Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 560. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 908  —  560. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um þjónustu við aðstandendur ungra fíkniefnaneytenda.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hefur upplýsingamiðstöð fyrir aðstandendur ungra fíkniefnaneytenda verið komið á laggir við barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss? Hvernig er þjónustu háttað við foreldra barna og unglinga í vímuefnavanda?