könnunarinnar eru birtar í skýrslunni Nordisk skolbarometer – Attityder till skolan år 2000 eða Mælistika á norræna skóla – viðhorf til skólans árið 2000, sem gefin er út af Norrænu ráðherranefndinni og kom út að vori 2001.
    Markmið könnunarinnar var að afla sambærilegra upplýsinga frá öllum Norðurlöndunum um viðhorf almennings til ýmissa þátta skólastarfs. Á þann hátt reyndist mögulegt að bera saman afstöðu fólks eftir löndum, sem og innan hvers lands fyrir sig. Könnunin náði til foreldra barna í grunn- og framhaldsskólum og þeirra sem ekki eiga börn í skólum. Svörun hér landi var 70%.
    Hverju landi fyrir sig var heimilt að bæta við spurningum sem vörðuðu skólamál þess lands sérstaklega. Þær spurningar voru einungis lagðar fyrir í því landi sem þær áttu við.
    Markverðustu niðurstöður könnunarinnar með tilliti til Íslands eru meðal annars að Íslendingar leggja meiri áherslu en hinar þjóðirnar á að skólarnir beri meiri ábyrgð á einstaklings- og félagsþroska nemendanna en nú tíðkast. Þeir hafa enn fremur meiri áhuga á því en hinar þjóðirnar að nemendur eigi að afla upplýsinga sjálfir og að þeir læri að vinna saman í hópum. Einnig leggja þeir mikla áherslu á að alþjóðleg tengsl skóla verði efld. Íslenskir foreldrar eru ánægðastir með fjárframlög til ýmissa þátta í skóla barna þeirra, svo sem fjölda kennslustunda, tölva og námsbóka. Íslendingar taka undir þá skoðun í meira mæli en aðrir að kennarastarfið njóti lítillar virðingar.
    Helstu niðurstöður úr íslenska hluta könnunarinnar miðað við þá sem tóku afstöðu voru eftirfarandi:
    Of lítil samfella er í námi milli grunn- og framhaldsskóla. 70% voru mjög eða frekar sammála þessari fullyrðingu.
     Það á hvorki að lengja skólaárið í grunnskólum né í framhaldsskólum úr 9 mánuðum í 10 mánuði. 64% voru mjög eða frekar ósammála því að lengja skólaárið í grunnskólum og 67% voru mjög eða frekar ósammála því að lengja skólaárið í framhaldsskólum.
     Það skiptir mjög eða frekar miklu máli að nemendur öðlist góða þekkingu og færni í dönsku. 60% fannst það skipta mjög eða frekar miklu máli að nemendur öðlist góða þekkingu og færni í dönsku en 39% fannst að skólum hefði tekist mjög eða frekar vel að veita nemendum góða þekkingu og færni í dönsku.
     Nemendur í 4. og 7. bekk eiga að þreyta samræmd próf. Rúmur meiri hluti, eða 54%, var þeirrar skoðunar að nemendur í 4. og 7. bekk eigi að þreyta samræmd próf.
     Skiptar skoðanir um val um samræmd próf við lok grunnskóla. Helmingi, eða 50%, fannst að nemendur ættu ekki að geta valið um hvaða samræmd próf þeir taka við lok grunnskóla. 40% töldu að nemendur ættu að geta valið og 10% voru hvorki sammála né ósammála þessu atriði.
     Birta á opinberlega útkomu einstakra skóla í samræmdum prófum. 60% voru á þeirri skoðun að birta ætti opinberlega árangur einstakra skóla í samræmdum prófum.
     Bóklegt nám til stúdentsprófs á að taka þrjú ár og það eiga að vera samræmd stúdentspróf í nokkrum námsgreinum. Að mati 60% á bóklegt nám til stúdentsprófs að taka þrjú ár og 66% voru mjög eða frekar sammála því að hafa samræmd stúdentspróf í nokkrum námsgreinum.
     Foreldrum grunnskólabarna finnst foreldraviðtölum vera fylgt vel eftir. 71% foreldra grunnskólabarna fannst foreldraviðtölum vera fylgt vel eftir.
    Norrænn matshópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar bar ábyrgð á framkvæmd könnunarinnar, en einnig var starfandi undirhópur skipaður fulltrúum hvers lands. Menntamálaráðuneytið átti fulltrúa í báðum þessum hópum. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands var falið að annast framkvæmd könnunarinnar hér á landi.
    Nánari upplýsingar um könnunina og framkvæmd hennar má finna í skýrslunni, „Nordisk skolbarometer – Attityder till skolan år 2000“ eða Mælistika á norræna skóla – viðhorf til skólans árið 2000. Einnig má finna fréttatilkynningu um könnunina á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar, www.norden.org.

