Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 278. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 930  —  278. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Örlygs Hnefils Jónssonar um fjölgun, vistun og flutning opinberra starfa og stofnana.

     1.      Hver var fjölgun starfa á vegum ráðuneytisins árin 1991–2000 og hvernig skiptust störfin milli höfuðborgar og landsbyggðar?
    Ráðuneytið leitaði til Fjársýslu ríkisins svör við fyrirspurn þessari.
    Árið 1991 voru samtals 831,4 stöðugildi á vegum félagsmálaráðuneytis á öllu landinu, þar af samtals 476,7 á landsbyggðinni, þ.e. í sveitarfélögum utan Reykjavíkurborgar. Árið 2000 nam fjöldi stöðugilda á landinu öllu samtals 1.480,0 þar af 819,1 á landsbyggðinni.

1991 2000 Mismunur
Höfuðborg 354,7 661,0 306,2
Landsbyggð 476,7 819,1 342,3
Samtals 831,4 1.480,0 648,6

    Ítarlegar er gerð grein fyrir þróun stöðugilda á vegum ráðuneytisins í fylgiskjali I.

     2.      Hvaða nýju stofnanir voru vistaðar á vegum ráðuneytisins á landsbyggðinni árin 1991– 2000 og hvar?
     3.      Hvað hafa fylgt þessum stofnunum mörg ný störf, hvar eru þau vistuð og hvernig skiptast þau milli einstakra kaupstaða og sýslna?

    Tvær nýjar stofnanir voru vistaðar á vegum ráðuneytisins á landsbyggðinni, þ.e. Jafnréttisstofa á Akureyri og Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum í Ísafjarðarbæ.

Nýjar stofnanir vistaðar á landsbyggðinni.

Stofnun Staður 1991–99 2000 2001 2002
Jafnréttisstofa, Akureyrarkaupstaður 4,0 5,0 5,5
Fjölmenningarsetrið á Vestfjörðum Ísafjarðarbær 1,0 1,0 2,0
Samtals 0,0 5,0 6,0 7,5

    Nánar er gerð grein fyrir starfsemi þessara stofnana í fylgiskjali II.

     4.      Hvaða stofnanir voru fluttar á vegum ráðuneytisins frá höfuðborginni til landsbyggðar árin 1991–2000 og hvert?
     5.      Hvað hafa fylgt þessum stofnunum mörg störf, hvar eru þau vistuð og hvernig skiptast þau milli einstakra kaupstaða og sýslna?

    Ýmis störf hafa skapast á landsbyggðinni á vegum ráðuneytisins, ýmist við flutning starfsemi frá höfuðborgarsvæðinu eða beinlínis með uppsetningu nýrra starfsstöðva starfandi stofnana, eins og fram kemur í töflunni.

Störf sem skapast hafa á landsbyggðinni, ýmist með flutningi frá höfuðborg
eða með uppsetningu nýrra starfsstöðva.







Ný störf eða flutningur starfa á síðustu árum eða væntanleg. Samtals starfandi á landsbyggðinni.


Starfsemi Flutt til Stöðugildi Stöðugildi Viðbætur og athugasemdir
Íbúðalánasjóður Sveitarfélagið Skagafjörður
11

11
13 starfsmenn í 11 stöðugildum. Enn fremur frekari aukning atvinnutækifæra.
Vinnueftirlitið Í öllum umdæmum 21 Starfsemi á sviði endurnýjunar vinnuvélaréttinda o.fl. hefur nýlega verið flutt frá aðalskrifstofu til umdæmisskrifstofa.
Ný sambýli fatlaðra Í öllum umdæmum 128 417,3
Barnaverndarstofa Sjá greinargerð 40 60
Svæðisvinnumiðlanir Í öllum landshlutum 6 19
Móttaka flóttamanna Sjá greinargerð 14 ársverk Með hverjum samningi sem gerður hefur verið við viðkomandi sveitarfélag um móttöku flóttamanna má gera ráð fyrir að skapast hafi störf sem nemur tveimur ársverkum, eða samtals 14 ársverk.
Samningar við ýmsa Sjá greinargerð 6 ársverk
Samtals 185 528,3
                        
    Samtals hafa skapast 185 störf á landsbyggðinni á vegum ráðuneytisins á undanförnum árum við flutning starfa eða með uppsetningu nýrra starfsstöðva.
    Á það skal bent að hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra utan höfuborgarsvæðisins fjölgaði stöðugildum, þar af voru um 128 vegna nýrra sambýla og annarra úrræða fyrir fatlaða árin 1991–2000.
    Í fylgiskjali III er ítarlegar gerð grein fyrir fjölgun starfa á landsbyggðinni fyrir hvern starfsemisþátt fyrir sig.





