Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 297. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 929 — 297. mál.
forsætisráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um ferðaþjónustu og stóriðju.
1. Hver er hlutdeild og hlutur ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar í landsframleiðslu? Með ferðaþjónustu er átt við alla þjónustu sem snýr að erlendum og innlendum ferðamönnum í víðasta skilningi, t.d. flug, akstur og siglingu, gistingu, veitingar, verslun og skemmtanir. Með stóriðju er átt við allt sem þarf til framleiðslu áls og járnblendis, t.d. virkjanir, spennistöðvar, raflínur, verksmiðjur og flutninga.
Ferðaþjónusta er ekki einstök atvinnugrein í skilningi þjóðhagsreikninga heldur samsett úr mörgum atvinnugreinum sem tengjast ferðaþjónustu. Samkvæmt núgildandi skilgreiningu þjóðhagsreikninganna er ferðaþjónustan samansett þannig að ákveðið hlutfall tekna tiltekinna atvinnugreina telst til ferðaþjónustu. Hlutföllin má sjá í eftirfarandi töflu:
Að þessum forsendum gefnum var framlag ferðaþjónustu til vergrar landsframleiðslu 4,0% árið 1996 og 4,5% árið 1999. Ætla má að þetta hlutfall hafi haldið áfram að vaxa og verið um 5% í árslok 2001.
Hafa ber í huga að við þessa útreikninga á framlagi ferðaþjónustu til landsframleiðslu er einungis litið til beinna áhrifa viðkomandi atvinnugreina en horft fram hjá óbeinum áhrifum. Til að mynda er litið fram hjá viðskiptum sem eiga sér stað milli atvinnugreina. Nær ómögulegt er að meta þessi óbeinu áhrif miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja.
Árið 2001 var hlutfall ál- og kísiljárnframleiðslu 1,5% af landsframleiðslu. Er þá litið til hlutfalls vinnsluvirðis af heildarvinnsluvirði allra atvinnugreina.
Óbein áhrif stóriðju á landsframleiðslu eru ekki eins óljós. Vitað er að raforkusala til stóriðju nam um 5 milljörðum kr. árið 2001, en hún er ekki hluti af vinnsluvirði stóriðju.
Framkvæmdir við virkjanir og í tengslum við þær, svo sem lagning raflína, bygging spennistöðva o.fl., teljast óbein áhrif stóriðju, en slíkar framkvæmdir eru mjög sveiflukenndar. Sama gildir um vegaframkvæmdir vegna virkjana á hálendinu.
Við mat á óbeinum áhrifum stóriðju þarf einnig að líta til þess að hluti framkvæmda í tengslum við hana nýtist öðrum aðilum. Einnig verður að hafa í huga að framkvæmdir við virkjanir eru oft og tíðum það stórar í sniðum að þær vega þungt í landsframleiðslunni meðan á þeim stendur og því skiptir miklu hvaða viðmiðunartímabil er tekið.
2. Hverjar eru útflutningstekjur af ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar?
Árið 2001 nam útflutningsverðmæti afurða orkufreks iðnaðar rúmum 44,4 milljörðum kr. Gjaldeyristekjur af ferðamönnum voru 37,7 milljarðar króna það sama ár.
3. Hver er afkoma fyrirtækja í ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar í milljörðum króna og sem hlutfall af fjárfestingu?
Árið 2000 var hlutfall hagnaðar af reglulegri starfsemi sem hlutfall af tekjum var sem hér segir:
Ekki fást tölur yfir fjárfestingu í mikilvægum greinum ferðaþjónustunnar þannig að slíkur samanburður er ómögulegur.
Vert er að taka fram að bæði í ferðaþjónustu og stóriðju eru miklar sveiflur í tekjum og gjöldum milli ára og því verður að taka þessum tölum með varúð.
4. Hvað eru mörg ársverk í ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar?
Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjum í stóriðju voru ársverk þar á árinu 2001 um 920. Árið 1999 voru ársverk í ferðaþjónustu áætluð 5.400 en nýrri upplýsingar liggja ekki fyrir.