PISA – alþjóðleg rannsókn á árangri 15 ára nemenda í lestri, stærðfræði og náttúrufræði.
    PISA (Programme for International Student Assessment) er alþjóðleg rannsókn á vegum OECD á árangri 15 ára nemenda í lestri, stærðfræði og náttúrufræði. Fyrsti hluti rannsóknarinnar fór fram árið 2000 og voru fyrstu niðurstöður hennar birtar haustið 2001. Aðaláhersla í þessum hluta var á frammistöðu í lestri. Byggt var á svörum 265.000 nemenda í 32 löndum, þar á meðal Íslandi. Með rannsókninni er metið hve vel nemendum, sem eru að ljúka skyldunámi, hefur tekist að tileinka sér þá þekkingu og ná þeirri hæfni sem þeir þurfa á að halda til þess að taka fullan þátt í nútímasamfélagi. Sams konar mat mun fara fram á þriggja ára fresti í framtíðinni og er PISA víðtækasta rannsókn sem gerð hefur verið á þekkingu og getu nemenda.
    Allir íslenskir nemendur í 10. bekk árið 2000 tóku þátt í rannsókninni og sýna niðurstöður að árangur Íslendinga í lestri var marktækt ofan við meðaltal nemenda í OECD-löndunum. Hið sama gildir um árangur í stærðfræði, en í náttúrufræði var ekki marktækur munur á árangri íslenskra nemenda og meðaltali nemenda allra þátttökulandanna. Finnar stóðu sig best í lestri og Japanar og Kóreumenn náðu bestum árangri í stærðfræði og náttúrufræði. Meðal þjóðanna þriggja var og bilið á milli bestu og slökustu nemendanna minnst. Lítill sem enginn munur er á árangri íslenskra nemenda eftir skólum, en það endurspeglar einsleitni í íslenska skólakerfinu. Rannsóknin bendir til þess að hér á landi sé lökustu nemendunum vel sinnt í samanburði við það sem gerist annars staðar.
    Fyrir utan að meta árangur nemenda fjallar PISA einnig um viðhorf þeirra, námsvenjur og vinnuaðferðir og hvernig þessir þættir hafa áhrif á námsárangur. Einnig tengir rannsóknin upplýsingar um aðstæður skóla, kennsluhætti og margt fleira, við árangur í lestri, stærðfræði og náttúrufræði.
    Niðurstöður rannsóknarinnar eru meðal annars eftirfarandi:
     10% 15 ára nemenda í þróuðustu löndum heims, sýna hámarksgetu í lestri. Þessir nemendur skilja flókið ritað mál, geta túlkað upplýsingar og dregið af þeim réttar ályktanir, ásamt því að nýta sér margs konar sértæka þekkingu. Í Ástralíu, Kanada, Finnlandi, Nýja Sjálandi og Bretlandi er þetta hlutfall 15–19%. Á Íslandi er það 9%, sem er sambærilegt meðaltali OECD-landanna allra, en verulega lægra en hjá þjóðunum sem ná bestum árangri.
     6% 15 ára nemenda í rannsókninni sýna minna en lágmarksgetu í lestri og í sumum löndum er hlutfallið helmingi hærra. Færni í lestri er skipt í fimm hæfnisþrep. Þeir sem mælast með getu undir fyrsta þrepi sýna minnstu getu sem mæld er í PISA-rannsókninni. Á fyrsta þrepi eru að jafnaði 12% nemenda. Til að ná því þrepi þarf grundvallarhæfni í lestri að vera til staðar og verða nemendur að geta ráðið við verkefni eins og að finna ákveðið atriði í texta eða skilja meginþema hans. Ungt fólk sem hefur ekki þessa hæfni stendur ekki vel að vígi til frekara náms og á því í erfiðleikum með að afla sér meiri menntunar og ná árangri á öðrum sviðum að loknu skyldunámi. Á Íslandi er hlutfall nemenda sem ekki nær fyrsta hæfnisþrepi marktækt lægra en OECD-meðaltalið, eða um 4%, sem bendir til þess að hér á landi sé lökustu nemendunum vel sinnt í samanburði við það sem gerist annars staðar.
     Í stærðfræði voru íslenskir nemendur nokkuð fyrir ofan meðaltal OECD-landanna. Japanar og Kóreumenn standa sig best í stærðfræði og náttúrufræði. Mæld er hæfni til að nota þá stærðfræði- og náttúrufræðiþekkingu sem nemendur hafa aflað sér í skólanum og í veröld sem æ meira byggist á tæknilegum og vísindalegum framförum. Stærðfræði og náttúrufræði eru samanlagt einungis þriðjungur PISA-rannsóknarinnar og því segja niðurstöðurnar ekki mikið um almenna getu nemenda á þessum sviðum. Þær gefa þó vægar vísbendingar um framfarir í stærðfræði í íslensku skólakerfi frá því að síðasta alþjóðlega rannsókn á stærðfræðigetu var gerð. Árangur íslenskra nemenda í náttúrufræði er hins vegar lítils háttar undir meðaltali OECD-landanna, þótt munurinn sé ekki marktækur.
     Góður almennur árangur hefur sterk tengsl við jafna dreifingu niðurstaðna. Meðaltöl árangurs í greinunum þremur sýna að í sumum löndum, sérstaklega í Finnlandi, Japan og Kóreu, er bilið á milli þeirra sem standa sig best og þeirra sem sýna slakastan árangur í lestri frekar lítið þannig að viðkomandi þjóðir standa sig að meðaltali vel. Í Þýskalandi, þar sem bilið á milli bestu og slökustu nemenda var einna mest, er meðalárangur undir OECD-meðaltalinu og stór hluti dreifingarinnar er mismunur milli skóla. Meðalárangur Íslendinga var marktækt yfir OECD-meðaltalinu og bilið á milli besta og lakasta árangurs var frekar lítið. Andstætt því sem var í Þýskalandi reyndist dreifing niðurstaðna í íslenska úrtakinu öll vera vegna mismunar milli nemenda og að ákaflega litlu leyti vegna mismunar milli skóla. Lítill sem enginn munur er því á árangri íslenskra nemenda eftir skólum, en það endurspeglar einsleitni íslenska skólakerfisins og styður þá hugmynd að á Íslandi sé ekki um að ræða marktæka mismunun í námi eftir skólum, hverfum, landshlutum og efnahag skóla, eins og sjá má í flestum öðrum löndum.
     Í mörgum löndum eru strákar á eftir í lestri. Stelpur stóðu sig betur í lestri en strákar í öllum þátttökulöndunum. Þó sýnir marktækur munur á milli landa að skólakerfi þeirra bjóða nemendum umhverfi og aðstæður sem henta báðum kynjum í misjöfnum mæli. Í öllum þátttökulöndunum eru strákar líklegri til þess að vera á fyrsta þrepi eða neðar í lestri. Á Íslandi eru strákar helmingi líklegri en stelpur til þess að vera á fyrsta þrepi eða neðar í lestrargetu, sem bendir til þess að sinna þurfi þeim mun betur en nú er gert.
     Í helmingi þátttökulandanna standa strákar sig betur en stelpur í stærðfræði. Stóran hluta þessa munar má rekja til þess að hlutfall stráka á meðal þeirra bestu er hærra en stelpna, en kynjahlutfallið er jafnt á meðal þeirra sem standa sig illa. Á Íslandi reyndist ekki vera marktækur munur á kynjunum, hvorki í stærðfræði né í náttúrufræði. Hafa ber í huga að PISA- verkefnin í stærðfræði og náttúrufræði eru ákaflega háð lestrargetu og má búast við því að væru þau tengsl minni mundi árangur strákanna verða betri en skólasystra þeirra, sérstaklega í stærðfræði. Því er ljóst að reyni stærðfræðiverkefni verulega á lestrargetu standa stelpur sig eins vel og strákar.
     Nemendur sem hafa betri félagslega stöðu standa sig nokkuð betur en þeir sem hafa laka stöðu, en þessi munur er minni í sumum löndum en öðrum. Kanada, Finnland, Ísland, Japan, Kórea og Svíþjóð eru lönd sem eru yfir meðaltali OECD-landanna í lestrargetu og í þessum löndum virðast áhrif félagslegra aðstæðna á árangur nemenda vera hvað minnst. Í Tékklandi, Þýskalandi, Ungverjalandi og Lúxemborg er þessu öfugt farið, þ.e. félagsleg staða hefur mikil áhrif á árangur. Því má draga þá ályktun að á Íslandi hafi nemendur jafnan aðgang að námi, óháð efnhags- og félgaslegri stöðu, samanborið við mörg önnur lönd.
    Almennt má segja að árangur íslenskra nemenda í þessari rannsókn hafi verið vel viðunandi þar sem niðurstöðurnar gefa til kynna að íslenskir nemendur standi sig að jafnaði eins vel eða betur en nemendur þeirra þjóða sem Íslendingar vilja gjarnan bera sig saman við. Ljóst er þó af samanburði við þær þjóðir sem standa sig best að enn má gera verulega betur í öllum greinunum sem rannsakaðar voru. Fjölga þarf þeim nemendum sem ná hæsta þrepi í lestri þar sem fyrsta skoðun niðurstaðnanna bendir til þess að í íslenskum skólum sé allstór hópur nemenda sem hefur ekki nægilega verðug verkefni eða sem fullnýtir ekki getu sína í grunnskólanum. Niðurstaðan í stærðfræði er væg vísbending í þá átt að skólakerfið hafi bætt árangur sinn í þeirri grein frá fyrri alþjóðlegu rannsóknum, en betra svar við þeirri spurningu fæst fyrst árið 2004, þegar niðurstöður liggja fyrir úr PISA 2003, þar sem áherslan er á stærðfræði. Árangurinn í náttúrufræði var ekki nægilega góður, en með breyttum áherslum í náttúrufræði í skólum landsins, ásamt nýrri aðalnámskrá og námsefni, er unnið að úrbótum á þessu sviði.
    Frekari upplýsingar má fá úr skýrslu um fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar, sem hægt er að nálgast hjá Námsmatsstofnun og á vef stofnunarinnar, www.namsmat.is/pisa. Jafnframt má nálgast upplýsingar um rannsóknina hjá OECD á www.pisa.oecd.org/.