Fylgiskjal I.


Stofnun
Heiti stofnunar
Núverandi heiti sveitarfélags
1990

1991

1992

1993

1994

1995

1996

1997

1998

1999

2000
Höfuðborg / Reykjavíkurborg:
07101 Félagsmálaráðuneyti, aðalskrifstofa Reykjavíkurborg 18,7 18,8 19,5 20,0 21,3 20,0 20,9 21,6 23,7 24,9 23,9
07302 Ríkissáttasemjari 3,7 4,1 3,7 3,7 3,9 3,6 3,0 3,6 3,6 3,7 4,3
07311 Jafnréttisráð 3,9 5,1 6,4 5,6 5,4 5,6 5,8 6,2 6,0 6,3 6,6
07321 Brunamálastofnun ríkisins 8,6 9,2 9,5 9,3 9,8 9,7 10,0 10,6
07331 Vinnueftirlit ríkisins 1) 30,6 31,6 32,0 35,7 37,2 37,3 37,7 38,6 40,2 40,6 43,2
07400 Barnaverndarstofa 0,0 0,0 0,0 57,0 59,4 52,9 36,8 36,0 37,6 41,5 31,9
07700 Málefni fatlaðra 0,7 4,5 10,2 13,0 16,9 18,8 21,8 18,0 15,4 28,4 28,6
07701 Málefni fatlaðra Reykjavík 81,7 100,4 120,4 131,7 149,8 153,5 175,0 192,8 211,2 236,6 255,8
07711 Styrktarfélag vangefinna 123,6 127,3 124,5 124,5 125,3 130,7 130,9 132,8 136,1 134,3 136,7
07795 Framkvæmdasjóður fatlaðra 0,2 0,3 0,7 1,0 1,0 1,0 1,0 1,0 1,0 1,0
07980 Vinnumálastofnun 2,9 10,3 16,9 19,9 21,1 18,4 23,4 50,4
07981 Félagsmálaráðuneyti, vinnumál 0,2 0,4 0,5 0,3 1,2 1,0 0,2
07999 Félagsmálaráðuneyti, ýmis starfsemi 0,6 0,1 0,1 2,4 3,9 6,1 6,6 6,4
27271 Husnæðisstofnun ríkisins 62,3 68,7 62,6 63,1 53,8 57,3 59,5 57,0 52,1
47201 Íbúðalánasjóður 64,0 52,2
Starfsemi í málefnum fatlaðra, ótalin annars staðar 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0 20,0
Höfuðborg samtals 354,7 390,3 408,9 487,3 514,1 527,7 544,9 564,2 572,3 631,4 661,0
Landsbyggð / Sveitarfélög utan Reykjavíkurborgar:
07702 Málefni fatlaðra Reykjanesi Kópavogsbær 35,1 36,1 41,4 47,5 39,9 45,7 49,7 43,5 43,7 48,2 70,2
07750 Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins 31,9 31,1 30,7 29,4 29,8 29,4 29,8 29,0 31,3 30,9 30,2
Starfsemi í málefnum fatlaðra, ótalin annars staðar
2,5
Kópavogsbær samtals 67,0 67,2 72,1 76,8 69,7 75,1 79,5 72,5 75,0 79,0 102,9
07702 Málefni fatlaðra Reykjanesi Seltjarnarneskaupstaður 0,0 0,0 0,0 0,0 1,3 5,7 5,2 5,1 5,4 4,6 3,5
07702 Málefni fatlaðra Reykjanesi Garðabær 5,1 4,5 4,7 4,3 4,5 4,8 10,9 25,2 29,4 29,2 32,1
07702 Málefni fatlaðra Reykjanesi Hafnarfjarðarkaupstaður 19,7 20,5 19,7 21,1 36,9 40,2 41,6 42,1 48,9 57,4 48,9
07719 Tjaldanesheimilið Mosfellsbæ 0,0 0,0 0,0 0,0 24,0 23,6 21,1 27,0 31,2 33,0 32,1
07720 Skálatúnsheimilið Mosfellsbæ 64,1 63,3 65,6 65,6 64,0 65,5 65,1 61,9 61,6 60,0 56,8
Mosfellsbær samtals 64,1 63,3 65,6 65,6 87,9 89,1 86,2 88,9 92,8 93,0 88,9