5. Hver eru mánaðarlaun starfsmanna í ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar að meðaltali?
Ekki liggja fyrir upplýsingar um mánaðarlaun starfsmanna í ferðaþjónustu en mikill munur er á hæstu og lægstu launum þeirra sem starfa í þeim greinum sem hér um ræðir.
Meðallaun í stóriðju eru á bilinu 270.000 kr. til 305.000 kr. á mánuði.
6. Hversu miklar árstíðasveiflur eru í rekstri ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar?
Árstíðasveiflur í ferðaþjónustu eru miklar, ekki síst í komum erlendra ferðamanna og nýtingu á gistirými. Ef litið er til nýtingar herbergja fyrir allt landið árið 2001 var hún 32,5% á tímabilinu frá janúar til apríl, 60% frá maí til ágúst og 34,3% frá september til desember. Sé litið til fjölda erlendra ferðamanna sem fóru um Keflavíkurflugvöll voru þeir að meðaltali 70.388 á mánuði frá júní til ágúst árið 2001 en að meðaltali 24.807 á mánuði í desember, janúar og febrúar það sama ár.
Árstíðasveiflur í stóriðju eru hverfandi. Verðið fer nokkuð eftir framboði á heimsmarkaði og eru litlar árstíðasveiflur í því.
7. Hvaða mengun og umhverfisröskun valda ferðaþjónusta annars vegar og stóriðja hins vegar beint og óbeint? Spurt er um efnamengun (útblástur verksmiðja, bíla og flugvéla, skolp og sorp), umhverfisröskun (vegagerð, uppistöðulón, mannvirki, átroðslu), sjónmengun (verksmiðjur, hótel, bifreiðar, mannfjölda) og hávaðamengun (flugvélar, bíla).
Alcan.
Árið 2001 var útblástur koltvísýrings frá fyrirtækinu 284.723 tonn, brennisteinsdíoxíðs 2.490 tonn og ryks 177 tonn.
Sama ár var fastur úrgangur, álgjall, brotamálmur og skautleifar samanlagt tæp 19.000 tonn og var það allt endurunnið. Kerbrot námu rúmum 7.000 tonnum og voru þau urðuð við sjóinn. Í urðuninni er skeljasandi blandað saman við úrgangsefnin og að lokum er tyrft yfir gryfjurnar. Rannsóknir hafa ekki sýnt skaðleg áhrif þessa á lífríkið. Hávaðamengun verður helst við löndun og í þurrhreinsistöðvum. Mælingar sýna að hávaði við lóðamörk eru innan viðmiðunarmarka (70 dB) eða frá 52 dB til 66 dB.
Flúormagn í umhverfi verksmiðjunnar er undir viðmiðunarmörkum.
Frárennslisvatn er hreinsað áður en það er leitt í sjó. Styrkur olíu í frárennsli árið 2000 var undir viðmiðunarmörkum, sem eru 15 mg/l.
Norðurál.
Árið 2001 var útblástur koltvíoxíðs 130.500 tonn, flúorkolefnis 39.600 tonn og brennisteinsdíoxíðs um 756.000 tonn. Ryk var um 75.600 tonn. Fastur úrgangur við framleiðsluna er aðallega kerbrot, eða 1.800 tonn á ári, og er þeim fargað á urðunarstað á Grundartanga. Allur annar úrgangur er endurunninn.
Járnblendið.
Árið 2001 var útblástur koltvísýrings frá verksmiðjunni um 390.000 tonn. Útblástur af brennisteinstvísýringi var 1.950 tonn það sama ár. Annar úrgangur var aðallega 440 tonn af hráefnaafgöngum og uppsóp af gólfum, 420 tonn af steypubrotum, ónýtum fóðringum o.fl. og 1.470 tonn af forskiljuryki. Vatn notað til kælingar á útsteyptum málmi (fer út sem vatnsgufa) er áætlað 15–20.000 tonn á ári.
