Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 474. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 814  —  474. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um flutning fjarvinnsluverkefna og starfa út á land.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða fjarvinnsluverkefni og hversu mörg störf á vegum ráðuneytisins og stofnana og fyrirtækja sem heyra undir ráðuneytið voru flutt út á land árið 2002, sundurliðað eftir stöðum sem verkefnin og störfin voru flutt til? Enn fremur er óskað eftir skilgreiningu á umræddum störfum.

    Engin fjarvinnsluverkefni eða störf á vegum ráðneytisins voru flutt út á land á árinu 2002. Hins vegar tekur ráðuneytið fram, eins og gert var í svari þess við sambærilegri fyrirspurn sama þingmanns í febrúar á síðasta ári vegna ársins 2001, að ráðuneytið hefur stuðlað að fjarkennslu víða um land og í því sambandi hafa verið settar á stofn símenntunarmiðstöðvar víða á landsbyggðinni. Eins og fram kom í framangreindu svari er Símenntunarmiðstöð Vesturlands í Borgarnesi, Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði, Farskóli Norðurlands vestra – miðstöð símenntunar er á Sauðárkróki, Fræðslunet Austurlands á Neskaupstað, Fræðslunet Suðurlands á Selfossi, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í Reykjanesbæ, Fræðslumiðstöð Þingeyinga á Húsavík og Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Menntasmiðjan eru á Akureyri. Þá er stunduð fjarkennsla og fjarnám á vegum háskóla og framhaldsskóla um allt land.
    Í tilefni af fyrirspurninni var óskað eftir upplýsingum og svörum frá undirstofnunum ráðuneytisins vegna ársins 2002. Í svari Ríkisútvarpsins var bent á að það rekur öfluga starfsemi í þremur landshlutastöðvum sínum utan Reykjavíkur og þar fer fram fjarvinnsla á fréttum og hljóð- og myndefni sem sent er út á vegum miðla Ríkisútvarpsins til landsins alls og einstakra landshluta. Á síðasta ári var hrundið í framkvæmd áætlun um að styrkja þennan þátt starfsemi Ríkisútvarpsins enn frekar með flutningi dagskrárstjórnar Rásar 2 til Akureyrar og auknu starfi í landshlutastöðvunum almennt. Enn fremur koma þarna við sögu sjálfstætt starfandi framleiðendur, myndatökumenn og fréttamenn víða um landið.
    Önnur fjarvinnsluverkefni og störf sem þeim fylgdu á vegum undirstofnana ráðuneytisins árið 2002 voru á vegum Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirtækið Landvist á Húsavík annaðist innslátt og skráningu gagna um safngripi og muni fyrir safnið í fjarvinnslu. Skráð var í sameinlegan gagnagrunn allra safna, Sarp. Samtals voru þetta þrjú stöðugildi. Sams konar verkefni voru unnin hjá Forsvari á Húsavík, samtals 1,5 stöðugildi.