PIRLS – alþjóðleg rannsókn á læsi barna.
    Fyrsta alþjóðlega læsisrannsóknin á vegum IEA (International Association for the Evaluation of Educational Achievement) var gerð árið 1991.
    Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála (nú Námsmatsstofnun) tók þátt í þeirri rannsókn fyrir hönd Íslands með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Niðurstöður þeirrar rannsóknar höfðu margvísleg jákvæð áhrif á áherslur í lestrarkennslu í íslenskum skólum.
    Vegna mikilvægis lestrarfærni fyrir framtíð barna ákvað IEA að gera aðra fjölþjóðlega rannsókn á læsi 9 ára barna (PIRLS – Progress in International Reading Literacy Study) og taka um 35 þjóðir þátt í rannsókninni. Námsmatsstofnun tekur þátt í rannsókninni fyrir hönd Íslands með fjárstuðningi menntamálaráðuneytis. Alþjóðleg yfirstjórn rannsóknarinnar er á hendi Boston College í Bandaríkjunum.
    Með þátttöku í PIRLS gefst tækifæri til að skoða breytingar á lestrarfærni íslenskra barna í fjölþjóðlegu samhengi á tíu ára tímabili. Jafnframt gefst tækifæri til að leggja grunn að frekari samanburði milli landa og á tilteknu tímabili á lestrarfærni í framtíðinni.
    Í PIRLS er sjónum beint að samanburðarhæfum upplýsingum um læsi níu ára barna. Rannsóknin beinist sérstaklega að þeim þáttum, heima og í skóla, sem hafa áhrif á lestrarnám og lestrarfærni níu ára barna. Með því að beina athyglinni að stöðu barna eftir nokkurra ára lestrarnám er hægt að bregðast við á annan hátt en þegar læsið er kannað við lok grunnskólanáms þeirra.
    Þess er vænst að niðurstöður rannsóknarinnar muni styrkja fagumhverfi lestrarkennslu í grunnskólum hér á landi og í kennaranámi.
    Rannsóknin hófst formlega árið 1999 og mun ljúka fyrri hluta ársins 2003 með útgáfu á gagnagrunni rannsóknarinnar. Frekari upplýsingar um rannsóknina má nálgast hjá Námsmatsstofnun eða á vef stofnunarinnar, www.namsmat.is/pirls.

V. Starfsfólk við kennslu.


Lögverndunarlög.
    Ný lög um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra voru samþykkt á Alþingi árið 1998. Breytingar frá fyrri löggjöf eru m.a. þær að þeir sem aflað hafa sér verulegrar fagmenntunar umfram það sem lögin gera ráð fyrir þurfa að taka 15 einingar í uppeldis- og kennslufræði í stað 30 áður til að öðlast kennsluréttindi. Sama gildir um iðnmeistara og tæknifræðinga að uppfylltum vissum skilyrðum. Sérstök matsnefnd skipuð af menntamálaráðherra metur umsóknir um leyfisbréf þegar ekki liggur ljóst fyrir að viðkomandi uppfylli öll skilyrði laganna.

Kennarar og leiðbeinendur.
    Starfsfólki við kennslu hefur fjölgað nokkuð frá hausti 1998 til haustsins 2000 eða um 184. Hlutfall réttindakennara á landinu öllu var 82% árið 1998, 84% árið 1999 og 81% árið 2000. Hlutfall leiðbeinenda hefur því hækkað frá árinu 1998. Árið 1998 var hlutfall leiðbeinenda hæst á Vestfjörðum, eða 51%, en á Norðurlandi vestra næstu tvö árin, eða 41%, sjá töflu 5.1. Frá ársbyrjun 1998 til júní 2001 voru alls gefin út 668 leyfisbréf af menntamálaráðuneytinu fyrir grunnskólakennara, þar af voru 220 leyfi veitt árið 1998, en 231 árið 1999, 158 leyfi voru svo veitt árið 2000 en frá janúar til júní 2001 voru gefin út 59 leyfisbréf.

Tafla 5.1 Starfsfólk við kennslu í grunnskólum, eftir kennsluréttindum


og landshlutum, að hausti 1998, 1999 og 2000.



1998–1999 1999–2000 2000–2001*
Með réttindi Án réttinda Með réttindi Án réttinda Með réttindi Án réttinda
Alls við kennslu Fjöldi % Fjöldi % Alls við kennslu Fjöldi % Fjöldi % Alls við kennslu Fjöldi % Fjöldi %
Landið allt 4.045 3.336 82 709 18 4.196 3.502 84 694 17 4.229 3.419 81 810 19
Höfuðborgarsvæði 2.116 1.983 94 133 6 2.203 2.059 94 144 7 2.212 1.983 90 229 10
–Reykjavík 1.338 1.251 93 87 7 1.375 1.283 93 92 7 1.341 1.174 88 167 12
–Utan Reykjavíkur 778 732 94 46 6 828 776 94 52 6 871 809 93 62 7
Suðurnes 197 153 78 44 22 215 162 75 53 25 213 154 72 59 28
Vesturland 277 207 75 70 25 274 215 79 59 22 275 207 75 68 25
Vestfirðir 172 84 49 88 51 174 106 61 68 39 173 105 61 68 39
Norðurland vestra 187 115 61 72 39 193 114 59 79 41 192 114 59 78 41
Norðurland eystra 466 325 70 141 30 487 351 72 136 28 485 342 71 143 29
Austurland 245 161 66 84 34 248 162 65 86 35 263 170 65 93 35
Suðurland 385 308 80 77 20 402 333 83 69 17 416 344 83 72 17
Meðtaldir: Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar, kennarar og leiðbeinendur.
*Lögheimili starfsfólks við kennslu 1. desember 2000 er notað við ákvörðun búsetu.
Heimild: Hagstofa Íslands.

    Í töflu 5.2 má sjá skiptingu starfsfólks við kennslu eftir starfssviði. Þar kemur m.a. fram að leiðbeinendum hefur fjölgað talsvert, eða um 97, og m.a. eru nokkrir skólastjórar og aðstoðarskólastjórar án kennsluréttinda. Hlutfall kvenna meðal kennara er um 78%, en meðal skólastjóra 35–39%. Meðal aðstoðarskólastjóra eru konur 55–59%. Stöðugildum við kennslu í grunnskólum hefur fjölgað um 266 frá 1998 til 2000. Þar munar mest um fjölgun stöðugilda kennara um 245.

Tafla 5.2 Starfsfólk við kennslu í grunnskólum , eftir starfssviði.