Stofnun
Heiti stofnunar
Núverandi heiti sveitarfélags
1990

1991

1992

1993

1994

1995

1996

1997

1998

1999

2000
07702 Málefni fatlaðra Reykjanesi Reykjanesbær 7,5 13,5 13,5 17,3 19,6 18,5 18,1 20,4 19,7 19,2 21,7
07702 Málefni fatlaðra Reykjanesi Sandgerðisbær 0,0 0,0 0,0 0,0 5,3 4,7 3,9 3,8 5,6 6,0 7,6
07703 Málefni fatlaðra Vesturlandi Akraneskaupstaður 17,0 19,0 18,9 18,2 19,2 20,9 12,5 12,3 14,0 2,4 1,7
07703 Málefni fatlaðra Vesturlandi Snæfellsbær 0,5 0,5 0,4 0,6
07703 Málefni fatlaðra Vesturlandi Borgarbyggð 3,3 3,1 7,6 10,6 12,1 13,1 23,0 24,5 26,9 40,9 48,8
07703 Málefni fatlaðra Vesturlandi Stykkishólmsbær 0,0 0,0 0,0 0,0 0,9 0,9 0,9 0,9 0,9 1,0 1,2
07704 Málefni fatlaðra Vestfjörðum Ísafjarðarbær 21,1 21,2 21,3 22,6 25,2 24,7 25,3 24,0 23,8 28,8 32,7
07704 Málefni fatlaðra Vestfjörðum Reykhólahreppur 0,1 0,2 0,4
07704 Málefni fatlaðra Vestfjörðum Vesturbyggð 0,3 0,6 0,6
07704 Málefni fatlaðra Vestfjörðum Hólmavíkurhreppur 0,0 0,0 0,0 0,4 0,3 0,3 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
07705 Málefni fatlaðra Norðurlandi vestra Siglufjarðarkaupstaður 2) 6,8 7,6 9,0 9,9 14,4 16,8 19,6 21,5 21,3 21,5 21,5
07400 Barnaverndarstofa Sveitarfélagið Skagafjörður
1,6

10,1
07400 Málefni barna og ungmenna 2) 4,0 10,0 11,8 12,5 12,5 12,5
07705 Málefni fatlaðra Norðurlandi vestra 2) 8,6 7,7 9,1 13,0 13,2 19,3 18,0 17,1 17,0 17,1 17,1
47201 Íbúðalánasjóður 6,8 9,1
Sveitarfélagið Skagafjörður samtals 8,6 7,7 9,1 13,0 13,2 23,3 28,0 28,9 29,5 38,0 48,7
07705 Málefni fatlaðra Norðurlandi vestra Húnaþing vestra 2) 1,0 5,5 5,5 5,4 6,3 6,4 7,6 7,0 10,5 10,5 10,5
07705 Málefni fatlaðra Norðurlandi vestra Blönduósbær 2) 0,0 0,3 0,9 0,9 3,0 10,4 11,3 8,2 8,0 8,0 8,0
07705 Málefni fatlaðra Norðurlandi vestra Akrahreppur 0,5 0,7 0,5 0,2 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
07706 Málefni fatlaðra Norðurlandi eystra Akureyrarkaupstaður 2) 115,3 117,0 127,0 129,4 138,4 131,3 131,3 131,3 131,3 131,3 131,3
07706 Málefni fatlaðra Norðurlandi eystra Húsavíkurbær 2) 0,0 0,0 3,1 3,1 3,3 7,6 7,6 7,6 7,6 7,6 7,6
07706 Málefni fatlaðra Norðurlandi eystra Eyjafjarðarsveit 2,6 2,6 1,4 1,9 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
07707 Málefni fatlaðra Austurlandi Austur-Hérað 2) 34,4 34,1 35,5 37,2 38,6 38,3 39,0 39,0 39,0 39,0 39,0
07708 Málefni fatlaðra Suðurlandi Vestmannaeyjabær 2) 4,7 7,6 8,8 8,7 8,6 9,2 8,7 9,0 9,0 9,0 9,0
07708 Málefni fatlaðra Suðurlandi Sveitarfélagið Árborg 2) 28,5 31,0 32,7 34,6 41,9 44,1 45,4 45,4 45,4 45,4 50,9
07722 Sólheimar, Grímsnesi Grímsnes- og Grafningshreppur
3)

