Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 565. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 913  —  565. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ferliverk á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hve mörg ferliverk voru unnin á Landspítala – háskólasjúkrahúsi á árunum 1997–2002, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hvernig skiptast ferliverk eftir sérfræðigreinum?
     3.      Hvert er hámark þeirrar upphæðar sem sjúklingur hefur þurft að greiða fyrir skurðaðgerð á bæklunardeild, fyrir augnaðgerð, fyrir speglun, t.d. maga- eða ristilspeglun? Svar óskast sundurliðað eftir árunum 1997–2002.
     4.      Hvað greiða læknar fyrir aðstöðu og þjónustu sem spítali veitir? Hafa þær greiðslur verið samræmdar?
     5.      Hefur samræmd reglugerð um ferliverk verið sett?
    Svar óskast sundurliðað á ríkisspítala og Borgarspítala fyrir sameiningu þeirra.


Skriflegt svar óskast.