Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 307. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 819  —  307. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Páls Magnússonar um jaðaráhrif innan skattkerfisins.

     1.      Hafa markmið ríkisstjórnarinnar í stefnuyfirlýsingu hennar frá 28. maí 1999 um að draga úr jaðaráhrifum innan skattkerfisins náð fram að ganga?
     2.      Liggja fyrir tölulegar upplýsingar um jaðaráhrif innan skattkerfisins? Ef svo er, hvernig hafa þau þróast á kjörtímabilinu?
    Til upprifjunar er rétt að minna á að á árunum 1997–99 voru stigin mikilvæg skref í átt til þess að draga úr jaðaráhrifum skattkerfisins þegar ákveðið var að lækka tekjuskatt einstaklinga um fjórar prósentur, úr 30,41% í 26,41%. Með þessu var tekjuskattshlutfallið orðið lægra en á árinu 1988 þegar núverandi staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp en þá var það 28,5%.
    Af þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til frá árinu 1999 í því skyni að draga úr jaðaráhrifum skattkerfisins vega breytingar á barnabótakerfinu þyngst, sbr. lög 166/2000. Þær fólu í sér umtalsverða hækkun á barnabótum á árunum 2001–03. Annars vegar voru ótekjutengdar barnabætur að hluta til teknar upp á nýjan leik og hins vegar var verulega dregið úr skerðingu bótanna vegna tekna. Jafnframt voru skerðingarmörk tekna hækkuð umfram almennar verðlagshækkanir. Enn fremur var eignaskerðing barnabóta felld niður. Skerðingarhlutföll tekna voru þannig lækkuð um tvær prósentur, úr 5% í 3% með einu barni, úr 9% í 7% með tveimur börnum og úr 11% í 9% með þremur börnum eða fleirum. Þetta jafngildir um þriðjungs lækkun tekjuskerðingar. Þá var eignatenging barnabótakerfisins felld niður.
    Í desember síðastliðnum var afgreitt frumvarp á Alþingi þar sem kveðið var á um lækkun sérstaks tekjuskatts um tæplega þriðjung, eða úr 7% í 5%, á árinu 2003. Þá voru viðmiðunarmörkin hækkuð umtalsvert árið 2002.
    Í þriðja lagi var eignarskattur lækkaður um meira en helming, jafnt hjá einstaklingum sem fyrirtækjum, frá og með árinu 2002. Annars vegar með lækkun almenns eignarskatts úr 1,2% í 0,6% af hreinni eign. Hins vegar með því að sérstakur eignarskattur, 0,25%, hefur verið felldur niður.
    Í fjórða lagi var tekjuskattur lögaðila lækkaður úr 30% í 18% frá og með árinu 2002.
    Allar þessar breytingar miða að því að draga úr jaðaráhrifum skattkerfisins og hafa þannig jákvæð áhrif á bæði framboðs- og eftirspurnarhlið á vinnumarkaði en hvort tveggja mun skila sér í auknum hagvexti.
    Þessu til viðbótar má nefna aðgerðir sem miða að því að draga úr tekjuskerðingu í lífeyriskerfinu með lækkun skerðingarhlutfalls tekjutryggingarauka lífeyrisþega vegna annarra tekna úr 67% í 45%.
    Öll þessi atriði miða að því að draga úr jaðaráhrifum á sviði skatta- og lífeyrismála.
    Eftirfarandi tafla sýnir yfirlit yfir skattprósentur, persónuafslátt og mörk sérstaks tekjuskatts, ásamt skerðingarhlutfalli tekna vegna barnabóta, skerðingarmörkum tekna vegna barnabóta og skerðingarmörkum eigna vegna vaxtabóta fyrir árin 1999–2003.


1999 2000 2001 2002 2003
Tekjuskattur 26,41% 26,41% 26,08% 25,75% 25,75%
Meðalútsvar í staðgreiðslu 11,93% 11,96% 12,68% 12,79% 12,80%
Staðgreiðsluhlutfall 38,34% 38,37% 38,76% 38,54% 38,55%
Sérstakur tekjuskattur 7% 7% 7% 7% 5%
Fjármagnstekjuskattur 10% 10% 10% 10% 10%
Persónuafsláttur á mánuði 23.329 kr. 24.361 kr. 25.245 kr. 26.002 kr. 26.821 kr.
Mörk sérstaks tekjuskatts á mánuði 273.162 kr. 279.992 kr. 322.083 kr. 331.667 kr. 340.788 kr.
Skerðingarhlutfall tekna vegna barnabóta
með fyrsta barni 5% 5% 4% 3% 3%
með öðru barni 9% 9% 8% 7% 7%
með þremur eða fleiri börnum 11% 11% 10% 9% 9%
Skerðingarmörk tekna vegna barnabóta
Tekjustofn hjóna 1.198.807 kr. 1.290.216 kr. 1.354.727 kr. 1.408.916 kr. 1.447.661 kr.
Tekjustofn einstæðs foreldris 599.404 kr. 645.109 kr. 677.364 kr. 704.459 kr. 723.832 kr.
Skerðingarmörk v/eigna v/vaxtabóta
Einhleypingar, neðri mörk 3.249.517 kr. 3.330.755 kr. 3.430.678 kr. 3.640.034 kr. 3.740.135 kr.
Einhleypingar, efri mörk 5.199.227 kr. 5.329.208 kr. 5.489.084 kr. 5.640.034 kr. 5.795.135 kr.
Hjón, neðri mörk 5.386.635 kr. 5.521.301 kr. 5.686.940 kr. 5.843.330 kr. 6.004.022 kr.
Hjón, efri mörk 8.618.616 kr. 8.834.081 kr. 9.099.103 kr. 9.349.328 kr. 9.606.435 kr.


     3.      Hvernig skiptist álagning tekjuskatts hlutfallslega á einstaklinga eftir aldri, sundurliðað eftir áratugum, þ.e. 20–30 ára, 30–40 ára o.s.frv.?

    Í töflunni kemur fram hvernig álagning tekjuskatts skiptist hlutfallslega á einstaklinga eftir aldri.

Greiðendur tekjuskatts við álagningu 2002 vegna tekna 2001.1


Aldur
Fjöldi framteljenda Fjöldi greiðenda tekjuskatts Tekjuskattur,
millj. kr.

Tekjuskattur, %.

Fjöldi,%
16–19 ára 17.197 2.351 274,4 0,5 1,7
20–29 ára 46.343 26.890 7.445,3 12,9 18,9
30–39 ára 43.277 32.032 14.596,0 25,3 22,5
40–49 ára 41.511 33.086 16.856,2 29,2 23,3
50–59 ára 31.066 24.219 11.570,4 20,1 17,0
60–69 ára 19.798 13.302 4.981,8 8,6 9,3
70–79 ára 16.631 7.550 1.538,1 2,7 5,3
80 ára + 9.091 2.862 435,2 0,8 2,0
Samtals 224.914 142.292 57.697,5 100,0 100,0
1 Tekjuskattur er skilgreindur sem samtala tekjuskatts og sérstaks tekjuskatts.