37,5

38,1

38,0

38,0

38,0

38,0

38,0

38,0

38,0

38,0

38,0
07708 Málefni fatlaðra Suðurlandi Sveitarfélagið Ölfus 7,5 7,7 7,6 7,3 5,8 5,6 5,2 5,2 5,3 5,3 0,0
Umdæmisskrifstofur Vinnueftirlits ríkisins 15,1 15,6 15,7 17,6 18,3 18,4 18,6 19,0 19,8 20,0 20,3
Svæðisvinnumiðlanir Vinnumálastofnunar 18,5 21,0 25,5


Stofnun
Heiti stofnunar
Núverandi heiti sveitarfélags
1990

1991

1992

1993

1994

1995

1996

1997

1998

1999

2000
Starfsemi í málefnum fatlaðra, ótalin annars staðar:
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0
Sveitarfélagið Hornafjörður 5,0 5,0
Mýrdalshreppur 5,0 5,0
Samtals 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 19,0
Landsbyggð samtals 476,7 497,2 527,5 554,1 622,4 657,4 676,4 688,7 734,5 775,2 819,1
Höfuðborg og landsbyggð samtals 831,4 887,5 936,4 1.041,3 1.136,5 1.185,2 1.221,3 1.252,8 1.306,8 1.406,6 1.480,0
1) Stöðugildi Vinnueftirlits ríkisins á landsbyggðinni voru 19,8 árið 1999 og 20,25 árið 2000 eins og fram kemur í töflunni. Upplýsingar um stöðugildi á landsbyggðinni fyrir 1999 liggja ekki fyrir með skýrum hætti og er sá fjöldi áætlaður í töflunni.
2) Með samningi milli ráðuneytisins og tiltekinna sveitarfélaga eða samlaga þeirra hefur starfsemi á sviði málefna fatlaðra flust frá ríki til viðkomandi sveitarfélaga.
Til að skekkja ekki samanburð milli ára er gert ráð fyrir sama stöðugildafjölda á vegum sveitarfélaganna vegna verkefnisins og hafði verið hjá ríkinu fyrir flutning þess.
3) Árið 1991 fluttust starfsmenn Sólheima í Grímsnesi frá ráðuneytinu til samnefndrar sjálfseignarstofnunar.
Fylgiskjal II.



Félagsmálaráðuneyti.

Greinargerð
um nýjar stofnanir vistaðar á landsbyggðinni 1991–2000.


1.     Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum.
    Hinn 9. maí 2000 samþykkti Alþingi þingsályktun um stofnun nýbúamiðstöðvar á Vestfjörðum. Með samþykkt hennar fól Alþingi félagsmálaráðherra að undirbúa stofnun miðstöðvar nýbúa á Vestfjörðum í samvinnu við sveitarstjórnir, Rauða kross Íslands og Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða. Miðstöðinni er ætlað að greiða fyrir samskiptum Íslendinga og erlendra ríkisborgara, vinna með sveitarstjórnum að því að efla þjónustu fyrir erlenda ríkisborgara, fyrirbyggja vandamál í samskiptum fólks af margvíslegum menningarsvæðum og auðvelda aðlögun erlends fólks að íslensku þjóðfélagi.
    Fjölmenningarsetrið tók til starfa árið 2001.

