Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 100. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 816 — 100. mál.
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Kristjáns Pálssonar um rannsóknir á nýtingu fiskúrgangs o.fl.
Leitað var til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og Hafrannsóknastofnunarinnar um svör við fyrirspurninni. Í svari Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins kom fram að verulegar rannsóknir hafi verið gerðar á möguleikum til að auka nýtingu þess hráefnis sem til fellur við veiðarnar. Iðulega hefur frekari þróun hugmynda og þekkingar strandað á markaðsmálum, þar sem ekki hefur reynst vera fyrir hendi markaður sem er tilbúinn að greiða fyrir afurðirnar það sem þarf til að standa undir fjárfestingu við að koma vinnslunni í gang. Ráðherra skipaði nefnd til að koma með ábendingar og tillögur um leiðir til að auka verðmæti sjávarafurða, svokallaða AVS-nefnd. Þess er vænst að í framhaldi af tillögum hennar verði unnt að leggja grunn að frekari nýtingu fiskúrgangs sem hráefni til vinnslu. Ekki hefur farið mikið fyrir rannsóknum er varða 2. og 3. lið fyrirspurnarinnar. Samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknastofnunarinnar er, í ljósi þess hve mikið af dýraleifum leggst til í vistkerfinu og hverfur á náttúrulegan hátt, ekkert sem bendir til þess að losun á ferskum fiskúrgangi hafi slæm áhrif á lífríkið, þó að vissulega geti slík losun haft staðbundin áhrif.
1. Hvaða rannsóknir, innlendar eða erlendar, hafa verið gerðar á nýtingu aukahráefna (afskurðar, hausa, hryggja, innyfla og roðs) sem falla til við fiskvinnslu á sjó og landi? Hverjar eru helstu niðurstöður þeirra?
Fjölmargar rannsóknir, íslenskar og erlendar, hafa eins og áður segir verið gerðar á nýtingu hráefnis sem fellur til við vinnslu aðalafurða, bæði í landi og um borð í vinnsluskipum. Fjölmargar skýrslur hafa verið gefnar út um þessi mál og afurðir og vinnslugreinar orðið til í kjölfar þessara verkefna. Þar má nefna t.d. nýtingu á fiskhausum, hrognum, afskurði og rækjuskel. Verkefnin hafa mörg hver tengst greiningu á aukahráefninu og hefur m.a. verið könnuð magndreifing, vinnslunýting og efnasamsetning, auk eðlis- og efnaeiginleika hráefnis og aukaafurða.
Aukahráefni er mikið að umfangi og margbreytilegt og kosta þarf til rannsókna til að finna hagkvæmustu vinnsluleiðir, bestu geymsluaðferðir og bestu markaðina fyrir hvern afurðaflokk. Sú vinna verður að vera í samstarfi við fiskiðnaðinn, útgerðirnar og rannsóknastofnanir.
Hráefni sem fellur til um borð í vinnsluskipum hefur verið nýtt í einhverjum mæli og það sem viðunandi verð fæst fyrir á mörkuðum er að miklu leyti hirt, t.d. afskurður og hrogn. Á síðustu árum hefur markaðsverð á þurrkuðum þorskhausum farið hækkandi í Nígeríu og er nú hægt að fá viðunandi verð fyrir frosna þorskhausa til þurrkunar. Í framhaldi af því hefur frysting á hausum um borð aukist.
Prentað upp.
Þó að fyrir liggi allmikil þekking um mögulegar framleiðsluaðferðir og -afurðir er óvíst hver markaðurinn er fyrir slíkar afurðir.
2. Hafa verið gerðar rannsóknir hérlendis eða erlendis á áhrifum þess á lífríkið þegar miklu magni af aukahráefnum frá fiski eða annarri vinnslu, t.d. á skel og rækju, er hent í hafið? Ef svo er, hverjar eru niðurstöðurnar?
Starfsmönnum Hafrannsóknastofnunarinnar er ekki kunnugt um neinar sérstakar rannsóknir, innlendar eða erlendar, á áhrifum fiskúrgangs á lífríki sjávar. Þó má nefna að á árunum 1954–56 kom upp sveppasýking í síldarstofninum í St. Lawrence flóa þannig að mikið af síldinni drapst. Á þessum árum var þorskur stærri en 50 sm úttroðinn af síld. Þetta leiddi til mikillar vaxtaraukningar hjá þorskstofninum í St. Lawrence flóa en ekki er vitað til að dauð síld hafi valdið mengun á svæðinu.
