Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 448. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 863  —  448. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um samræmingu félagsþjónustu, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Telur ráðherra að flytja eigi félagsþjónustu, öldrunarþjónustu og heilsugæslu á eina hendi til sveitarfélaga í ljósi góðs árangurs af samræmingu þessara þjónustuþátta í reynslusveitarfélögunum Akureyri og Höfn í Hornafirði?
     2.      Hvaða breytinga er þörf á samningum milli ríkis og sveitarfélaga og á lögum og reglugerðum til þess að af slíkri samræmingu gæti orðið?


    Við undirbúning að svari við fyrirspurninni kom í ljós að fyrirspurn hefur einnig verið beint til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og er vísað til svars hans varðandi flutning öldrunar- og heilbrigðisþjónustu til sveitarfélaganna.
    Sá skilningur er lagður í fyrirspurnina að átt sé við félagslega þjónustu ríkisins við fatlaða sem veitt er samkvæmt lögum um málefni fatlaðra, nr. 59/1992.
    Sveitarfélög á eftirtöldum svæðum hafa tekið að sér þjónustu við fólk með fötlun frá ríkinu: Norðurland vestra, Norðurland eystra, Vestmanneyjar og Hornafjörður. Annars vegar er um að ræða reynslusveitarfélögin Akureyrarkaupstað og sveitarfélagið Hornafjörð, sem tóku upphaflega við málefnum fatlaðra samkvæmt lögum um reynslusveitarfélög, nr. 82/1994. Hins vegar eru í gildi samningar milli ríkis og sveitarfélaga skv. 13. gr. laga um málefni fatlaðra. Á það við um Héraðsnefnd Þingeyinga, sem hefur samþætt þessa þjónustu við aðra félagsþjónustu á sínu svæði, Byggðasamlag Norðurlands vestra hefur tekið við þjónustu við fatlaða í Skagafirði, Húnavatnssýslum og á Siglufirði. Vestmanneyjabær hefur samþætt þjónustu við fatlaða annarri félagsþjónustu sem sveitarfélagið veitir. Frá og með árinu 2002 eru þessir samningar gerðir samkvæmt 13. gr. laga um málefni fatlaðra. Töluverð reynsla er komin á framkvæmd félagsþjónustu við fatlaða á umræddum svæðum, en fyrstu samningarnir voru gerðir á árinu 1996.
    Í ljós hefur komið að þjónusta sveitarfélaganna við fatlaða, sem veitt er samkvæmt lögum um málefni fatlaðra, hefur að mestu leyti reynst vel. Samþætting við aðra félagsþjónustu á svæðunum hefur mikla kosti og er í anda þeirrar blöndunar sem félagsmálaráðuneytið telur eiga að vera í sambandi við þjónustu við fólk með fötlun. Með því er átt við að fólk með fötlun fái þjónustu á sama stað og aðrir íbúar sveitarfélags. Nærþjónusta á þessum persónulegu og oft viðkvæmu sviðum er sjálfsögð og eftirsóknarverð. Einnig er rétt að benda á að með styrkari og fjölþættari þjónustu í heimabyggð aukast möguleikar á heildstæðri, einstaklingsbundinni og sveigjanlegri þjónustu. Við samþættingu málefna fatlaðra og annarrar félagsþjónustu í heimabyggð aukast möguleikar á heildarsýn og má leiða líkur að því að hún eflist enn meir við það að félagsþjónustan, heilsugæslan og öldrunarþjónustan verði á einni og sömu hendi.
    Niðurstaða úttektaraðila (PWC) á reynslusveitarfélagaverkefninu er að á sviði byggingarmála, málefna fatlaðra, öldrunarmála og heilsugæslu hafi tilraunir reynslusveitarfélaga náð markmiðum sínum um að auka sjálfsstjórn sveitarfélaganna, laga stjórnsýsluna betur að staðbundum aðstæðum, bæta þjónustu við íbúa og nýta betur fjármuni hins opinbera.
    Í matsskýrslu úttektaraðila vegna ársins 2000 kom fram að niðurstöðurnar sem kynntar höfðu verið í heildarmatsskýrslunni árið 1999 um árangur af framkvæmd verkefna reynslusveitarfélaga væru í meginatriðum óbreyttar. Jafnframt kom fram að milli áranna 1999 og 2000 hafi einstaka þættir breyst lítillega en helstu þróunareinkenni einstakra verkefna hafi haldist óbreytt. Í ljós kom að kostnaður ríkisins við verkefni reynslusveitarfélaga jókst á árinu 2000.
    Ef flytja á málefni fatlaðra til sveitarfélaganna er nauðsynlegt að fyrir liggi samstaða um það milli ríkis og sveitarfélaga þar sem byggt yrði á rekstrarlegum forsendum sem væru ásættanlegar.
    Eins og kunnugt er voru lögð fram á 125. löggjafarþingi frumvörp í þeim tilgangi að flytja málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Um var að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um félagsþjónustu sveitarfélaga, frumvarp til laga um breytingu á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 13/1997, frumvarp til laga um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og frumvarp til laga um réttindagæslu fatlaðra. Í frumvarpi til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga var mælt fyrir um brottfall eftirfarandi laga: laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum og laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, með síðari breytingum.
    Má ætla að þessi upptalning eigi enn við ef ákveðið verður að flytja málefni fatlaðra til sveitarfélaganna.
    Í gildi eru níu reglugerðir sem settar eru á grundvelli laga um málefni fatlaðra og ein á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga sem annaðhvort mundu falla úr gildi eða yrðu endurskoðaðar ef málaflokkurinn yrði færður til sveitarfélaganna.
    Samkvæmt ákvæðum 100. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, skal ríkisstjórnin hafa náið samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um þau mál er varða verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og önnur samskipti þessara aðila. Komi fram tillögur um meiri háttar breytingar á verkaskiptingu eða fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og tekjustofnum sveitarfélaga, sem kveðið er á um í lögum eða gert hefur verið sérstakt samkomulag um, ber skv. 101. gr. sömu laga að taka þær til umfjöllunar í sérstakri samráðsnefnd skipaðri fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga áður en þær eru formlega afgreiddar.