2.     Jafnréttisstofa á Akureyri.
    Með gildistöku nýrra laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000, féll niður umboð þáverandi Jafnréttisráðs og skrifstofa þess, Skrifstofa jafnréttismála, var lögð niður. Frá og með sama tíma var skapaður lagagrunnur fyrir nýja stofnun, Jafnréttisstofu, sem ætlað var að annast margvísleg verkefni á sviði jafnréttismála en hlutverk hennar er á ýmsum sviðum víðtækara en hinnar eldri skrifstofu.
    Samkvæmt ákvæðum 2. gr. framangreindra laga er það í ákvarðanavaldi félagsmálaráðherra að ákveða staðsetningu Jafnréttisstofu. Í samræmi við ákvæði laganna tók hann ákvörðun um að Jafnréttisstofa yrði á Akureyri. Stofnunin tók til starfa 1. september 2000 en formleg opnun hennar fór fram 15. september sama ár.
    Á Jafnréttisstofu störfuðu árið 2001 samtals fimm starfsmenn. Fulltrúi, framkvæmdastýra, tveir sérfræðingar í föstu starfi og einn með tímabundna verkefnatengda ráðningu. Árið 2002 bættist við lögfræðingur í 50% starfi. Samtals er því hér um að ræða 5,5 stöðugildi.
    
3.     Varasjóður húsnæðismála.
    Með lögum nr. 86/2002, um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, með síðari breytingum, var lagður grunnur að starfrækslu nýs sjóðs, varasjóðs húsnæðismála. Hinum nýja sjóði er ætlað að veita framlög til sveitarfélaga og félaga á þess vegum vegna félagslegra íbúða, sbr. nánari ákvæði þar að lútandi, og tekur hann jafnframt við öllum réttindum og skyldum varasjóðs viðbótarlána sem lagður verður niður samhliða.
    Setning fyrrgreindra laga um varasjóð húsnæðismála og reglugerðar hans, nr. 656/2002, byggist á samkomulagi félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 4. apríl 2002.
    Varasjóður húsnæðismála tók formlega til starfa 1. ágúst 2002 og lagðist starfsemi varasjóðs viðbótarlána því niður frá og með sama tíma.
    Ákveðið var að starfsemi varasjóðsins flyttist til Sauðárkróks frá og með 1. nóvember 2002 og hefur Sigurður Árnason, stjórnmálafræðingur, verið ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins frá og með þeim tíma. Flutningur varasjóðsins til Sauðárkróks fellur vel að stefnu Alþingis í byggðamálum en með honum skapast nýtt starf á landsbyggðinni.

4.     Samstarfsverkefni félagsmálaráðuneytis og Byggðastofnunar um atvinnu- og jafnréttisráðgjafa.
    Þriggja ára tilraunaverkefni um jafnréttisráðgjafa á Norðurlandi vestra var hrint af stað af hálfu ráðuneytisins þann 26. mars 1998. Meginverkefni ráðgjafans var að vinna að leiðréttingu á stöðu kvenna í fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu. Enn fremur átti hann að vinna í samvinnu við atvinnuráðgjafa að fjölgun atvinnutækifæra fyrir konur í kjördæminu.
    Með samningi milli ráðuneytisins og Byggðastofnunar hefur verið tekin ákvörðun um að færa verkefnið út og framlengja það. Um er að ræða samstarfsverkefni um atvinnu- og jafnréttisráðgjafa á landsbyggðinni. Samstarfið stendur til ársins 2005 og munu ráðgjafarnir verða á Blönduósi, í Norðausturkjördæmi og í Suðurkjördæmi. Verður byggt á starfi jafnréttisráðgjafa Norðurlands vestra og mun því nýtast öðrum héruðum landsins til sóknar fyrir konur í dreifbýli á vinnumarkaðinn. Verkefnið er sérstaklega brýnt því að talið er að staða kvenna á vinnumarkaði hafi versnað hlutfallslega miðað við karla á landsbyggðinni.
    Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir:
          framhaldi á núverandi starfi jafnréttisráðgjafa á Blönduósi, sem verður atvinnu- og jafnréttisráðgjafi hins nýja Norðvesturkjördæmis til 31. júlí 2003,
          að frá og með 1. ágúst 2002 til ársloka 2004 verði ráðinn atvinnu- og jafnréttisráðgjafi fyrir Norðausturkjördæmi,
          að frá og með 1. ágúst 2003 til ársloka 2005 verði ráðinn atvinnu- og jafnréttisráðgjafi fyrir Suðurkjördæmi.



Fylgiskjal III.


Félagsmálaráðuneyti.

Greinargerð
um flutning starfa frá höfuðborginni til landsbyggðar árin 1991–2000
.