Starfsfólk Hlutfall kynja Samanlagt stöðuhlutfall
Alls Með
réttindi
Án
réttinda
Karlar Konur Alls Með
réttindi
Án réttinda
Október 1998
Alls 4.045 3.336 709 26 74 3.518 2.989 530
Skólastjórar 193 191 2 65 35 192 191 2
Aðstoðarskólastjórar 126 126 – 43 57 126 126 –
Kennarar 1) 3.726 3.019 707 23 77 3.201 2.673 528
Október 1999              
Alls 4.196 3.502 694 25 75 3.702 3.180 524
Skólastjórar 190 187 3 65 35 189 187 3
Aðstoðarskólastjórar 142 138 4 45 55 140 137 4
Kennarar 1) 3.864 3.177 687 22 78 3.373 2.856 517
Október 2000              
Alls 4.229 3.419 810 24 76 3.784 3.142 642
Skólastjórar 190 186 4 61 39 189 186 3
Aðstoðarskólastjórar 150 148 2 41 59 149 147 2
Kennarar 1) 3.889 3.085 804 22 78 3.446 2.809 637
1)Grunnskólakennarar, sérkennarar og leiðbeinendur.
Heimild: Hagstofa Íslands.

    Mikill meiri hluti starfsfólks við kennslu er í fullu starfi, eða 61–65%. Nokkuð algengt er að réttindakennarar séu í 50–74% starfi, eða um 12–17% þess hóps, sjá töflu 5.3.

Tafla 5.3 Starfsfólk við kennslu í grunnskólum, eftir stöðuhlutfalli.



 
 
Stöðuhlutfall Við kennslu, alls       Með kennsluréttindi       Án kennsluréttinda      
Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall
Október 1998              
Landið allt Alls 4.045 100 3.336 82 709 18
  <0,50 215 5 80 2 135 3
  0,50–0,74 852 21 701 17 151 4
  0,75–0,99 142 4 78 2 64 2
  1,00 2.836 70 2.477 61 359 9
Október 1999              
Landið allt Alls 4.196 100 3.502 83 694 17
  <0,50 225 5 100 2 125 3
  0,50–0,74 747 18 588 14 159 4
  0,75–0,99 145 3 100 2 45 1
  1,00 3079 73 2714 65 365 9
Október 2000              
Landið allt Alls 4.229 100 3.419 81 810 19
  <0,50 199 5 91 2 108 3
  0,50–0,74 689 16 500 12 189 4
  0,75–0,99 121 3 71 2 50 1
  1,00 3.220 76 2.757 65 463 11
Meðtaldir: Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og kennarar.
Lögheimili starfsfólks við kennslu 1. desember 2000 er notað við ákvörðun búsetu.
Heimild: Hagstofa Íslands.

    Þegar aldursdreifing starfsfólks við kennslu er skoðuð kemur í ljós að flestir eru á aldrinum 35–49 ára. Konur eru fjölmennari við kennslu á aldrinum 25–44 ára, en karlar eru fjölmennari það sem eftir lifir starfsævinnar, þótt ekki muni þar miklu. Töluverð fækkun kemur fram milli aldurshópanna 50–54 ára og 55–59 ára, þar fækkar konum mun meira en körlum. Aðeins um 7% starfsfólks við kennslu er 60 ára og eldra.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Brautskráðir kennarar.
    Á mynd 5.2 má sjá fjölda brautskráðra kennara frá 1995–2001 frá Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Taldir eru með allir þeir sem útskrifast úr kennaranámi, bæði úr B.Ed.-námi og uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda. Þótt þessi skýrsla nái yfir þrjú skólaár er valið að birta hér til fróðleiks upplýsingar um útskrifaða kennara á lengra tímabili. Nokkur fjölgun kemur fram hjá Kennaraháskóla Íslands árið 1995–1996 en þá voru í fyrsta sinn útskrifaðir nemendur í fjarnámi frá skólanum. Skólaárið 1998–1999 útskrifuðust 39 úr fjarnámi frá KHÍ, 1999–2000 útskrifuðust 35 úr fjarnámi og 39 skólaárið 2000–2001.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Mat á þörf fyrir grunnskólakennara fram til ársins 2010.

    Nefnd sem menntamálaráðherra skipaði til að meta þörf fyrir grunnskólakennara fram til ársins 2010 skilaði skýrslu sinni í febrúar 1999. Í fyrsta hluta skýrslunnar er gerð grein fyrir þróun á síðustu árum, í öðrum hluta er útskýrt hver staðan er og hvaða þróun er líkleg fram til ársins 2010. Í þriðja hluta skýrslunnar setur nefndin fram hugmyndir um aðgerðir. Menntamálaráðherra fékk rektora Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri til að ræða niðurstöður nefndarinnar og fram kom vilji til samstarfs um aðgerðir í þessu efni. Beinist athyglin einkum að því að fjölga nemendum í fjarnámi. Þess má geta að árið 2000 voru tæplega 700 nemendur skráðir í fjarnám í Kennaraháskóla Íslands.

Endurmenntunarsjóður grunnskólakennara.
    Menntamálaráðherra setti á stofn Endurmenntunarsjóð grunnskólakennara með 18 millj. kr. framlagi af því fé sem veitt var í fjárlögum 1999 til að fylgja eftir nýrri aðalnámskrá grunnskóla. Með stofnun sjóðsins um það bil tvöfaldaðist fé til endurmenntunar grunnskólakennara því að Kennaraháskóli Íslands hafði áður fengið fjárveitingu til almennrar endurmenntunar á árinu 1999. Sérstakar reglur voru settar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla og stjórn hans, en í henni sitja fulltrúar frá menntamálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands.
    Umtalsverður fjöldi endurmenntunarnámskeiða á þessum tíma hefur verið á sviði tölvu- og upplýsingatækni en einnig hafa mörg námskeið verið haldin í námsgreinum sem mikil áhersla er lögð á í nýrri námskrá, svo sem í erlendum tungumálum, náttúrufræði og lífsleikni. Fjölbreytni í námskeiðum hefur verið mikil.

Tafla 5.4 Fjöldi verkefna og styrkveitingar 1999–2001.



1999 2000 2001
Fjöldi styrktra verkefna 60 69 143
Heildarstyrkveiting í millj. kr. 18,0 22,0 26,6