Fyrirtækið endurvinnur málmleifar eða selur þær úr landi. Steypujárnsskálar eru seldar úr landi til endurbræðslu. Brotamálmur sem til fellur á verksmiðjusvæðinu fer til endurvinnslu. Annað sorp er flutt á sorpmóttökustað á Akranesi, t.d. steypujárnsskálar, sori (slagg) og málmleif sem fellur til við framleiðsluna. Íslenska járnblendifélagið notaði árið 2001 rúm 10.000 tonn af timburkurli frá Sorpu en það er unnið úr úrgangstimbri sem berst til þess fyrirtækis.
Hávaðamengun verður aðallega við uppskipun og framleiðsluna sjálfa en veldur ekki teljandi óþægindum utan verksmiðjusvæðisins.
Annars konar umhverfisröskun og mengun tengd stóriðjunni eru vegaframkvæmdir, háspennulínur og virkjanaframkvæmdir, sem að stórum hluta tengjast starfseminni. Slíkum hlutum eru gerð skil í mati á umhverfisáhrifum vegna nýrra virkjana. Ekki hefur verið gerð úttekt á umhverfisröskun eldri mannvirkja.
Ekki hafa farið fram rannsóknir á þeirri mengun og umhverfisröskun sem ferðaþjónusta kann að valda hér á landi. Þó má nefna skýrsluna Þolmörk ferðamennsku í þjóðgarðinum í Skaftafelli sem Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Ferðamálaráð Íslands gáfu út. Þar kemur fram að þrátt fyrir að þjóðgarðurinn geti tekið á móti þeim fjölda ferðamanna sem sækir hann ár hvert megi sjá merki um slæm áhrif af völdum ferðamennsku, t.d. að gróður hafi orðið fyrir hnjaski vegna átroðslu.
8. Hvaða opinberu styrkja nýtur ferðaþjónusta annars vegar og stóriðja hins vegar? Átt er við beina og óbeina styrki ríkis og sveitarfélaga, t.d. bein framlög, stofnstyrki, niðurgreiðslur á aðföngum, niðurgreiðslu vaxta, ábyrgðir og skattalækkanir, enn fremur sértækar framkvæmdir í vegagerð, hafnargerð og flugi.
Stuðningur við ferðaþjónustu getur verið ýmiss konar svo sem niðurfelling gjalda, umbreyting á skuldum í hlutafé, ábyrgð á lán og veiting aðstöðu. Einnig flækir það myndina nokkuð að fé sem veitt er til markaðs- og kynningarmála er ekki beinn styrkur til ferðamála heldur einnig til uppbyggingar annarra atvinnugreina.
Þess má geta að bílaleigur hafa notið lægri vörugjalda af bifreiðum. Sama gildir um hópferðabifreiðar og ýmsar aðrar bifreiðar sem notaðar eru í atvinnuskyni. Einnig geta kaupendur hópferðabifreiða sem taka meira en 18 manns fengið endurgreidda 2/ 3hluta virðisaukaskatts.
Árið 2001 nam endurgreiðsla 2/ 3hluta virðisaukaskatts vegna kaupa eða leigu á hópferðabifreiðum ríflega 31 millj. kr. Sama ár nam endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi 3,3 millj. kr.
Árið 2001 voru felld niður vörugjöld af hópferðabifreiðum fyrir rúmar 4,6 millj. kr. og fyrir rúmar 14,6 millj. kr. á fyrstu 11 mánuðum ársins 2002, að meðtöldum virðisaukaskatti sem hefði verið lagður á vörugjöldin.
Erfitt er að meta beina og óbeina styrki ríkis og sveitarfélaga til ferðaþjónustu þar sem slík framlög nýtast í flestum tilvikum fleiri atvinnugreinum. Sem dæmi má þó nefna að í nýsamþykktum fjárlögum fyrir árið 2003 er m.a. gert ráð fyrir eftirtöldum útgjöldum til málaflokka sem tengjast ferðaþjónustu:
Menntamálaráðuneyti: Framlag til safna af ýmsu tagi, 230 millj. kr.
