Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 580. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 934  —  580. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um umfang happdrættismarkaðarins.

Frá Sverri Hermannssyni.



     1.      Hverjar voru heildartekjur, rekstrargjöld og hagnaður þeirra happdrætta sem störfuðu eða efnt var til samkvæmt lögum árin 2000 og 2001?
     2.      Hver var heildarupphæð útborgaðra vinninga sömu ár?
     3.      Eru uppi hugmyndir af hálfu ráðuneytisins um breytt skipulag happdrættismála og ef svo er, í hverju felast þær hugmyndir?


Skriflegt svar óskast.