VI. Útgjöld til grunnskóla.


    Með vísan til 12. gr. í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um kostnaðar- og tekjutilfærslu vegna flutnings grunnskólans, dags. 4. maí 1996, skipaði menntamálaráðherra hinn 29. desember 1999 nefnd til að fylgjast með endurmati á kostnaði við flutning grunnskólans til sveitarfélaga. Var nefndinni ætlað að finna og semja við hlutlausan aðila um að endurmeta kostnaðar- og tekjuþörf við framkvæmd grunnskólalaganna, fylgjast með verkinu, veita matsaðila upplýsingar og stuðla að því að hann fengi greiðar upplýsingar frá öðrum. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar af hálfu ríkis og sveitarfélaga. Var nefndin einhuga um að semja við KPMG Endurskoðun hf. um að annast endurmatið sem fólst í því að yfirfara og sannreyna ýmsar tölulegar upplýsingar og útreikninga, sem gerðir voru á vegum nefndarinnar, til þess að varpa ljósi á þróun tekna og gjalda sveitarfélaga vegna grunnskólans frá árinu 1996. Nefndin skilaði skýrslu árið 2000 og eru helstu niðurstöður nefndarinnar þessar:
    Á tímabilinu 1996–1999 er lítill munur á tekjum og útgjöldum sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla. Aukning hefur orðið bæði í tekjum og gjöldum, en gjöldin hafa þó vaxið hraðar. Tekjur sveitarfélaga voru umfram gjöld fyrri tvö árin, þ.e. á árinu 1996 um 273 millj. kr. og á árinu 1997 um 238 millj. kr. Breyting verður á síðari tvö árin. Á árinu 1998 voru rekstrargjöld umfram tekjur 171 millj. kr. en 625 millj. kr. á árinu 1999. Á tímabilinu 1996 til 1999 fór kostnaður sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla samtals tæpar 300 millj. kr. fram úr tekjum.
    Mismunur á útgjöldum og tekjum sveitarfélaga vegna grunnskólans getur átt sér ýmsar orsakir. Launakostnaður er mjög stór hluti af rekstrarkostnaði grunnskólans og hafa launabreytingar því mikil áhrif á þróun kostnaðar. Í skýrslunni er sérstaklega nefnt að sveitarfélögin gerðu sameiginlega kjarasamninga við kennara 1997 auk þess sem þau gerðu hvert fyrir sig viðbótarkjarasamninga við kennara á árunum 1998 og 1999 um frekari launahækkanir.
    Á tímabilinu 1996 til 1999 jukust tekjur sveitarfélaga af útsvari talsvert þar sem útsvarsstofn hefur hækkað umfram almenna verðlagsþróun.
    Í skýrslu KPMG Endurskoðunar hf. er vikið að tveimur atriðum sem haldið hefur verið fram að gætu haft áhrif á kostnað sveitarfélaganna af rekstri grunnskólans. Kemur fram í skýrslunni að kostnaðaráhrif nýrrar aðalnámskrár grunnskóla séu tæpast komin fram svo að neinu nemi í rekstrarkostnaði ársins 1999. Aðalnámskrá grunnskóla hafi verið gefin út á árinu 1999 og því hafi ekki verið lagt mat á kostnaðaráhrif aðalnámskrárinnar í skýrslunni. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að sé um viðbótarkostnað að ræða fyrir sveitarfélög vegna úrskurða menntamálaráðuneytisins um fjölda kennsludaga og kennslustunda ætti sá viðbótarkostnaður nú þegar að hafa komið fram í reikningum sveitarfélaga og gæti að einhverju leyti skýrt mismun tekna og gjalda.
    Ekki verður annað séð en að aukning á kostnaði sveitarfélaganna vegna grunnskólans verði rakin til ákvarðana sveitarfélaganna eftir að þau tóku ábyrgð á grunnskólanum án þess að ríkið eigi þar hlut að máli.
    Skýrsla nefndarinnar er aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is.

Framlög til grunnskóla 1995–2000.
    Þótt skýrsla þessi miðist við tímabilið 1998–2001 er talið rétt að birta upplýsingar um framlög til grunnskóla yfir lengra tímabil.
    Þegar fjallað er um útgjöld til grunnskóla fyrir tímabilið 1995–2000 ber að hafa í huga að 1. ágúst 1996 komu grunnskólalögin að fullu til framkvæmda þannig að frá þeim tíma hafa sveitarfélögin fjármagnað starfsemi grunnskólanna. Ríkið ber áfram kostnað vegna námsgagna, samræmdra prófa, kennaramenntunar og nokkurra annarra þátta.
    Eins og sjá má í töflu 5.1 hafa framlög hins opinbera til grunnskóla hækkað mikið frá árinu 1995 og eru nú 3,26% af vergri landsframleiðslu. Hækkunin nemur 0,83% á tímabilinu. Kostnaður á hvern nemenda var árið 2000 um 500 þúsund krónur og hafði hækkað um 240 þúsund krónur frá 1995. Framlag ríkissjóðs hefur af eðlilegum ástæðum lækkað og var árið 2000 0,11% af vergri landsframleiðslu, en framlag sveitarfélaga var árið 2000 3,15% af vergri landsframleiðslu, miðað við 1,17% árið 1995. Í töflu 5.1 eru útgjöld heimila vegna grunnskóla talin nema um 0,11% af vergri landsframleiðslu árið 2000. Rétt er að vekja athygli á því að tölur um útgjöld heimila eru gróf áætlun. Þær upplýsingar sem taflan er byggð á eru fengnar frá Þjóðhagsstofnun og Hagstofu Íslands, en rétt er að taka fram að aðrar tölur um framlög til grunnskóla hafa birst opinberlega. Hér er valin sú leið að telja framlag ríkissjóðs til sveitarfélaga sem samið var um vegna flutnings grunnskólans sem útgjöld ríkissjóðs en ekki sem útgjöld sveitarfélaga eins og stundum er gert.

Tafla 6.1 Útgjöld til grunnskóla 1995–2000.



1995 1996 1997 1998 1999 2000
Útgjöld hins opinbera í millj. kr. 10.979 13.159 14.977 17.631 19.604 21.760
Hlutfall af vergri landsframleiðslu 2,43 2,72 2,89 3,07 3,19 3,26
Kostnaður hins opinbera á nemanda í þús. kr. 260 313 354 416 456 499
Útgjöld ríkissjóðs í millj. kr.* 5.691 6.904 2.039 746 800 718
Hlutfall af vergri landsframleiðslu 1,26 1,42 0,39 0,13 0,13 0,11
Kostnaður ríkissjóðs á nemanda í þús. kr. 135 164 48 18 19 16
Útgjöld sveitarfélaga í millj. kr. 5.288 6.255 12.938 16.885 18.804 21.042
Hlutfall af vergri landsframleiðslu 1,17 1,29 2,50 2,94 3,06 3,15
Kostnaður sveitarfélaga á nemanda í þús. kr. 125 149 306 398 437 482
Útgjöld heimila í millj. kr.** 495 584 530 576 627 718
Hlutfall af vergri landsframleiðslu 0,11 0,12 0,10 0,10 0,10 0,11
Kostnaður heimila á nemanda í þús. kr. 12 14 13 14 15 16
Verg landsframleiðsla 451.805 484.655 517.627 573.419 614.596 667.515
*1996: Tilfærsla frá ríki til sveitarfélaga vegna grunnskóla var 2.772 millj. kr. og er sú upphæð færð sem útgjöld ríkissjóðs.
1997: Tilfærsla frá ríki til sveitarfélaga vegna grunnskóla var 1.261 millj. kr. og er sú upphæð færð sem útgjöld ríkissjóðs.
** Hér er um grófa nálgun að ræða.
Heimildir: Búskapur hins opinbera 1995–1996, Þjóðhagsstofnun, nóvember 1997 og Hagstofa Íslands 2002.

VII. Málþing og ráðstefnur.


Málþing um skólareglur og aga 1999.
    Samráðsnefnd menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samtaka kennara og skólastjóra settu á fót starfshóp til að fjalla um skólareglur og aga í grunnskólum í árslok 1998. Nánar tiltekið var hópnum falið að huga að endurskoðun á gildandi reglugerð, nr. 385/1996, um skólareglur og aga í grunnskólum, og að taka saman leiðbeinandi vinnureglur um meðferð agabrota í grunnskólum, m.a. með tilliti til stjórnsýslulaga. Loks skyldi hugað að undirbúningi málþings um agamál í skólum.
    Í desember 1999 var haldið lokað málþing um skólareglur og aga í grunnskólum sem var undirbúið af starfshópnum um skólareglur og aga í grunnskólum. Þingið sóttu um 100 fulltrúar. Markmiðið með málþinginu var að gera grein fyrir skýrslu starfshópsins og fjalla um einstakar tillögur hans, m.a. drög að nýrri reglugerð sem hópurinn vann. Á þinginu var gerð grein fyrir starfi hópsins, flutt ávörp og stutt erindi. Að því loknu var þingfulltrúum skipt í hópa til að ræða einstakar tillögur starfshópsins.
    Skýrsla hópsins og efni frá málþinginu er aðgengilegt á heimasíðu ráðuneytisins, www. menntamalaraduneyti.is. Í kjölfarið var gefin út ný reglugerð um skólareglur í grunnskóla, nr. 270/2000.

