Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 557. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 905  —  557. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hvert er umfang geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga til 18 ára aldurs hérlendis miðað við það sem tíðkast í nágrannalöndum?
     2.      Hvert er hlutfall stofnanaþjónustu annars vegar og þjónustu utan sjúkrahúsa hins vegar á sviði geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga?
     3.      Hvernig er háttað samvinnu félagsmála- og heilbrigðisyfirvalda um þjónustu við ungmenni með hegðunartruflanir?
     4.      Er vitað hve stór sá hópur ungmenna er sem á í vanda en fær enga aðstoð?
     5.      Hvaða áform eru um að byggja upp geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga?
     6.      Verður geðdeildarþjónusta veitt á nýjum barnaspítala?


Skriflegt svar óskast.