1.     Umsýsla Íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki.
Innheimtuþjónusta og varsla skuldabréfa.
    Árið 1998 hófst undirbúningur að flutningi hluta af starfsemi Íbúðalánasjóðs til Sauðárkróks. Hér er um að ræða starfsemi á sviði innheimtu, vörslu skuldabréfa og almennrar ráðgjafar til viðskiptavina stofnunarinnar varðandi stöðu lána og innheimtu.
    Hinn 1. janúar 1999 hófst starfsemin á Sauðárkróki með formlegum hætti. Upphaflega voru starfsmenn skrifstofunnar sjö talsins í sex stöðugildum en síðan þá hefur þjónustan verið bætt, sér í lagi á sviði ráðgjafar til viðskiptavina, svo að starfsmennirnir eru orðnir 13 talsins í u.þ.b. 11 stöðugildum.

Greiðslumiðlun og uppsetning og þjónusta upplýsingakerfis.
    Fyrir hönd Íbúðalánasjóðs bauð Ríkiskaup árið 1999 út þjónustu á sviði greiðslumiðlunar, ásamt þróun, uppsetningu og þjónustu nýs innheimtu-, skuldabréfa- og bókhaldskerfis. Í kjölfar þess útboðs var gerður samningur við Fjárvaka, fyrirtæki á Sauðárkróki, sem gerði tilboð í þjónustuna í samstarfi við Element á Sauðárkróki, Sparisjóð Norðlendinga, Sparisjóð Hólahrepps og Opin kerfi. Samningurinn tók gildi 15. mars 2000.
    Útboðslýsingin kvað á engan hátt á um starfsemi tilboðsgjafa á landsbyggðinni enda mikilvægt að fyrirtæki byðu fram sínar ódýrustu lausnir á þjónustunni í samræmi við kröfur um umfang og gæði hennar. Ljóst er þó að með tilkomu samningsins við Fjárvaka hafa ný atvinnutækifæri skapast, sér í lagi í Skagafirði enda eru þrír af þeim fimm aðilum sem stóðu að tilboðinu í Skagafirði en hinir tveir á Akureyri og í Reykjavík.

2.     Vinnueftirlit ríkisins.
    Í gegnum tíðina hefur það verið stefna Vinnueftirlits ríkisins að starfsemi þess fari fram eins nálægt vettvangi og kostur er. Í samræmi við þá stefnu hefur starfsstöðvum verið komið upp í öllum landshlutum. Enn fremur hefur undanfarið verið unnið að undirbúningi að flutningi verkefna til þessara starfsstöðva sem í nokkrum tilfellum hefur nú þegar skilað árangri.
    Nýlega var starfsemi á sviði endurnýjunar vinnuvélaréttinda og skráning tilkynntra vinnuslysa flutt frá aðalskrifstofunni til umdæmisskrifstofanna.
    Hjá Vinnueftirliti ríkisins hefur verið til skoðunar að koma upp nýrri deild sem rekin yrði í tengslum við eina af umdæmisskrifstofunum á landsbyggðinni sem hefði m.a. umsjón með gagnagrunni stofnunarinnar og sæi um umsýslu á vinnuslysaskrá og nýrri skrá yfir tilkynnta atvinnusjúkdóma. Frekari athugun á málinu á sér nú stað en þessum flutningi verkefna fylgir aukinn kostnaður.
    Bent skal á að af 63,5 stöðugildum hjá stofnuninni árið 2000 voru samtals um 21 í umdæmum hennar utan höfuðborgarsvæðisins.

3.     Barnaverndarstofa.
    Allt frá því að Barnaverndarstofa var sett á laggirnar um mitt ár 1995 hefur verið unnið að því að efla starfsemi á hennar vegum á landsbyggðinni. Eftirfarandi sýnir hversu mikið hefur áunnist í þeim efnum:
    Öll langtímameðferð fyrir börn og unglinga hefur nú verið flutt frá höfuðborgarsvæðinu út á land.
          Fjórum stofnunum í Reykjavík og nágrenni var lokað, það voru meðferðarheimilin að Tindum á Kjalarnesi, í Efstasundi 86, Sólheimum 7 og Sólheimum 17 í Reykjavík.
          Frá sama tíma hafa eftirtaldar stofnanir tekið til starfa á landsbyggðinni: Hvítárbakki í Borgarfirði, Háholt í Skagafirði, Varpholt í Eyjafirði og Skjöldólfsstaðir á Héraði.
          Að auki hefur meðferðarheimilið að Árbót í Aðaldal verið stækkað með sérstakri rekstrareiningu að Bergi í Aðaldal.
    Einnig skal á það bent að þjónustusamningur er í gildi um starfsemi að Torfastöðum og Geldingalæk á Suðurlandi.
    Framangreind breyting hefur falið í sér flutning um 40 starfa frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar en alls starfa nú ríflega 60 manns að meðferð á vegum stofunnar á landsbyggðinni. Nú starfa u.þ.b. tveir af hverjum þremur starfsmönnum á vegum stofunnar utan höfuðborgarsvæðisins.