Málþing um lestrarörðugleika og lesskimun 2000.
    Í júní 2000 stóð menntamálaráðuneytið fyrir opnu málþingi um lestrarerfiðleika og lesskimun, en sérstök framkvæmdanefnd um lesskimun í grunn- og framhaldsskólum hafði lagt til að menntamálaráðuneytið héldi slíkt málþing. Markmiðið með málþinginu var að fá fram ólík sjónarmið og safna upplýsingum um stöðu lesskimunar hér á landi þannig að hægt væri með markvissum hætti að fylgja eftir markaðri stefnu ráðuneytisins sem staðfest er í aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla.
    Á málþinginu fluttu íslenskir sérfræðingar erindi um ýmsa þætti lesskimunar og lestrarörðugleika, t.d. skilgreiningar á lestrarörðugleikum, aðferðir við að meta sértæka lestrarörðugleika og úrræði fyrir nemendur. Jafnframt var greint frá ýmsum mats- og mælitækjum þar að lútandi. Málþingið var öllum opið og var þátttakendum að kostnaðarlausu en alls sóttu á fjórða hundrað þátttakendur þingið.
    Frekari upplýsingar um efni þingsins eru aðgengilegar á heimasíðu ráðuneytisins.

Árlegt málþing í Kennaraháskóla Íslands um rannsóknir – nýbreytni – þróun.
    Á undanförnum árum hefur málþing um nýbreytni og þróunarvinnu í skóla- og uppeldismálum verið haldið á vegum Rannsóknastofnunar Kennaraháskóla Íslands með fjárhagslegum stuðningi frá ýmsum aðilum og þátttöku við undirbúning, m.a. frá menntamálaráðuneytinu. Helsta markmið þessara málþinga er að skapa vettvang til kynningar á verkefnum á sviði þróunar- og nýbreytnistarfs og efla rannsóknar- og þróunarviðleitni kennara og annarra uppeldisstétta. Sjá nánar á heimasíðu Kennaraháskóla Íslands, www.khi.is.
    Á þessum málþingum hefur komið greinilega í ljós sú mikla gróska sem er í þróunarstarfi í skólum hér á landi, ekki síst á leik- og grunnskólastigi. Fyrsta málþingið var haldið 1997 og hefur það orðið að föstum árlegum viðburði.

UT-ráðstefnur 1999, 2000 og 2001.
    Menntamálaráðuneytið hefur árlega frá 1999 staðið að sérstökum ráðstefnum um tölvu- og upplýsingatækni í skólastarfi á öllum skólastigum. Á ráðstefnunum hefur ráðuneytið kynnt stefnu sína á þessu sviði og kynnt hafa verið þróunarverkefni á sviði tölvu- og upplýsingatækni í skólum. Jafnframt hefur verið fjallað um tæki og búnað og sýningar hafa verið á nýjasta tækja- og hugbúnaði. Dagskrá ráðstefnanna hefur verið mjög fjölbreytt. Þær hafa þótt mjög gagnlegar og hafa allar verið mjög fjölsóttar. Á UT-ráðstefnunni 2001 var m.a. kynnt verkefnaáætlun í rafrænni menntun og í tengslum við hana opnaður vefurinn menntagatt.is. Á vefnum verður í boði þjónusta við efnismiðlun, samskipti og nýsköpun.

VIII. Reglur og reglugerðir.


Reglur um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar.
    Menntamálaráðuneytið hefur haft forgöngu um samningu reglna um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar. Hefur það verið unnið í samvinnu og samráði við fjölmarga aðila sem þessi mál varða. Reglur þessar voru fyrst gefnar út 1994 en voru endurskoðaðar 1999 og sendar sveitarstjórnum og sundstöðum.
    Ráðuneytið gaf út sérstakt kynningarrit um öryggismál sundstaða sem sent var á heimili landsmanna 1999. Einnig var unnið að samningu reglna um öryggi í íþróttamannvirkjum öðrum en sundstöðum.

Reglugerð um skólareglur í grunnskólum.

    Menntamálaráðuneytið gaf út nýja reglugerð um skólareglur í grunnskólum árið 2000. Vinna við endurskoðunina fór aðallega fram í vinnuhópi með fulltrúum frá menntamálaráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambandi Íslands, Skólastjórafélagi Íslands, landsamtökunum Heimili og skóla og umboðsmanni barna.
    Í reglugerðinni er kveðið á um að hver skóli skuli setja sér skólareglur og skýrt kemur fram hvernig skólar eiga að standa að gerð skólareglna í einstökum skólum, hvaða atriði eiga að koma fram í skólareglum og hvernig standa eigi að kynningu á þeim. Í reglugerðinni um skólareglur er einnig kveðið á um hvaða málsmeðferð skuli viðhöfð og hvaða úrræða skólar megi grípa til vegna hegðunar nemenda, auk þess sem tilgreint er hvenær gæta þurfi ákvæða stjórnsýslulaga við beitingu viðurlaga. Í skólareglum á að koma skýrt fram hvernig skólinn hyggst bregðast við brotum á skólareglum. Viðurlög skulu til þess fallin að hvetja nemanda til bættrar hegðunar. Í reglugerðinni er tilgreint hvernig skólar skuli hafa samstarf við foreldra vegna hegðunar nemenda og einnig hvernig skólar skuli vinna að þessum málum í samvinnu við sérfræðiþjónustu skóla og viðkomandi skólanefndir.

Inntökuskilyrði í framhaldsskóla.
    Menntamálaráðuneytið setti árið 2000 nýja reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla. Reglugerðin er sett samkvæmt lögum um framhaldsskóla og gildir um innritun í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2001–2002. Í reglugerðinni er kveðið á um lágmarkskröfur um námsárangur í einstökum greinum og greinaflokkum við lok grunnskóla og starfsþjálfun þar sem hennar er krafist vegna inntöku nemenda á tilteknar námsbrautir framhaldsskóla. Inntökuskilyrði skulu stuðla að því að nemendur hafi nægan undirbúning til að takast á við nám á viðkomandi námsbraut. Inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir framhaldsskóla miðast við námsárangur á samræmdum lokaprófum í grunnskóla og skólaeinkunnir við lok grunnskóla.

IX. Annað.


Þróunarsjóður grunnskóla.
    Á árunum 1998–2001 styrkti ráðuneytið samtals 101 þróunarverkefni úr Þróunarsjóði grunnskóla, að upphæð um 42,4 mill. kr. Sérstök forgangssvið í þróunarsjóði á þessu tímabili voru: mat á skólastarfi/sjálfsmat, náttúrufræði/stærðfræði, samstarf heimila og skóla, íslenska, lífsleikni, upplýsingatækni, kennsla erlendra tungumála og sveigjanlegir kennsluhættir á unglingastigi.

Tafla 9.1 Styrkt verkefni og styrkveitingar 1998–2001.