Einnig eru til mörg dæmi um hvernig lífríkið við Ísland tekur við dauðum fiski og fiskúrgangi. Má þar nefna að gríðarlega mikið af fiski drepst af náttúrulegum orsökum á Íslandsmiðum. Eftir hrygningu ár hvert drepast um eða yfir 400.000 tonn af loðnu og verður hennar t.d. vart á grunnslóð vestan við landið. Einum eða tveimur mánuðum síðar verður ekki vart við dauða loðnu en engin merki eru um mengun. Trúlega er megnið af dauðu loðnunni étið af ýmsum nytjastofnum, svo sem þorski, ýsu, steinbít, humri og rækju og nýtist þannig beint til vaxtar. Annað er étið af öðrum lífverum, svo sem krabba, marfló og öðrum lífverum sem nytjastofnar nærast á. Því má reikna með að loðna sem drepst eftir hrygningu hafi góð áhrif á nytjastofna við landið.
Oft er miðað við að um 20% af þorski og mörgum öðrum langlífum fisktegundum drepist á hverju ári. Magnið sem drepst mun líklega nema hundruðum þúsunda tonna á hverju ári. Álitið er að mest af þessu sé étið af öðrum fiskum. Ekki er vitað til að þetta valdi mengun. Þá er álitið að brottkast bolfisks, einkum smáfisks, nemi árlega þúsundum tonna á Íslandsmiðum og fiskúrgangur frá vinnsluskipum árlega 60–70 þúsund tonnum. Fiskúrgangur frá veiði- og vinnsluskipum dreifist að jafnaði mjög mikið úti á miðunum og stór hluti hans er étinn af ýmsum dýrastofnum. Þannig éta ýmsir sjófuglar, svo sem fýll, máfur og svartfugl, töluvert sem til fellur. Mikið af því sem sekkur til botns er étið af þorski og öðrum nytjastofnum. Oft finnst niðurburður í mögum fiska, t.d. síldarhausar og slóg í þorski, grálúðuhausar o.fl. Þó er ljóst að stórir fiskhausar og dálkar eru of stór biti fyrir algengustu stærð af fiskum á miðunum og verða því ekki nýttir sem fæða nema af hræætum, svo sem humar, krabba og marfló sem naga fisk af beinum.
Þó að fiskúrgangur geti haft góð áhrif á nytjastofna sjávar geta áhrifin einnig verið óæskileg, svo sem staðbundin mengun inni á fjörðum. Enn fremur er hugsanlegt að fiskur sem lifir á slógi sýkist af sníkjudýrum sem getur verðfellt fiskinn og aukið kostnað við vinnsluna.
3. Liggja fyrir einhverjar rannsóknir á áhrifum þess á fiskgöngur þegar miklu magni fiskúrgangs er hent á viðkvæma fiskislóð? Ef svo er, hverjar eru niðurstöðurnar?
Starfsmönnum Hafrannsóknastofnunarinnar er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið sérstakar rannsóknir á áhrifum fiskúrgangs á fiskgöngur. Þó er vitað að losun á fiskúrgangi getur dregið að fisk í fæðuleit. Þannig safnaðist mikið af þorski og ufsa í Siglufjörð þar sem síldarúrgangur var losaður í fjörðinn á síldarárunum í kringum 1960. Eftir að farið var að veiða kúfisk á Vestfjörðum tóku sjómenn eftir því að þorskur safnaðist í plógfarið. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunarinnar fengu mikið af þorski í dragnót í Aðalvík á Hornströndum skömmu eftir veiðar á kúfiski. Þorskurinn var úttroðinn af kúfiski og öðrum botndýrum. Við 17 mánaða tilraunafóðrun í Stöðvarfirði safnaðist töluvert af þorski og ýsu á fóðrunarsvæðin og átu það fóður sem losað var, loðnu og niðurskorna síld. Vaxtarhraði þorskanna sem tóku fóðrið (2.254 g/ár) var u.þ.b. þrefaldur á við hina sem ekki tóku fóðrið (725 g/ár). Hugsanlegt er að skemmdur úrgangur fæli fisk af veiðislóð.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 816 — 100. mál.
Svar