Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 432. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 821  —  432. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um viðbragðsáætlun vegna smitsjúkdóma í búfé.

     1.      Hefur verið gerð viðbragðsáætlun til að vinna eftir ef upp kemur grunur um smitsjúkdóma í búfé eða ef alvarlegur smitsjúkdómur er staðfestur?
    Haustið 1998 skipaði yfirdýralæknir hóp til að vinna að gerð viðbragðsáætlunar vegna alvarlegra smitandi sjúkdóma, sem eru tilkynningarskyldir samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. Hópurinn útbjó viðbragðsáætlun og kynnti fyrstu gerð hennar á fundi með héraðsdýralæknum vorið 1999. Áætlunin er í stöðugri þróun með hliðsjón af reynslu bæði hérlendis og erlendis af baráttu við smitsjúkdóma.

     2.      Ef svo er, hverjar eru helstu áherslur áætlunarinnar og breytingar frá núgildandi reglum?

    Samhliða gerð viðbragðsáætlana samdi hópurinn drög að reglugerð nr. 665/2001, um viðbrögð við smitsjúkdómum, og gerði tillögu um breytingu á lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Lagabreytingin fólst einkum í breytingum á viðaukum, þar sem fram kemur hvaða dýrasjúkdómar eru tilkynningar- og skráningarskyldir. Var hún samþykkt á Alþingi 2001. Reglugerðin tekur mið af reglum nágrannalandanna varðandi baráttu við alvarlega smitsjúkdóma og er viðbragðsáætlun yfirdýralæknis gefin út skv. 6. gr. hennar.
    Mikilvægasti tilgangur viðbragðsáætlunar yfirdýralæknis gegn smitsjúkdómum er að gera boðleiðir og hlutverk skýr, því að rétt og skjót viðbrögð eru afgerandi þáttur í að stemma stigu við útbreiðslu mjög smitandi sjúkdóma. Þekking fagfólks og dýraeigenda á einkennum helstu smitsjúkdóma er sömuleiðis þýðingarmikil.
    Áætlunin er almenns eðlis og fjallar aðeins um fyrstu viðbrögð. Yfirdýralæknir gefur fyrirmæli um áframhaldandi aðgerðir hverju sinni og honum til ráðgjafar og aðstoðar er smitsjúkdómanefnd sem ráðherra skipar komi upp grunur um alvarlegan smitsjúkdóm.

     3.      Hefur áætlunin verið kynnt? Ef ekki, hvernig er þá ráðgert að standa að kynningu á henni?

    Viðbragðsáætlunin var kynnt héraðsdýralæknum á fundi vorið 1999 og einnig á fundi hjá Dýralæknafélagi Íslands í mars 2000 og hefur nú verið gerð aðgengileg almenningi á vefsíðu embættis yfirdýralæknis. Vinnu við þróun vefsíðunnar verður haldið áfram og á næstunni verða meðal annars settar inn á hana upplýsingar um eðli og einkenni helstu smitsjúkdóma.
Á næstu mánuðum mun fara fram nákvæmari kynning meðal dýralækna og í undirbúningi er æfing í marsmánuði meðal dýralækna í viðbrögðum við smitsjúkdómum.

     4.      Hverjar eru að mati ráðherra helstu brotalamir í smitgát, viðbrögðum og heftingu smitsjúkdóma í búfé: í næsta nágrenni við sýktan eða grunaðan stað, hjá afurðastöðvum og þjónustuaðilum?
    Helstu áhersluatriði og það sem enn er eftir að vinna er eftirfarandi:
1.    Ólokið er gerð aðgengilegra gagnagrunna sem byggjast á einstaklingsmerkingum búfjár til þess að unnt sé að fá fram upplýsingar um heilsufar og flutninga á dýrum.
2.    Setja þarf skýrari reglur um aðkomu og aðstoð lögreglu og björgunarsveita vegna umferðar við sýktan stað eða stað þar sem grunur er um smitsjúkdóm.
3.    Þróa áfram samskipti við Almannavarnir ríkisins vegna náttúruhamfara sem gætu haft áhrif á útbreiðslu þeirra smitsjúkdóma sem fyrir hendi eru.
4.    Ljóst er að beina þarf meira fjármagni til forvarnastarfs og viðhalds á viðbragðsáætlunum vegna síaukinna krafna um innflutning dýra og afurða og meiri ferðalaga fólks.
    Geta má þess að nefnd landbúnaðarráðherra sem ætlað var að kanna orsakir tíðra sýkinga í búfé af völdum salmonellu og kampylóbakter gaf út bæklinginn „Verndum heilsu okkar og dýranna – Rjúfum smitleiðir“ þar sem í stuttu máli er bent á mikilvægustu atriði í smitvörnum. Embætti yfirdýralæknis hefur unnið með Landssambandi kúabænda og fóðurstöðvum um gerð leiðbeininga og verklagsreglna um smitvarnir á framleiðslubúum.