1998 1999 2000 2001
Fjöldi styrktra verkefna 25 20 24 32
Heildarstyrkveiting í millj. kr. 11,0 10,0 10,4 11,0

    Menntamálaráðuneytið hefur árlega gefið út yfirlitsrit með lýsingum á einstökum þróunarverkefnum. Ritin eru aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is. Ekki var gefið út sérstakt rit um verkefni skólaársins 2000–2001 heldur er samantekt birt á heimasíðu ráðuneytisins og í sumum tilvikum heildarskýrslur um verkefnin.

Upplýsingatækni.
    Á árunum 1998–2001 var mikil gróska í þróun og notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Mikill áhugi hefur verið á þessu sviði, eins og m.a. má sjá á aðsókn að árlegum UT-þingum. Árið 1999 var undirritaður samningur við Skýrr hf. um sölu Íslenska menntanetsins og var söluandvirðinu varið til stefnumótunar og uppbyggingar á nýrri þjónustu fyrir menntakerfið á rafrænu formi á netinu. Árin 1999 og 2000 voru t.d. veittar samtals 79 millj. kr. til Námsgagnastofnunar til útgáfu kennsluhugbúnaðar í tengslum við sérstaka verkáætlun stofnunarinnar. Árið 2000 fékk Námsgagnastofnun, Skólavefurinn og fleiri aðilar einnig fjármagn til að vinna að gerð rafræns námsefnis.
    Styrkir hafa verið veittir til uppbyggingar framhaldsnáms í upplýsingatækni í Kennaraháskóla Íslands og endurmenntunarstofnun skólans fékk styrk til námskeiðahalds í upplýsingatækni fyrir grunnskólakennara á árinu 1999.

Þróunarskólar í upplýsingatækni.
    Í upphafi árs 1999 var undirritaður samningur milli menntamálaráðuneytisins og sex skóla, þriggja grunnskóla og þriggja framhaldsskóla, sem sótt höfðu um að verða þátttakendur í fjögurra ára tilraunaverkefni á vegum menntamálaráðuneytis með stuðningi sveitarfélaga og Landssímans, um þróun í notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Í verkefninu, sem lauk 2002, tóku þátt þrír grunnskólar, Árbæjarskóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri og Varmalandsskóli í Borgarfirði, og þrír framhaldsskólar, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi og Menntaskólinn á Akureyri.
    Hlutverk þróunarskólanna var að vinna að þróun upplýsingatækni í kennslu, námi og skólastarfi. Áhersla er lögð á breytt hlutverk kennarans með aukinni notkun upplýsingatækni í kennslu og miðlun reynslu af verkefnum sem tekist er á við.
    Úttekt liggur fyrir á þessu verkefni. Upplýsingar um þróunarskólaverkefnið eru á vefnum www.utskolar.is.

Lesskimunarverkefni í grunnskólum.
    Í skólastefnu menntamálaráðherra sem lögð var til grundvallar við gerð nýrra aðalnámskráa, sem gefnar voru út 1999 var áhersla lögð á að staða hvers nemanda skyldi greind frá upphafi grunnskóla til að unnt væri að koma betur til móts við þarfir hvers og eins. Var þá sett fram það markmið að foreldrum allra sex ára barna yrði boðið að börnin tækju lesskimunarpróf. Með því skyldu líkur á námsörðugleikum nemenda metnar þegar við upphaf skólagöngu og brugðist við áður en í óefni væri komið.
    Árið 2000 styrkti menntamálaráðherra gerð og útgáfu lesskimunarprófa sem Námsgagnastofnun gefur út. Um er að ræða þrjú lesskimunarpróf fyrir 1. bekk og tvö fyrir 2. bekk sem hægt er að nota til að meta stöðu nemenda og í kjölfarið laga kennslu að þörfum þeirra eða vísa þeim til frekari greiningar ef þurfa þykir. Einnig fylgir ítarlegt hugmyndahefti fyrir kennara sem þeir geta stuðst við þegar niðurstöður prófanna liggja fyrir. Haldnir voru um 30 fræðslufundir fyrir kennara í fyrstu bekkjum grunnskóla um notkun prófanna.
    Menntamálaráðuneytið hefur einnig beitt sér fyrir ýmsum öðrum aðgerðum á sviði lesskimunar í grunnskólum, t.d. með sérstökum styrkjum til einstakra skimunarverkefna og þróunarverkefna í skólum.

Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember.
    Allt frá árinu 1996 hefur verið efnt til margháttaðra viðburða á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, ár hvert. Skólar, bókasöfn, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök o.fl. hafa farið margar og ólíkar leiðir til að sinna íslensku sérstaklega á degi íslenskrar tungu. Má þar nefna handritasýningar, upplestrarkeppni, ljóðalestur, smásagnagerð, lestur úr nýjum og gömlum barnabókum, tónlistarflutning þar sem sungið er aðeins á íslensku o.s.frv. Langflestir grunnskólar hafa á einn eða annan hátt tekið þátt í degi íslenskar tungu.
    Menntamálaráðuneytið hefur hvatt skóla, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að nota 16. nóvember eða dagana þar í kring til að setja íslenskuna meira í öndvegi en endranær. Sérstakur verkefnisstjóri hefur árlega verið ráðinn í menntamálaráðuneytið til að vinna að málum sem tengjast degi íslenskrar tungu, m.a. til að hvetja grunnskóla til þátttöku.

Kjördagur í skólum – konur og lýðræði.
    Í tengslum við alþjóðlegu ráðstefnuna Konur og lýðræði við árþúsundamót sem haldin var 1999 hvatti menntamálaráðuneytið til umfjöllunar um lýðræði, kosningar og virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi í skólum landsins. Átak þetta var gert í samvinnu við framkvæmdanefnd ráðstefnunnar um konur og lýðræði.
    Málefninu til frekari áréttingar lét ráðuneytið gera veggspjald tileinkað ráðstefnunni og hugtakinu kjördagur. Ætlunin var að tengja umræðu í skólum við málefni ráðstefnunnar og þá framtíðarsýn sem henni var ætlað að bregða upp og styrkja.
    Veggspjaldið var sent öllum grunn- og framhaldsskólum og ýmsum öðrum aðilum í skólakerfinu. Þess er vænst að það geti orðið grundvöllur umræðu í skólum um lýðréttindi Íslendinga.
    Í tengslum við kjördag notaði menntamálaráðuneytið tækifærið til að minna á samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er mikilvægur leiðarvísir um lýðréttindi barna og ungmenna og jafnframt ákjósanlegur grunnur að umræðu um lýðræði og jafnrétti í grunn- og framhaldsskólum.

Námskrárdeild.
    Ný deild, námskrárdeild, var stofnuð innan menntamálaráðuneytisins í október 2000 til að vinna að þróun og endurskoðun námskráa fyrir leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla.
    Námskrárdeild menntamálaráðuneytisins á að fylgjast með framkvæmd námskráa, hafa frumkvæði að breytingum á þeim, taka við tillögum um nýjar námskrár og um breytingar á gildandi námskrám og leggja mat á þær. Deildin annast kynningu á námskrám, svarar fyrirspurnum um námskrármálefni og úrskurðar um álitaefni í samvinnu við aðrar deildir á skrifstofu menntamála og vísinda. Deildin er samstarfsaðili ráðuneytisins við starfsgreinaráð, samtök kennara og aðra sem áhuga hafa á námskrármálum eða hafa hagsmuna að gæta á því sviði.