Samgönguráðuneyti: Ferðamálasamtök Vestur-Norðurlanda 1,0 millj. kr., gestastofur, söfn og markaðsstarf 14,0 millj. kr., markaðssókn í íslenskri ferðaþjónustu 300 millj. kr., söfn tengd samgöngum og ferðaþjónustu, 7,5 millj. kr. og markaðssetning Íslands í Norður- Ameríku 66,5 millj. kr. Heildarútgjöld Ferðamálaráðs eru áætlaðar 244,5 millj. kr., sértekjur ráðsins eru áætlaðar 3,2 millj. kr. þannig að áætlað er að greiða 241,3 millj. kr. úr ríkissjóði til málaflokksins.
Nánast ómögulegt er að leggja mat á stuðning einstakra sveitarfélaga við ferðaþjónustu. Þó má nefna að Hafnarfjarðarbær hefur gert þjónustusamning um ferðamál sem nemur 13,5 millj. kr. á árinu 2002. Reykjavíkurborg rekur upplýsingamiðstöð ferðamála, sem og Akureyrarbær. Reykjavíkurborg varði árið 2001 rúmum 37 millj. kr. til ýmissa liða sem tengjast ferðaþjónustu. Þar af fóru 15 millj. kr. til Ferðamálaráðs, rúmar 7 millj. kr. til Upplýsingamiðstöðvar ferðamála og tæpar 4 millj. kr. til Ráðstefnuskrifstofu Íslands. Kaupstaðir við Eyjafjörð verja samanlagt um 25 millj. kr. til ferðamála. Fleiri sveitarfélög hafa ráðið ferðamálafulltrúa.
Ef litið er til stóriðju er gert ráð fyrir að iðnaðarráðuneytið verji 14,4 millj. kr. til iðnaðarrannsókna og stóriðju á árinu 2003. Þá hafa fyrirtæki í stóriðju gert samninga um sérstaka skattlagningu en erfitt er að fullyrða um hvort í þeim felast sérstakar ívilnanir eða álögur.
9. Bera ferðaþjónusta annars vegar og stóriðja hins vegar sérstaka skatta og aðrar opinberar álögur? Ef svo er, hverjar og hve miklar?
Ekki er vitað til þess að ferðaþjónusta og stóriðja beri sérstakar álögur.
10. Er talið að stóriðja hafi áhrif á ferðaþjónustu og öfugt?
Í greinargerð sem Rögnvaldur Guðmundsson vann fyrir Orkustofnun sumarið 2000, Ferðamenn á hálendi Íslands, er birt niðurstaða spurningakönnunar um viðhorf ferðamanna til mannvirkja á hálendinu. Nokkur áherslumunur var á viðhorfum Íslendinga og útlendinga en almennt má segja að mest andstaða hafi verið við virkjanir, þvínæst slitlagða vegi, háspennu- og símalínur o.s.frv. Um 66% íslenskra svarenda töldu að virkjanir og ferðaþjónusta ættu ekki saman en 81% útlendinga voru þessarar skoðunar.
Einnig má nefna að vegaframkvæmdir vegna virkjana hafa auðveldað aðgengi ferðamanna að hálendinu.
Þá skrifaði Anna Dóra Sæþórsdóttir skýrslu, að frumkvæði samstarfsnefndar iðnaðarráðuneytis og Náttúruverndarráðs um orkumál (SINO), um áhrif virkjana norðan Vatnajökuls á ferðamennsku.
Viðamikil norsk rannsókn á áhrifum vatnsaflsvirkjunar á ferðamennsku í Aurlandsdal í suðurhluta Noregs leiddi í ljós að ferðamennska á svæðinu breyttist nokkuð eftir framkvæmdir. (J.Teigland 1994. Konsekvenser av naturinngrep for fritidsbruken av natur, metoder og resultater fra undersøkelser i Aurlandsdalen. Telemarksforskning, Rapport nr. 3-94. Teigland, 1994). Framkvæmdirnar leiddu til þess að fyrir suma ferðamenn missti svæðið aðdráttarafl sitt en fyrir aðra leiddu vegaframkvæmdir og aukin þjónusta til þess að fleiri gátu nýtt sér svæðið en áður. Í reynd jókst fjöldi ferðamanna mjög á svæðinu.