3.     Móttaka flóttamanna.
    Á árunum 1995–2001 hefur ráðuneytið gert samtals sjö samninga við jafnmörg sveitarfélög um móttöku flóttamanna en hvert verkefni stendur yfir í eitt ár. Hér er um að ræða 168 flóttamenn frá Júgóslavíu fyrrverandi, bæði Serba og Kosovo-Albana. Að meðaltali er tekið á móti 20–25 flóttamönnum árlega en árið 1999 var neyðarástand í Kosovo og ákvað ríkisstjórnin að taka á móti 75 flóttamönnum, sem fóru til þriggja sveitarfélaga. Rúmlega 30 flóttamenn hafa snúið aftur til heimalands síns. Í hverjum samningi er talin upp sú þjónusta sem sveitarfélagið skuldbindur sig að veita flóttamönnunum á þeim tíma sem verkefnið stendur yfir en gengið er út frá því að flóttamennirnir njóti sams konar félags- og heilbrigðisþjónustu og aðrir íbúar sveitarfélagsins. Kostnaðaráætlun fylgir hverjum samningi en ráðuneytið skuldbindur sig að greiða samkvæmt reikningi fyrir umrædda þjónustu í samræmi við áætlunina. Hver samningur hefur að meðaltali verið að fjárhæð 25 millj. kr. Samhliða samningnum við hvert sveitarfélag fyrir sig hefur ráðuneytið gert samning við Rauða kross Íslands vegna þáttar þeirra í verkefnunum en starfsmenn Rauða krossins eru sveitarfélögum innan handar við skipulagningu verkefnanna. Framlag Rauða krossinn vegna hvers samning hefur að meðaltali verið um 10 millj. kr. að auki.
    Ráðuneytið hefur gert samninga um móttöku flóttamanna við eftirfarandi sveitarfélög:
1400 Hafnarfjarðarkaupstaður,
4200 Ísafjarðarbær,
5000 Siglufjarðarkaupstaður,
5604 Blönduósbær,
6300 Dalvíkurbyggð,
7300 Fjarðabyggð og
7708 Sveitarfélagið Hornafjörður.
    Framlög ráðuneytisins til þeirra sjö sveitarfélaga sem hér um ræðir nema samtals í kringum 175 millj. kr. á grundvelli framangreindra samninga. Að auki nema framlög Rauða kross Íslands samtals kr. 70 millj. kr. til þessara sömu sveitarfélaga.

4.     Samningar við ýmsa aðila.
    Ráðuneytið hefur í gegnum tíðina gert samninga á ýmsum sviðum með það að markmiði að efla atvinnulíf og treysta búsetu á landsbyggðinni.
    Eftirfarandi eru upplýsingar um þá samninga sem ráðuneytið telur eðlilegt að geta um í tengslum við fyrirspurnina:
    Líkt og aðrir rekstraraðilar í þjóðfélaginu hefur ráðuneytið haft þörf fyrir ýmsa utanaðkomandi sérfræðiþjónustu á liðnum árum vegna verkefna sem ekki hefur gefist tóm til að sinna af starfsmönnum þess. Í ljósi þeirrar miklu sérfræðiþekkingar sem byggst hefur upp á landsbyggðinni á undanförnum árum og þeirri þjónustu sem þar er nú í boði hefur ráðuneytið leitað í æ ríkari mæli eftir sérfræðiráðgjöf sem í boði er á landsbyggðinni.
    Dæmi um samninga sem ráðuneytið hefur gert við ráðgjafarfyrirtæki sem starfrækt eru á landsbyggðinni að hluta eða að öllu leyti:
    i. Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri.
    Um er að ræða rannsókn á áhrifum og afleiðingum sameiningu sveitarfélaga sem rannsóknarstofnunin hefur tekið að sér að gera. Hér er um að ræða viðamikið verkefni sem gert er ráð fyrir að taki 15 mánuði í vinnslu. Samningur þar að lútandi var undirritaður á Akureyri 20. september 2000.
     ii. KPMG.
    Ráðuneytið á aðild að bókhaldsnefnd sveitarfélaga sem unnið hefur undanfarið að endurskoðun handbókar um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga í ljósi nýrra sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998. Sú vinna hefur gagnast ráðuneytinu í vinnu við endurskoðun á reglugerð um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga sem nauðsynleg er í ljósi framangreindra laga.
    Samið hefur verið við endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið KPMG til að vinna að þessari endurskoðun fyrir bókhaldsnefndina en starfsmenn fyrirtækisins á Selfossi hafa að mestu leyti unnið að þessu verkefni enda fer fram öflug starfsemi fram þar á sviði endurskoðunar og ráðgjafar.
    iii. Prentun.
    Gerður hefur verið samningur við fyrirtæki á Sauðárkróki um alla prentun bréfsefnis fyrir ráðuneytið.