Heilsuefling í skólum.
    Heilsuefling í skólum er sameiginlegt þriggja ára þróunarverkefni sem menntamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og landlæknisembætti standa að. Verkefnisstjóri var ráðinn í janúar 2000. Lögð var áhersla á samfellu og samstarf og til að tryggja það var ákveðið að fá til samstarfs skóla á öllum skólastigum í Kópavogi, auk grunnskóla Fjarðarbyggðar, á Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði. Í Kópavogi eru Heilsuleikskólinn Urðarhóll og tveir grunnskólar, Kópavogsskóli og Snælandsskóli, þátttakendur í verkefninu. Einnig tekur Menntaskólinn í Kópavogi þátt í verkefninu. Þannig er reynt að tryggja að nemendur séu í heilsueflandi skóla frá upphafi skólagöngu. Sérstök áhersla er lögð á eflingu geðheilbrigðis til að minnka líkur á áhættuhegðun, t.d. neyslu tóbaks, áfengis og annarra fíkniefna, einelti og sjálfsvígum. Leitast er við að allt skólastarf, umhverfi skólanna og samstarf við foreldra og aðra í samfélaginu miði að því að nemendum líði og farnist sem best.
    Skólarnir í heilsueflingarverkefninu hafa unnið að heilsueflingarmarkmiðum. Áhersla var lögð á að allir í skólasamfélaginu ynnu að því. Í framhaldi af því hafa skólarnir komið þessum markmiðum í daglegt starf skólanna með breyttum kennsluháttum til að vinna betur að andlegri, félagslegri og líkamlegri vellíðan nemenda. Skólarnir hafa gert markvissar kannanir um líðan nemenda. Verkefnið er því hluti af sjálfsmati skólanna og einn hlekkur í keðju þróunar og framfara. Sérstakir dagar hafa verið í skólunum er stuðla að bættri heilsu allra, auk þess sem haldin hafa verið ýmis námskeið, ráðstefnur og annað er tengist málefninu fyrir nemendur og starfsfólk skólanna.

Skólaþróunar- og nýbreytniverkefni.
    Menntamálaráðuneytið hefur stuðlað að og styrkt beint ýmis verkefni á grunnskólastigi á undanförnum árum. Sem dæmi má nefna stóru upplestrarkeppnina í 7. bekk grunnskóla sem fyrst var haldin 1996, nýsköpunarkeppni grunnskóla sem reglulega hefur verið haldin undanfarin ár og þátttöku nokkurra skóla í alþjóðlega GLOBE-umhverfisverkefninu. Bæði grunn- og framhaldsskólar taka þátt í GLOBE og þar er athyglinni beint að umhverfisfræðslu í skólastarfi. Stóru upplestrarkeppninni er m.a. ætlað að efla talmál í bekkjarstarfinu, byggja upp sjálfstraust nemenda og hamla gegn óskýrmæli.
    Nýsköpunarkeppnininni er ætlað að efla frumkvæði nemenda og sköpunarkraft með því að þeir móti tillögur og komi með hugmyndir að nýsköpun þar sem sjónum er beint að nánasta umhverfi nemenda.

Svör ráðuneytisins við fyrirspurnum um málefni grunnskóla.
    Ekki hefur verið gefið út rit með úrskurðum og svörum við fyrirspurnum eins og gert var 1997 heldur hefur verið safnað á heimasíðu ráðuneytisins svörum við fyrirspurnum undir liðinn Spurt og svarað. Þar bætast við fjölmargar fyrirspurnir árlega þar sem túlkun ráðuneytisins kemur fram á ýmsum atriðum sem tengjast skólahaldi í grunnskólum. Þessi upplýsingabrunnur á netinu getur verið gagnlegur fyrir alla þá sem skólamál varða. Þar eru nú nokkur hundruð svör aðgengileg um grunnskólamál.
    Eftirfarandi listi sýnir helstu flokka fyrirspurna og fjölda þeirra á tímabilinu 1998–2001:
Aðalnámskrá 7 Skólahúsnæði 2
Agi og brottrekstur úr skóla 4 Skólanefnd 2
Foreldraráð 5 Skólasókn 5
Lok skyldunáms 5 Starfsfólk grunnskóla 3
Matsnefnd 3 Starfsleyfi 1
Nám og kennsla 8 Starfstími grunnskóla 8
Nemendaráð 1 Sveitarstjórn 3
Nemendaverndarráð 1 Tvítyngdir nemendur 3
Rannsóknir og kannanir 1 Þátttaka foreldra í kostnaði 2
Samræmd próf 13 Undanþága frá skyldunámi 4
Samvinna heimila og skóla 4 Önnur mál 4
Sérkennsla og sérfræðiþjónusta 6 Öryggismál 4
Skólaakstur 4

Samráðsnefnd um grunnskóla.

    Samráðsnefnd menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samtaka kennara og skólastjóra um fagleg mál hefur starfað frá 1996, þ.e. frá flutningi grunnskólans og heldur árlega fjóra til sex fundi. Samráðsnefndin hefur í ýmsum tilvikum skipað starfshópa til að fjalla um afmörkuð verkefni, t.d. skólareglur og aga, einelti, slysavarnir og trúnaðargögn.
    Nefndin hefur m.a. fjallað um skólareglur og aga, einelti í skólum, endurmenntun kennara, lögverndunarlög og samræmd próf, upplýsingaöflun og aðalnámskrá.

Erlent samstarf.
    Menntamálaráðuneytið hefur tekið þátt í ýmsum erlendum samstarfsverkefnum sem tengjast grunnskólastiginu, einkum á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar sem skipuleggur ýmis samstarfsverkefni. Meðal norrænna verkefna má nefna mat á skólastarfi, frumkvöðlamenntun á Norðurlöndum, norrænt umhverfisverkefni (MUVIN), norrænt verkefni í sérkennslu (NordSpes), Nordplus mini, nemenda- og kennaraskipti á Norðurlöndum, verkefni um breytt hlutverk kennara, verkefni um lýðræðisleg gildi í skólastarfi, norræna skólanetið (Óðinn) og tilraunaverkefni um upplýsingatækni í skólastarfi (Iðunn).
    Ísland gerðist formlegur aðili að Evrópska skólanetinu árið 1999 og hóf samstarf við önnur Evrópuríki á vettvangi þess. Fulltrúar ráðuneytisins sitja í stjórn netsins og taka þátt í verkefnum á þess vegum. Á vegum þess voru ýmis verkefni, t.d. ENIS og eSchola sem margir íslenskir skóla tóku þátt í. Einn hluti eSchola var verðlaunasamkeppni um námsefni á netinu og þar áttu íslensk verkefni góðu gengi að fagna. Sjá nánar á www.menntagatt.is/ evropskt/.
    Einnig tekur ráðuneytið þátt í ýmiss konar öðru erlendu samstarfi sem snertir grunnskóla, t.d. verkefnum á vegum ESB, Evrópuráðsins, OECD, UNESCO og fleiri slíkra aðila. Ráðuneytið tekur einnig þátt í starfsemi European Agency (Evrópumiðstöðvar um þróun í sérkennslu) sem er samstarfsvettvangur Evrópuríkja til að stuðla að umbótum á sviði sérkennslu.