Óhætt er að segja að virkjunarframkvæmdir tengdar stóriðju hafi áhrif á ferðamenn sem eru í leit að ósnortinni náttúru. Hins vegar er erfitt að fullyrða nokkuð um heildaráhrif þar sem aðgengi og þjónusta á svæðinu batnar vanalega í kjölfar slíkra framkvæmda.
Hér á landi hefur ekki verið rannsakað sérstaklega hvort ferðaþjónusta hafi áhrif á stóriðju.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 929 — 297. mál.
Svar

| Atvinnugrein | Hlutfall tekna | |
| Ferðaskrifstofur | 100% | |
| Gististaðir | 90% | |
| Flugsamgöngur | 80% | |
| Samgöngur á landi | 58% | |
| Veitingastaðir | 30% | |
| Sala sport- og minjagripa | 18% | |
| Menning og afþreying | 12% | |
| Blönduð verslun | 9% | |
| Samgöngur á sjó | 4,5% | |
Að þessum forsendum gefnum var framlag ferðaþjónustu til vergrar landsframleiðslu 4,0% árið 1996 og 4,5% árið 1999. Ætla má að þetta hlutfall hafi haldið áfram að vaxa og verið um 5% í árslok 2001.
Hafa ber í huga að við þessa útreikninga á framlagi ferðaþjónustu til landsframleiðslu er einungis litið til beinna áhrifa viðkomandi atvinnugreina en horft fram hjá óbeinum áhrifum. Til að mynda er litið fram hjá viðskiptum sem eiga sér stað milli atvinnugreina. Nær ómögulegt er að meta þessi óbeinu áhrif miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja.
Árið 2001 var hlutfall ál- og kísiljárnframleiðslu 1,5% af landsframleiðslu. Er þá litið til hlutfalls vinnsluvirðis af heildarvinnsluvirði allra atvinnugreina.
Óbein áhrif stóriðju á landsframleiðslu eru ekki eins óljós. Vitað er að raforkusala til stóriðju nam um 5 milljörðum kr. árið 2001, en hún er ekki hluti af vinnsluvirði stóriðju.
Framkvæmdir við virkjanir og í tengslum við þær, svo sem lagning raflína, bygging spennistöðva o.fl., teljast óbein áhrif stóriðju, en slíkar framkvæmdir eru mjög sveiflukenndar. Sama gildir um vegaframkvæmdir vegna virkjana á hálendinu.
Við mat á óbeinum áhrifum stóriðju þarf einnig að líta til þess að hluti framkvæmda í tengslum við hana nýtist öðrum aðilum. Einnig verður að hafa í huga að framkvæmdir við virkjanir eru oft og tíðum það stórar í sniðum að þær vega þungt í landsframleiðslunni meðan á þeim stendur og því skiptir miklu hvaða viðmiðunartímabil er tekið.
2. Hverjar eru útflutningstekjur af ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar?
Árið 2001 nam útflutningsverðmæti afurða orkufreks iðnaðar rúmum 44,4 milljörðum kr. Gjaldeyristekjur af ferðamönnum voru 37,7 milljarðar króna það sama ár.
3. Hver er afkoma fyrirtækja í ferðaþjónustu annars vegar og stóriðju hins vegar í milljörðum króna og sem hlutfall af fjárfestingu?
Árið 2000 var hlutfall hagnaðar af reglulegri starfsemi sem hlutfall af tekjum var sem hér segir:
|
Stóriðja
|
8,8% |
|
Hótel og veitingarekstur
|
-3,5% |
|
Flugsamgöngur
|
-3,6% |
|
Flutningar, ferðaskrifstofur o.fl.
|
-2,2% |