5.     Svæðisvinnumiðlanir.
    Með gildistöku laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 13/1997, voru verkefni á sviði vinnumiðlunar flutt frá sveitarfélögunum til ríkissjóðs. Flutningurinn átti sér formlega stað hinn 1. júlí 1997 en fyrst um sinn höfðu sveitarfélögin umsjón með verkefninu á grundvelli þjónustusamninga milli þeirra og Vinnumálastofnunar. Við gildistöku laganna féllu niður lög um vinnumiðlanir, nr. 18/1985, og IX. kafli laga um stjórn efnahagsmála ofl., nr. 13/1979.
    Hin nýju lög kveða á um að reknar verði svæðisvinnumiðlanir á ýmsum stöðum landsins en ráðherra ákveður staðsetningu þeirra og umdæmi að fengnum tillögum stjórnar Vinnumálastofnunar. Hlutverk svæðisvinnumiðlananna samkvæmt lögunum er mun viðtækara en vinnumiðlananna gömlu enda hafa þær ekki einungis umsjón með atvinnuleysisskráningu heldur einnig ráðgjöf við atvinnulausa sem hefur verið verulegur hluti af starfsemi þeirra.
    Svæðisvinnumiðlanir eru samtals átta talsins á eftirtöldum stöðum á landinu: Í Reykjavík, á Akranesi, Ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjanesbæ.
    Gengið hefur verið út frá því að við hverja svæðisvinnumiðlun starfi venjulega þrír starfsmenn, forstöðumaður, ráðgjafi og fulltrúi. Við svæðisvinnumiðlanirnar í Reykjavík og á Akureyri starfa þó fleiri.
    Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem undirrituð var 7. desember 1997, kom fram að aðilarnir væru sammála m.a. um að verkefni á sviði vinnumiðlunar skyldi færast til ríkissjóðs og fjárhagsleg áhrif þess jöfnuð samhliða öðrum fjárhagslegum aðgerðum milli aðila.
    Í samkomulaginu var gert var ráð fyrir að kostnaður sveitarfélaga af starfsemi vinnumiðlana næmi samtals 120 millj. kr. á ársgrundvelli miðað við verðlag 1997. Til samanburðar voru útgjöld við starfsemi hinna nýju svæðisvinnumiðlana árið 1999 samtals um 195 millj. kr. þegar tekið hefur verið tillit til greiðslu kostnaðar við skráningu á öðrum stöðum en þar sem þær eru.
    Aukning útgjalda á sviði vinnumiðlunar um 53% að raungildi milli áranna 1997 og 1999 skýrist af auknu lögbundnu hlutverki svæðisvinnumiðlana í kjölfar lagasetningarinnar 1997, sem fyrr hefur verið vikið að. Í samræmi við lögin hefur verið sett upp öflug ráðgjafarstarfsemi á þessu sviði og atvinnuleysisskráning og hvers kyns upplýsingagjöf verið bætt. Þessi aukna þjónusta á sviði vinnumiðlunar hefur annars vegar haft í för með sér þörf fyrir fleiri starfsmenn á sviði vinnumiðlunar, sér í lagi á landsbyggðinni, og hins vegar betri aðstöðu fyrir starfsemina.